Feykir - 15.06.2005, Blaðsíða 7
23/2005 Feykir 7
Árgangur: 1973.
Fjölskylduhagir: Alveg bærilegir,
takk.
Starf/nám: Er að berjast við að klára
verkfræðina í Tækniháskólanum í
Lyngby.
Hestöfl: Það eru almenningssam-
göngurnar sem ráða. Og tveir jafn-
fljótir.
Hvað er í deiglunni: Klára lokaverk-
efnið. Og U2 íjúlí. Tóm gleði.
Hvernig hefurðuþað?
Djöfull góður.
Hvernig nemandi varstu?
Ég var líklega betri nemandi en ég
er nú.
Hvað er eftirminnilegast frá fermin-
gardeginum?
Ég man satt að segja ekkert alltof
mikið eftirþeim ágæta degi.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðirstór?
Úff... örugglega lögga eða flug-
maður, eða eitthvað i þeim stílnum.
Ég er reyndar enn að reyna að
ákveða þetta.
Hvað hræðistu mest?
Þessa stundina hefég nokkraráhyg-
gjur afþví hvaða mynd þið ætlið yk-
kur að setja með þessum spurnin-
gum.
Hver var fyrsta platan sem þú keyp-
tir (eða besta)?
Fyrsta platan sem ég keypti var Love
over Gold með Dire Straits. Hún er
líklega enn ein afþeim bestu sem ég
hef verslað um dagana.
Hvaða lag ertu líklegastur til að
syngja í Kareókí?
Tja.. hér er af nógu að taka. Ætli
maður segi ekki Ticket to Ride með
Bítlunum.
Hverju missirðu helst ekki afí sjón-
varpinu (fyrir utan fréttir)?
Ameríska fótboltanum og Myth-
busters á Discovery. Mythbusters-
þættirnir eru algjör snilld.
Besta bíómyndin?
Lord of the Rings myndirnar eru
býsna góðar. Svo erauðvitað gaman
að horfa á Blair Witch Project með
Pétri.
Bruce Willis eða George Clooney
/Angelina Jolie eða Gwyneth Pal-
trow?
Clooney og Jolie.
Hvað fer helst í innkaupakörf-una
sem ekki erskrifað á tossamiðann?
Það er án efa snakk.
Hvað er ímorgunmatinn?
Svona 1/2 líter afkaffi. Hollt og gott.
Uppálialds málsháttur?
Morgunstund gefurgullí mund.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar
mesttil þín?
Garfield, ekki spurning.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhú-
sinu?
Að vera ekki fyrir.
Hver er uppáhalds bókin þín?
Erfitt val, en Round Ireland with a
Fridge er býsna eftirminnileg.
Efþú gætir lioppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu...
...annaðhvort í sól og sumaryl eða
heim að heilsa uppá vini og vanda-
menn.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari þínu?
Þrjóska.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra?
Hroki er afar hvimleiður.
Enski boltinn - hvaða lið og af
hverju?
Arsenal, hvurs konar spurning er
þetta? Byrjaði að halda með þeim
fyrir c.a. 12 árum þegar Óli Arnar
tróð liðinu uppá mig. Það var hið
besta mál þar sem Nallarnir eru
langflottastir.
Hvaða íþróttamanni / dómara hef-
urðu mestar mætur á ?
Mínir uppáhaldsíþróttamenn eru
reyndar báðir hættir, en það eru
þeir Chris Mullin og Tony Adams.
Af dómurum er engin spurning
að Róbert Óttarsson hefur mikinn
karakter og ber af.
Sverrir Stormsker eða Kim Larsen ?
Stormsker. Þarsem við Nökkvi Már
Jónsson spiluðum eittsinn pool við
kappann. Það varmergjaðurleikur.
Hver var mikilvægasta persóna 20.
aldarinnar að þínu mati?
Það hafði líklega enginn jafnmikil
áhrif á öldina eins og Hitler. Því
miður.
Ef þú ættir að dvelja aleinn á
eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu
meðþér?
Gítarinn, golfsett og sólarvörn.
Hvað er best í heimi?
