Feykir - 02.06.2004, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 20/2004
il
Frá Sveitarfélaginu
Skagaíjörður Skagafirði
Vinabæj armót í K0ge í Danmörku
Hópur skagfirskra sveitarstjómar-
manna, sviðsstjóri Markaðs- og
þróunarsviðs og makar tóku í síðustu
viku þátt í vinabæjarmóti í Koge í
Danmörku. Þátttakendur vom frá vina-
bæjunum Skagafjarðar; Kristianstad í
Svíþjóð, Kongsberg í Noregi, Espoo í
Finnlandi og Koge . Megin umtjöll-
unarefni mótsins vom nýungar og
þróunarstarf í skólum. Fulltrúar á
mótinu unnu í vinnuhópum og hlýddu
á áhugaverða fýrirlestra m.a. um þátt
sveitarfélaganna í vinnu við almanna-
vamir, sjálfsmat í skólum og þróun
sveitarstjómarmála í Danmörku.
Makar og aðrir sem ekki tóku þátt
í áðumefndri vinnu fóm með ferða-
málafulltrúa Koge svæðisins í fróðlega
skoðunarferð um miðbæinn í Koge,
sem er einkar glæsilegur. Meðal þess
sem hópurinn skoðaði vom gríðar-
stórar skissur af listaverkum sem sýna
sögu Danmerkur og prýða einn af
sölum Margrétar drottningar í
Kristjánsborgarhöll. Sannarlega glæsi-
leg listaverk. Einnig skoðaði hóp-
urinn svokallaðan Mini-bæ þar sem
eldri borgarar í Koge hafa endur-
skapað miðbæ Koge eins og hann
leit út á 19. öld, í hlutföllunum 1:10 í
gríðarlega nákvæmum og glæsilegum
líkönum sem byggð em úr sömu
byggingarefnum og notuð vom í
fyrirmyndimar. Hreint ótrúlegt ffarn-
tak sem allir sem koma til Danmerkur
ættu að skoða!
Mótið stóð frá mánudegi til
miðvikudags og þátttakendur vom
alls um 65.
Það var samdóma álit allra þátttak-
enda að skipuleggjendumir í Koge
hafi staðið sig frábærlega, dagskráin
var þétt og fróðleg og þegar vinnu
lauk á daginn tóku við glæsilegar
veislur þar sem mikið var sungið og
spjallað. Flestir létu sig hafa það að
tjá sig á norræna tungu, þrátt fyrir að
vera misvel talandi á hana og sumir
töluðu eitthvað sem líktist sænsku,
dönsku og norsku í bland. Hrein
íslenska og finnska skiluðu ekki
miklum árangri í samræðum!
Sérstaka athygli í ferðinni vakti
framúrskarandi söngur íslensku
sendinefndarinnar, sem tvímælalaust
sigraði á þessu litla óformlega
norðurlandamóti í hópsöng. Minna
fór fyrir hæfileikum íslendinganna í
keilu!
Fulltrúar allra ffamboða sem eiga
fúlltrúa í sveitarstjóm Skagafjarðar
ættu að hafa snúið heim einhvers
vísari um það nýjasta sem er að gerast
í skólamálum í vinabæjum okkar. Á
næsta móti sem verður að ári í
Kongsberg verður áhersla á atvinnulíf
og ferðamál og eftir tvö ár verður
haldið stórt vinabæjarmót hér í
Skagafirði.
