Feykir - 27.10.2004, Page 3
37/2004 Feykir 3
Pistill eftir Önnu Dóru Antonsdóttur
Skatastaðavirkjun líka
Hitti á dögunum ungan Skagfiröing á förnum vegi. Við tókum tal saman
um lífið og tilveruna, staðinn, stundina, heimahagana og talið barst
óhjákvæmilega að Vötnunum. Hvaða Skagfirðing hittir þú yfirleitt, á
heimaslóð eða fjarri heimkynnum, sem ekki talar um Vötnin. Hvernig er
veiðin? Er lágt eða hátt í? Eru vötnin komin á, eru þau komin af? Hvernig
er liturinn? Syngur hátt í þeim í dag?
Vötnin eru Skagafjörður.
-En ef þeir fiflast til að stífla,
hvað verður þá um Eylendið?
sagði ungi maðurinn og fannst
hann komast vel að orði. Mér
fannst það líka og varð hugsi,
ef þeir fíflast til að stífla. Hvað
gerist þá?
Samkvæmt okkar laga-
bálkum ber að láta fara fram
umhverfismat um þýðingu
þess að spilla náttúrunni? Við
vitum þess nýleg dæmi að einn
ráðherra getur umsnúið mati
umhverfisstofiiunar sér í hag.
Og það er ekki endilega hagur
náttúrunnar eða umhverfisins.
Ekki endilega.
En ffiðun Austara-eylend-
isins í Skagafirði er á borði
umhvefisráðherra. Friðun
þýðir væntanlega að ekki er
hægt að fara í stórvirkjanir á
svæðinu. Ekki er hægt að friða
með annarri hendi og spilla
með hinni. Friðun merkir ekki
takmörkun á eignarrétti held-
ur, að ekki má lengur eyði-
leggja, í þessu tilfelli votlendið
meðfram Héraðsvötnum og
líffíkið sem þar dafiiar. Ekki
má taka þá áhættu að
ósasvæðunum verði stefnt í
voða og þar með líffíki sjávar á
Skagafirðinum. Friðun er í
mínum huga þetta. Það má
sem sagt ekki eyðileggja
Vötnin.
Hvers verður minnst frá
aldamótum 2000 á íslandi effir
50 ár, eða 100 ár? Munu menn
velta fyrir sér fjölmiðlafárinu
sem skall á sumarið 2004? Nei,
varla nema þá nokkrir ryk-
fallnir sagnfræðingar. En verð-
ur munað eftir Kárahnjúkum
og Skatastöðum í Skagafirði?
Já, því að þar verða bauta-
steinar um skammsýni og
heimsku mannanna. Ef ekki
verður af heimskunni látið.
Er svo heimskulegt að vilja
græða, spyr einhver. Það eru
meginrök ráðamanna að hagn-
aðurinn sé svo mikill, ísland
verði svo ríkt. Jæja, fyrir þrem-
ur árum setti undirrituð fram
tölur frá árinu 1999, fengnar úr
Mbl.-grein eftir Magnús
Thoroddsen. Þær tölur hefur
enginn véfengt og verða þær
dregnar hér fram að nýju.
Stóriðjan notaði 63,5 %
raforkuframleiðslunnar þá og
greiddi kr. 0,90 á kílówattstund
en aðrir notuðu 35,5 % heild-
arorkunnar og greiddu kr. 5,15
fyrir kílówattstundina (Mbl.
24. júlí 2001). Enda er það svo
að fáir sjá þennan rnikla gróða
sem sífellt er talað um. Hefur
Landsvirkjun til dæmis greitt
niður erlendar skuldir okkar
eins og Norðmenn létu olíuna
gera. Nei, þvert á móti,
Landsvirkjun safnar erlendum
skuldum sem ákafast. Lands-
virkjun er sem sagt ekki rekin
með hagnaði sem skilar sér í
ríkiskassann, okkur skattgreið-
endum til góða. Ekki einu
sinni eldri virkjanirnar sem
ættu að vera afskrifaðar og
mala gull, afrakstur þeirra fer í
hítina.
í Feyki 28. apríl s.l. er vitnað
í orð Þórólfs Gíslasonar
kaupfélagsstjóra á Sauðárkróki
þar sem hann ræðir virkjanir
við Villinganes og Skatastaði
og segir m.a.: „Auk þess sem
virkjun myndi lækka
orkukostnað til almennings í
landinu." Hér með er lýst eftir
þeim sem séð hefur lækkandi
orkureikninga í kjölfar stór-
virkjana.
Stórvirkjun á borð við
Skatastaðvirkjun kallar að
sjálfsögðu á álver. Það er svo
sjálfsagt að ráðamönnum
finnst varla lengur taka þvf að
segja þetta upphátt. Og
iðnaðarráðherra talar við
Skagfirðinga eins og lítil börn:
-Ykkur var nær, þið hefðuð átt
að sýna álveri meiri áhuga. Það
er þetta með áhugann á
álverum, rafskautaverksmiðj-
um og annarri stóriðju, hann
fer þverrandi. Við getum ekki
haft áhuga á ferðamennsku og
auglýst Island sem ferða-
mannaparadís og á sama tíma
eyðilagt hveija náttúruperluna
á fætur annarri. Héraðsvötn
eru náttúruperla.
