Feykir - 27.04.2005, Blaðsíða 7
16/2005 Feykir 7
Guðmundur I/altýsson skrifar_
Vísnaþáttur 404
Heilir og sælir lesendur góðir.
Byrja skal að þessu sinni með
hressilegri vísu sem margir trúlega
kunna og er hér í Húnaþingi tengd
fyrri tíma. Man ekki fyrir víst hver
muni vera höfundur.
Með óstöðvandi orðadyn
öslará hundavaði.
Þettafrœga kjaftakyn
kennt við Guðlaugsstaði.
I framhaldi af þessu er gaman að
rifja næst upp vísu sem mun hafa
verið ort á Selfossi um 1990. Hafði
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
verið fenginn til þess að ílytja ræðu
þar á samkomu og að lokinni hen-
ni ntun Jóhannes Sigmundsson í
Syðra-Langholti hafa ort svo.
Frjálshyggjunar fremsta vini
færðu menn hér blendið hrós.
Að hann sé afkjaftakyni
kom hér mœta vel í Ijós.
Til er frásögn af Ingvari Gísla-
syni, fyrrverandi alþingismanni og
ráðherra, er hann ók um Svínvet-
ningabraut. Er hann ók niður að
Blöndubrúnni og hafði Ytri Lön-
gumýri á vinstri hönd, varð eftir-
farandi vísa til.
Gekk að föngum, hlöðurhlóð,
hlakkar í svöngu dýri.
Býr við öngvan barningsmóð
Björn á Löngumýri.
lega vera eftir Kára í Valadal og
yrkir hann þar í orðastað samfer-
ðamanns á lífsleiðinni.
Áður stundum tók ég törn
tvistaði þœr aðframan.
Út ogsuður átti börn
en hvað það vargaman.
Urn bónda í Skagafirði, Ragnar
Öfeigsson, orti Kári.
Aldrei verðurýtt til baka
enda stofhinn bœndaval.
Harðurer í horn að taka
höldurinn í Svartárdal.
Um par sem var um tíma samferða
á lífsleiðinni yrkir Kári svo.
Áður var hún eftirlát
ástar reisþá bára.
Karlinn bráðum kominn í mát
konan 50 ára.
Gaman er á eftir þessum glettum
að heyra frá Höskuldi Einarssyni
frá Vatnshorni. Hefur hann trúlega
verið að glettast við vin sinn Brúna
Sigga er hann orti svo.
Ýmsir hata andstœðinga
oft var hrekkjum beitt.
Égvil hata Húnvetninga
heldur en ekki neitt.
Á betri degi mun Höskuldur hafa
ort þessa og þá trúlega til vinar síns
Sigurðar Jónssonar frá Brún.
Ljóst var Ingvari að Höllustaðir Að mérþóknistþetta og hitt
væru þá trúlega hægra meginn við það er misskilningur.
brúna og í áttina þangað var næsta Þó mérgeti stundir stytt
vísa send. stöku Húnvetningur.
Verði snjöllum vandi íför
vaxi spjöll tneð sköðutn.
Þá við öllu þekkja svör
þeir á Höllustöðum.
Áður en hætt verður þessu gríni er
garnan að rifja upp eina limru, sem
mun einhverju sinni hafa birtst í
Morgunblaðinu, um þessa öflugu
ætt. Veit ég ekki um höfund hennar.
Sá snjalli Þormóður Pálsson frá
Njálsstöðum yrkir svo.
Slóðir mást og tnitming dvín,
margt hið liðna gleymist,
en gatnla smalaþúfan þín
þartta lengi geymist.
Önnur vísa kemur hér eftir Þor-
móð.
/ Morgunblaði fékk ég
fréttir litið.
Áfjöllum ttyrðra vœri
of tnikið bitið,
ett sumir rexa þó
og segja að gras sé ttóg,
þaðgengur úrsér
Guðlaugsstaðavitið.
Þá langar mig til að leita til lesenda
með upplýsingar um næstu vísu. í
góðu spjalli sem ég átti við einn af
lesendum þáttarins taldi hann um-
rædda vísu eftir Kára frá Valadal.
Ekki get ég fallist á það að svo stöd-
du, þó ég geti ekki munað fyrir víst
hver höfundur hennar er. Bið ég
lesendur um að gefa mér upplýs-
ingar þar um viti þeir betur.
Vildi ellin aftursnúa
æsku kytttta til,
yrðiflestum breitt að brtia
bláan tímans hyl.
Gaman er að enda að þessu sinni
með því að leita til hins kunna
Skagfirðings, Stefáns Vagnssonar,
með loka vísurnar.
Svalan teygum sopatt vér
sáttir í veigum góðum.
Ólund feig er inni hér
yfirfleigum Ijóðum.
Heim ég vendi vinumfrá
þó vínitt brend eiflýji.
En hvenœr lendi ég aftur á
öðru eins kenderíi?
Bakkus kallinn gleði gaf Verið þar með sæl að sinni.
afgnægð þarf varla að spyrja.
