Feykir


Feykir - 02.02.2005, Side 4

Feykir - 02.02.2005, Side 4
4 Feykir 05/2005 Stíflan sjálf er gríðarlegt mannvirki. Hún er steinsteypt i miðjunni og til að styrkja hana gengur steypan langt inn í bergið sitt hvoru meginn. Innangengt verður í stífluna. Feykir fer austur Kárahnjúkar heimsóttir Tíðindamenn Feykis fóru á dögunum í skoðunarferð um virkjana- svæðið við Kárahnjúka. Veður var bjart og stillt en frostið nálægt 20 stigum. Skoðað var stíflustæðið við Fremri Kárahnjúk og vinnu- búðir og starfsmannaaðstaða hjá Impregilo, þar sem verka- menn víða að úr heiminum vinna allan sólarhringinn á vöktum. Fram kom í máli leiðsögu- rnanna að flestir erlendu verkamannanna starfa 2-5 mánuði og hverfa þá af landi brott. Nokkur hópur tekur sér einungis frí og kemur hingað aftur. Þá var einnig komið við á vinnusvæði Fossafls (Istak og fleiri), sem hafa nú lokið við að sprengja stöðvarhús og þrenn frárennslisgöng og að auki 600 metra lóðrétt fall- göng í fjallinu fyrir ofan Valþjófsstað á Héraði. Þetta er stærstu einstöku framkvæmd- ir íslandssögunnar en látum myndirnar, sem Georg K. Lárusson tók, tala sínu máli. Stærsti kjaftur á íslandi? Ritstjóri Feykis virðir fyrir sér öflugustu beltagröfu landsins, sem er ættuð úr smiðju Caterpillar. Skóflukjafturlnn getur tekið 60 tonn íeinu. Arni Gunnarsson ritstjóri Feykis ásamt Elsu Albertsdóttur forstöðukonu Fjöl- menningarseturs á Isafirði. Menn voru íbasli með steypuvinnu, m.a. vegna þess að frostið var of mikið fyrir síló og færibönd. Impregilo-samfélagið á hálendinu erað mestu sjálfu sér nægt og þurfa starfsmenn lítið að leita til byggða. Hér sést heilsugæslan og sjúkrabíll sem þjónar henni. Hér erum við komin inn í borinn sem meðal annars er notaður er til að bora frárennslisgöng frá lóninu að fallgöngunum að stöðvarhúsinu. Þar voru Kínverjar að vinna og létu vel afsér enda hálaunamenn t heimalandinu. A Kárahnjúkum er rekin nýlenduvöruverslun. Vöruúrval er talsvert ogað sögn þeirra sem til þekkja er verðið afar hagstætt.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.