Stundum, nú síðast í
nýlegum umræðu um
lýðræðið á ráðstefnu Hí og
Mbl., hefur komið fram sú
kenning að stjórnmálamenn
séu innilokuð stétt. Þeir sitji í
sínum ranni, sínum
Babelsturni yfir sínum
áhugamálum og heyri alls ekki
hvað fólkið segir. Heyri ekki þá
umræðu sem fram fer í
kringum þá, einangrunin er
svo pottþétt. Getur þetta verið
tilfellið? Andstaða við stór-
virkjanir og meiri stóriðju fer
vaxandi, fáir ef nokkur vill
álver í hvern fjörð á íslandi en
valdamenn grúfa sig bara
betur yfir sitt og keyra málin
áffarn.
Hið alvarlega í umræðunni
um virkjunarmál í Skagafirði
er þetta: Villinganesvirkjun er
þegar búin að fara í gegnum
umhverfismat. Ef Villinganes
fer inn á skipulag Skagafjarðar
þá er leiðin greið, Rarik og co.
getur komið daginn eftir og
byrjað að sprengja. Skata-
staðavirkjun á lengra í land en
kvörnin malar.
Ég skora á fólk að hugsa
þessi mál og hugsa upphátt.
Hugsa t.d. um hvort það vill
uppistöðulón í Bugum, álver
við Kolkuós, Austurdal með
tveimur stöðvarhúsum svo
eitthvað sé nefnt. Ég sendi
boltann til Valgeirs Kárasonar
á Sauðárkróki og skora á hann
að láta í sér heyra og koma
fram með sín sjónarmið í
þessu máli.
Anna Dóra Antonsdóttir
Höfundur er kennari
og rithöfundur í Reykjavík
ÍJBS^u Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki
Stml: <55 4000 - Símbréf: <t55 4010-pó»thólf:20
Frá Heilbrigiisstolnuninni
Sérfræiikomur í nóvember
Viko Nofn sérfræðings
45 Fdvard Kiernan
46 Haraldur Haultsson
41 SigurSur Albertsson
48
49 Anna Helgadóttir
50 Bjarki Karlsson
TÍMAPAHTAHIK Í SÍMA 455 4022
Sérgrein
(kvensjúkdómalæknirl
(æia- og alm. skurdlæknirl
(alm skurðlæknir)
(þ vagfæralæknir)
(kvensjúkdómalæknir)
(bæklunarlæknir)
Könnmin
Hvernig endist meirihluta-
samstarf Vinstri grænna og
Sjálfstæðisflokks í
Sveitarfélaginu Skagafirði?
Það endist allt til loka
kjörtímabilisinsl (41.7%)
Það springur á næstu dögum!
(36.3%)
Það eru nokkrir mánuðir í
meirihlutanum enn - nýr meiri-
hluti verður þó tekinn við með
vorinu! (22.1%)
Hægt er að taka þátt I könnunum sem
birtast i Feyki með þvi að fara inn á
heimasiðuna Skagafjörður.com og
kjósa þar.
Æskilegt er að hver aðili kjósi aðeins
einu sinni en itrekað skal að könnunin
er meira til gamans og taka skal
niðurstöðurnar með nokkrum fyrirvara.
I^ofar
Hvenær opnar skíða-
svæðið í Stólnum?
Feykir hafði sambandi við Viggö
Jónsson umsjónarmann skíðasvæðis
í Tindastólnum og spurði hvort ekki
ætti að opna skíðasvæðið á næst-
unni, en nokkuð hefur snjóað síð-
ustu daga.
Viggó sagði enn þó nokkuð í að hægt
verði að opna lyftuna enda rétt
kominn þúfnafyllir af snjó.
Skíðasvæðið var opnað í desember í
fyrra og var síðast notað um Hvíta-
sunnuhelgina þegar skíðalandsliðið
æfði í Stólnum. Viggó sagðist
ánægður með síðasta vetur, svæðið
var opið 73 daga og á sjöunda
þúsund gestir skiðuðu á svæðinu.
Miðað við veðrið síðustu daga segir
Viggó að skíðamenn geti farið aö
undirbúa veturinn, skerpt á skíð-
unum og borið á.
Sölvi í Versló
Verzlunarskóla Islands hcfur ráðið
Króksarann Sölva Sveinsson,
núverandi skólameistara Fjölbrauta-
skólans við Ármúla, í starf skóla-
stjóra Vl. Sölvi mun taka til starfa
við skólann innan skamms og í
fyrstu vinna nteð afmælisnefnd
skólans sem nú er að hetja störf
vegna 100 ára afmælis Vl á næsta ári.
Skjárl á Hvammstanga
Það styttist óðum í að sjónvarps-
stöðin Skjár I komi til Hvamms-
tanga. Hins og mörgum er kunnugt,
hóf lítill áhugahópur söfnun fyrir
sendum til að ná útsendingu Skjás
eins. F.n þegar söfnuninni var rétt
ólokið, keypti Síminn útsendingar-
réttinn á Enska boltanum og
Ijórðungshlut í fyrirtækinu.
I fréttatilkynningu sem gefin var út
nýlega, var gefið grænt Ijós á frekari
dreifingu Skjás eins og verður
Hvammstangi með í þcim át'anga.
Heimild: forsvar.is