Feykir


Feykir - 28.07.2004, Blaðsíða 8

Feykir - 28.07.2004, Blaðsíða 8
Sterkur auglýsingamiðill ©s hej|,* « Sími: 453 6666 VlE ^EO^j^ýtElIF. Sími: 453 6622 Jón Karlsson lengst til hægri flytur ávarp við afhendingu íbúðanna sl. fimmtudag. Bjami gagnrýnir Tækifeerissjóðinn Bjami Jónsson fulltrúi Vinstri grænna í sveitarstjóm Skagafjarðar gagnrýnir fjárfest- ingarsjóðinn „Tækifæri” í grein á heimasíðu sinni á Skaga- fjordur.is. í greininni sem ber yfirskriftina „Tækifæri, til hvers?, segir Bjami: „Mikill hugur hefur verið í Skagftrðingum á síðustu árum með að efla fjölbreytt atvinnulíf í Skagafirði með ýmsum hætti. Því tók Sveitarfélagið Skaga- fjörður með myndarlegum hætti þátt í að stofha sjóð til að efla nýsköpun í atvinnulífi á Norð- urlandi ásamt sveitarfélögum og fleiri aðilum á svæðinu. Þessi sjóður hlaut nafnið Tækifæri og lagði Sveitarfélagið Skagafjörð- ur alls í sjóðinn um 16 milljón- ir. Til að byrja með átti sveitar- félagið fulltrúa í stjóm sjóðsins en honum var síðar ýtt út af öðr- um hluthöfúm og tók annar fúll- trúi Byggðastofhunar hans stað. Sjóðurinn hefúr á starfstíma sín- um ekki séð ástæðu til að styrkja nein verkefhi í Skaga- firði en hefúr á sama tíma tapað miklum fjármunum á verkefh- um i öðmm hémðum þar sem ffamlegð var reiknuð há en á- hætta vanmetin. Ekki er því ljóst hvert hrakvirði hlutabréfa Skagfirðinga er en það ætti að vera falt ef viðunandi verð fæst.” Aldraðir fá íbúðimar sínar við Sauðármýrina Ágætur reitingur á Húnaflóanum Síðasta fimmtudag rann upp stór stund sem margir eldri borgarar í Skagafirði höfðu beðið eftir, en þá vom aflientar íbúðir í blokkinni glæsilegu sem Húsnæðissam- vinnufélag Skagaljarðar lét byggjavið Sauðármýri sunnan Ábæjar. í blokkinni em 16 í- búðir, tveggja og þriggja her- bergja með sameiginlegu rými á hveijunt þriggja stigapall- anna við lyfturýmið. íbúðimar þykja mjög skemmtilegar, rúmgóðar miðað við stærð og byggingarfélagið gefúr hús- gögn í sameiginlega rýmið. Það var Krókshús félag byggingarverktaka á Sauðár- króki sem byggði húsið og var það að mestu byggt af heima- aðilum, en hönnuðir vom ffá Akureyri og fengu mikið lof fyrir sitt verk, ásamt Gísla Kristjánssyni byggingarstjóra og iðnaðarmönnunum. Það var Guðmundur Guðmunds- son sem afhenti Jóni Karlssyni formanni Húsnæðissamvinnu- félagsins lykil að húsinu, sem síðan afhenti Guðmundi Márussyni aðallyklaverði hússins lykilinn. Athöfhin hófst á því að Jón Karlsson bauð gesti velkomna og Þorbergur Jósepsson söng tvö lög við undirleik Rögn- valdar Valbergssonar. Þá flutti séra Guðbjörg Jóhannes- dóttir húsblessun. Jón Karlsson minntist fyrstu skóflustungu og undir- ritun samnings þann 17. júní 2003 en þá var nefnt að af- hending hússins færi ffam eft- ir rúmt ár, og Jón Karlsson sló því ffam að það yrði 10. júlí kl. 14. Það stóðst eins og allir samningar. Jón þakkaði öllum þeim sem komu að fram- kvæmdinni og gerði grein fyr- ir undirbúningi en áður en húsið var hannað var ákveðið að halda byggingarkosmaði og verði íbúðanna innan á- kveðinna marka. Þá gerði Guðmundur Guðmundsson grein fyrir öllum verktökum sem komu að húsinu og flutti líkt og Jón íbúununt ámaðar- óskir. Að ávörpum og tónlist lokinni þáðu gestir veitingar. Eins og undanfarin sumur eru margir smábátar sem gera út frá Skagaströnd. Þeir hafa verið óvenju margir núna tvö síðustu surnrin eftir sérstaklega góða veiði í hitteðfyrra, en þá var fiskgengd með afbrigðum góð á Húnaflóa. Að sögn Lárusar Ægis Guð- mundssonar hjá fiskmarkaðnum á Skagaströnd hefúr verið góður reitingur og bátamir verið að fá þetta ffá hálfú öðm tonni upp í þijú yfir daginn. Mikið er um að þetta séu sömu bátamir sem koma ár eftir ár, langmest em þetta dragróðra bátar á fæmm, sem koma til að stunda sínar veiðar nálægt fiskimiðunum yfir besta árstímann í júlí og á- gúst. Láms segir magnið sem berst á land sé svona svipað og það var í fyrra og sumarið þar áður. Þetta séu í kringum 30 bát- ar sem leggja upp. Flísar - flotgólf múrviðgerðarefni AðalsteinnJ. Maríusson Sími: 453 5591 853 0391 893 0391 Sparisjóður Hólahrepps Þrettán sóttu um Þrettán umsóknir bámst um starf sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Hólahrepps, en umsóknarffestur rann út fyrir tveimur vikum. Beðið er þess að Magnús Brandsson stjómarformaður komi úr sumarfrii og verður þá gengið í að meta umsóknir, en allir umsækjendur óskuðu nafnleyndar. tnvnta trvrrmnrramiðstnðin :: kodakexnress :: bækur oaritföna :: 1 •Ú z z jósritunílit :: gormar og plöstun :: fleira og fleira ] J — 3 X 3 3 : bókabúðin ^ BÓKABÚÐ 1 BRYNcJABS BÓKABÚÐ BRYNJARS KAUPANGSTORGI 1 550 SAUÐÁRKRÓKUR SlMI 453 5950 FAX 453 5661 bokabud@skagafjordur.com - -fyM’jr aiia í •rjoisMldunnj!

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.