Feykir


Feykir - 30.03.2005, Blaðsíða 4

Feykir - 30.03.2005, Blaðsíða 4
4 Feykir 12/2005 r .L_< I I I 1 * BOLFISKVINNSLA : FLÖKUN : LAUSFRYSTING : PÖKKUN : ÞURRKUN Framtíöaratvinna FISK Seafood landvinnsla á Sauóárkróki getur bætt viö sig fólki í almenn fiskvinnslustörf, um framtíöarstórf er aö ræóa. Upplýsingar gefur Tómas Árdal á staðnum eða í síma 455-4411 Sauðárkrókur LANDVINNSLA Utboð Skagafjarðarveitur ehf. óska eftir tilboðum í vinnu við lögn hitaveitulagna í Akrahrepp frá Ytri-Brekkum að Uppsölum og við Varmahlíð frá gasskilju á Reykjarhól að Grófargili. Um er að ræða foreinangraðar stálpípur í stofn- lögnum, stærðir DN 65-DN 125, allsum 17,7 km, foreinangraðar plastpipur í stofnlögnum, stærðir 50 - 63 mm alls um 11 km og foreinangraðar plastpípur í heimtaugum, stærðir 28-40 mm alls um 14,2 km. Á árinu 2005 skal Ijúka lögn við Varmahlíð fyrir 1. september, 14,6 km af stállögninni og 16,7 km af plastlögninni fyrir 15. nóvember. Verkinu skal að fullu lokið 1. ágúst 2006. Heimilt er að Ijúka verkinu á árinu 2005. Einnig er óskað sérstaklega eftir verði í lagningu ídráttarröra fyrir Ijósleiðara með hitaveitulögninni. Útboðsgögn verða seld á kr. 8.000 hjá Stoð ehf. verkfræðistofu, Aðalgötu 21 Sauðárkróki frá og með þriðjudeginum 29. mars 2005. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Skagafjarðarveitna ehf. Borgarteigi 15 Sauðárkróki. kl. 11.00 þriðjudaginn 12. apríl 2005. Veitustjóri kv SKAGAFJARÐARVEITUR<rt Rauði krossinn vinnur að uppbyggingu í samvinnu við heimamenn í Mósambik. Ferð Norðurlandsdeildar Rauða kross íslands til Mósambík Mikil þörf fyrir aðstoð Nú í mars fóru sjálfboðaliðar úr Rauöa kross deildum á Norðurlandi til Mósambik ásamt tveimur starfsmönnum Aöalskrifstofu, sem voru Norðlendingunum til halds og trausts. Lagt var af stað af stað 11. mars og áætlað var að koma til baka þann 20. mars. Hópinn skipuðu Lára Ellingsen og Hafsteinn Jakobsson ffá Akureyrardeild, Katrín María Andrésdóttir ffá Skagatjarð- ardeild og Guðný Björnsdóttir og Gestur Hrólfsson frá Aðalskrifstofu Rauða kross íslands Verkefni af þessum toga eru áhugaverð enda byggir sam- starfið á því að miðla þekkingu og reynslu milli svæða. „Óhætt er að segja að full þörf sé fyrir aðstoð Rauða krossins í Mósambik,”segir Katrín María Andrésdóttir. „Meira en helmingur þjóð- arinnar lifir undir fátæktar- mörkum, ungbarnadauði er með því mesta sem gerist og um fjórðungur barna undir fimm ára aldri er vannærður. Nokkur batamerki má þó sjá á efnahag landsins þar sem stjórnvöld hafa sett metn- aðarfulla stefnu í uppbyggingu samfélagsins eftir borgarstyrj- öld og náttúruhamfarir síðustu áratuga. Af tæplega 19 millj- ónum íbúa Mósambik voru unr 13% skráðir smitaðir af HIV veirunni árið 2003 og slæmt aðgengi að heilsugæslu." / höfuðstöðvum deildarinnar i Maputo. Katrín María þriðja frá vinstri. I Mósambík er almenn fátækt og hýbýli fábrotin. í Catempe heimsóttu íslensku Rauða kross félagarnir grunnskóla.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.