Nánar má lesa um vinabæjarmótið
á heimasíðu sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar www.skagafjordur.is
LAUGARDAGURINN 5. JÚNÍ
Kl. 10:30 Mæting í skemmtisiglingu
við Sauðárkrókshöfn
-allir velkomnir-
Unglingadeildin verður með
sjoppu í rússajeppanum
SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ
SJÓMANNADAGUR
Kl. 20:00 Sjómannadagsmessa
í Sauðárkrókskirkju
nmro £rf\Tóft
Brottför í skemmtisiglingu
Skagfirðingasveit stendur
fyrir dagskrá á hafnarsvæðinu
•Kappróður
•Koddaslagur
•Flotgallasund
•Reipitog
Kaffisala í Verinu
Sjávarfræðasetri Hólaskóla
Kl. 11.00
Kl. 12:30
Ársreikningur 2003
— skuldaaukning
Nú í maímánuði var tekinn
fyrir í sveitarstjóm Skagafjarð-
ar ársreikningur vegna ársins
2003. I nýlegri grein eftir
sveitarstjóra sem birtist m. a. í
Feyki og á veffniðlum gumar
sveitarstjórinn afþví sem hann
kallar fagleg og markviss
vinnubrögð i stjómun sveitar-
félagsins. Jafnframt gumar
hann af því að tekið hafi verið
til hendinni í rekstri sveitarfé-
lagsins. Þá hlýtur mann að
reka í rogastans þegar bomar
em saman tölur fjárhagsáætl-
unar frá febrúar 2003 þar sem
gert var ráð fyrir halla upp á
47,3 milljónir en niðurstaðan
sem varð varð halli upp á
135,5 milljónir.
Vissulega stóðu margar
stofnanir sig ágætlega í því að
fara að fjárhagsáætlun á síð-
asta ári og er það fyrst og
fremst að þakka forstöðu-
mönnum og starfsfólki. Einkar
hagfellt var að gera áætlanir
fyrir árið 2003 þar sem fyrir lá
að flestir kjarasamningar væru
fastir, verðbólga reyndist vera
lág eins og spáð var og ffam-
kvæmdir á árinu vom litlar. Þá
má einnig geta þess að auð-
veldara er að hafa samþykktar
áætlanir nær raunvemleikan-
um en áður þar sem nú er
heimilt að endurskoða þær á
fjárhagsárinu en fjárhagsáætl-
unin fyrir árið 2003 var endur-
skoðuð haustið 2003.
Skuldir sveitarfélagsins
jukust á árinu 2003 úr 2600
milljónum í 2733 milljónum
eða um 133 milljónir kr. Þetta
segir þó ekki nema hálfa sög-
una þar sem handbært fé lækk-
aði um 63 milljónir á árinu, fór
úr 75 milljónum í 12 milljónir.
Á sama tíma jukust skamm-
tímaskuldir um 55 milljónir og
lánasamsetning varð því óhag-
stæðari. Allt tal sem byggir á
því að taka langtímaskuldir út
og gera samanburð milli sveit-
arfélaga með þeim einum er
því marklaust hjal. Veltufjár-
hlutfall var 0,72 en þyrfti
sennilega að vera 1,1 eða jafn-
vel 1,25 ef vel ætti að vera.
Þetta þýðir einfaldlega að reka
verður sveitarfélagið á dýrri
skammtímafjánnögnum. Þetta
sést á því að árinu 2003 var
gert ráð fyrir að vextir án verð-
bóta og gengismunar yrðu um
60 milljónir kr. þessi tala varð
hins vegar um 80 milljónir kr.
sem er þriðjungs hækkun ffá
áætlun. Bent var á fyrirséðan
lausafjárskort af fulltrúum
Framsóknarflokksins við um-
ræðu um fjárhagsáætlun, en
því miður fyrir daufúm eyrum.
Ég fúllyrði að árið 2003 var
mjög auðvelt viðureignar í
rekstri sveitarfélagsins í sam-
anburði við árið í ár þar sem
saman kemur að haldið er
Landsmót UMFÍ með þeim
ffamkvæmdum sem því fylgir
og nýjum kjarasamingum m.a.
við kennara. Fjárhagsleg
vandamál sveitarfélagsins
Skagafjarðar verða ekki leyst
með kokhreystinni einni sam-
an, til þess þarf meira. Til þess
þarf að hafa ffamtíðarsýn sem
byggir á öflugri atvinnustefúu,
nennu og þreki til að nýta þau
tækifæri sem fyrir hendi eru.
Ég bið því sveitarstjórann í
Skagafirði að hafa enn um
sinn hemil á hóli til sjálfs síns
og meirihlutans vegna árang-
urs í fjánnálum sveitarfélags-
ins.
Sigurður Árnason,
formaður Framsóknarfé-
lags Skagafjarðar og varamað-
ur i sveitarstjóm Skagafjarðar.