Núferað halla norðurafl
nú má svallið byrja.
Næsta vísa ntun nokkuð örugg-
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi.
S: 452-7154.
íþróttafréttir
16 þéttskipuð lið mættu til leiks
Molduxamótið
klikkaði ekki
Hið eiturmagnaða
Molduxamót 2005 fór
fram sl. laugardag en 16
þéttskipuð lið mættu til
leiks, 10 karlalið og 6
kvennalið.
Molduxar voru sperrtir
með hvernig til tókst þó svo
að frammistaða þeirra sjálfra
hafi verið óvenju hógvær.
Ekki var annað að sjá og heyra
en þátttakendur hafi skemmt
sér hið besta og hlakkað til
kvöldvökunnar.
Óttar Bjarnason - Molduxi
nr. 1 - tjáði sk.com það að
Molduxar yrðu að gera sér
það að góðu að tapa
kappleikjunum í dag en
Hart barist á Molduxamóti 2005.
ætluðu sér sigur á
dansleiknum í kvöld.
Það lið sem kom lengst
að til að taka þátt í mótinu
kont frá Árósum.
Hestaíþróttir
Skeifudag-
ur á Hólum
Keppnin um Mor-
gunblaðsskeifuna
fór fram á Hólum um
síðustu helgi.
Úrslit urðu þau að Jak-
ob Víðir Kristjánsson frá
Stóradal í Húnavatnssýslu
varð þriðji á hestinum kætti
frá Hólum, í öðru sæti varð
Barbara Wenzl fi'á Austur-
ríki á hestinum Grásteini frá
Æsustöðum, en sigurvegari
varð Hrefita María Óniars-
dóttir frá Reykjavík á Zorró
með einkunnina 9,09.
Var það álit dómara og
áhorfenda að hópurinn sent
tók þátt í fjórgangskeppnin-
ni á útisvæðinu við reiðhöll
Hólaskóla hafi verið óvenju
glæsilegur að þessu sinni.
Guðný Sif Gunnarsdóttir og Gunnar Birgisson.
Andrésar andar-leikarnir á Akureyri_
Gott mót hjá
Tindastólskrökkum
Deildarbikar KSI
Stólarnir
settu 4
HjáKS
Tindastóll lauk
þátttöku í Deildar-
bikar KSÍ með stæl
þegar þeir völtuðu
yfir lið KS frá Siglu-
firði í Boganum á
laugardaginn.
Stólarnir sigruðu 4-0 og
náðu þar með KS að stigum
en voru með talsvert betra
markahlutfall og hrepptu
því fjórða sætið.
Hvöt tapaði öllum
leikjum sínum á mótinu og
lutu í gemgras um helgina
þegar Leiftur/Dalvík sigraði
Hvöt 2-0 og komu mörkin
seint í leiknum.
Dregið í bikarnum
Dregið hefur verið í VISA-
bikarkeppni KSI. Neisti
Hofsósi fær Reyni Ár-
skógsströnd í heimsókn,
Hvöt mætir Magna Gren-
ivík á Blönduósi og Tin-
dastóll mætir 1. deildar liði
KS frá Siglufirði og verður
leikið á Króknum.
Það var einvalalið sem
fórfrá skíðadeild Umf.
Tindastóls á Andrésar
andar-leikana sem
fram fóru á Akureyri á
dögunum.
Allir koinu heilir heim
og voru tvö gull og eitt silfur
með í farteskinu. Stemning-
in á Akureyri var frábær og
nóg um að vera. Þó hefur
heyrst að það hefði mátt
vera meiri snjór en einhverj-
ir gárungarnir höfðu á orði
að krakkarnir hefðu þurft
að renna sér á öðru skíðinu
fyrri ferðina og hinu þá
seinni.
Það var Gunnar Birgis-
son sem sigraði í sínum
aldursflokki í göngu nteð
hefðbundinni aðferð og frj-
álsri. Þá renndi Guðný Sif
Gunnarsdóttir sér í silfur-
sæti í stórsvigi 8 ára stúlkna.
Glæsilegur árangur hjá þessu
unga íþróttafólki og góður
endir á vetrarstarfinu.
smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til trírrar birtingar á feykir@krokur.is
í óskilum Jakkaskipti urðu á Löngumýri síðasta spiladag fyrir páska, 22. mars. Ég kom heim með Ijós- drapplitaðan jakka með nælu í öðru kragahorninu. Vantarminn sem einnig er drapplitaður. Upplýsingar i síma: 453-5414, Kristín. Tapað - fundið Um páskahelgina hurfu sundföt heillar fjölskyldu afsnúru við Freyjugötu 42. Ef einhver hefur orðið þeirra var, vinsamlegast skilið þeim á sama stað eða hringið í síma 847 8437 Bíll til sölu Til sölu Nissan Patrol Luxury Árgerð 200133 dekk kastaragrind ofl. Upplýsingar í S:89IB234