Veit ekki með best í heimi, en það
er ágætt að setjast á Nýhöfn á
föstudegi og slappa af með einn
kaldann.
Hvað er danskt?
Fólk á hjóli.
Uppáhalds flögur?
Maruud maður.
íþróttafréttir
Meistaramót íslands í fjölþraut
Vel heppnað mót
Fyrsta Meistaramót
sumarsins í frjálsíþrótt-
um fór fram á Sauðár-
króki um helgina, en það
var MÍ í fjölþrautum og
lengri boðhlaupum.
69 keppendur frá 12
félögum og héraðssam-
böndum voru skráðir til
leiks. Sjö karlar kepptu um
titilinn í tugþraut og þar bar
Jónas Hlynur Hallgrímsson
sigur úr bítum, hlaut samtals
6638 stig. í sjöþraut kvenna
voru níu skráðar til leiks en
þar sigraði Kristín Birna
Ólafsdóttir, hlaut samtals
4922 stig.
Einnig fór frarn MÍ í
tugþraut sveina, drengja og
sjöþraut rneyja. Sveinn Elías
Elíasson úr Fjölni vann
öruggan sigur í tugþraut
sveina 15-16 ára og bætti
eigið met í sveinaflokki um
tæplega 800 stig, bætti
árangur sinn í öllum
greinum og hlaut 6983 stig.
FH ingar sigruðu bæði
3x800m kvenna og 4x800m
karla. I 4x800m boðhlaupi
karla var A-sveit FH tæplega
sekúndu á undan heima-
ntönnum í UMSS.
Þá var keppt í 3xl500nt
kvenna og 4xl500m karla og
þar sigraði kvennasveit
Fjölnis en UMSS sigraði í
karlaboðhlaupinu á 17:26,78
mínútum.
Frá keppni i langstökki á Meistaramóti Islands i fjölþraut um helgina.
Knattspyrna 2. deild
Jafnt á Króknum
Tindastóll og Mjarðvík
skildu jöfn á Króknum í
kvöld í 2. deildinni í
fótbolta, hvort lið
skoraði eitt mark.
Njarðvíkingar hófú leik
með vindinn í bakið, sóttu
talsvert til að byrja með án
þess þó að skapa sér færi.
Njarðvíkingar skoruðu ágætt
mark á 31. rnínútu en þar
var á ferðinni Michael
Jónsson. Eftir markið sóttu
Tindastólsmenn stíft en
náðu ekki að skora þrátt fyrir
ágætar sóknir. 0-1 í hálfleik.
Síðari hálfleikur byrjaði
rólega en á 65 mínútu fengu
Stólarnir hornspyrnu.
Markverði Njarðvíkinga
mistókst að handsama
boltann og Bjarki Árnason
kom boltanum í rnarkið og
fagnaði fagmannlega. Eftir
markið sóttu Njarðvíkingar
í sig veðrið en sanngjörn
úrslit leiksins sem fyrr segir
jafntefli, 1-1.
Yngri knattspyrnumenn á móti á Blönduósi
Smábæjarleikamir
Sportmolar___________
Stólarnir með
lið í 1. deild?
Mál virðast vera
að skýrast nokkuð
varðandi þátttöku
Tindastóls í 1. deild-
inni í körfuknattleik
næsta vetur.
Þátttökutilkynning var send
til KKÍ tímanlega og því
stefirt að fullu starfi á kom-
andi tímabili.
Þrautinni frestað
FimmtarþrautarmótiUMSS
sem auglýst var að frant færi
þann 17. júní næstkomandi
liefur verið frestað og fer það
fram föstudaginn 15. júlí og
hefst ld. 20.
Húnahornið segir frá
því að Smábæjarleik-
arnir í knattspyrnu voru
haldnir á Blönduósi í
annað sinn nú um
helgina.
Vel tókst til við mótshald
og knattspyrnudeild Hvatar
má vera stolt af góðu móti.
Tæplega 300 keppendur
mættu til leiks frá 9 félögum,
en Austur-Húnvetningar
léku sameinaðir í nafni
Hvatar í nokkrum flokkum.
Til leiks mættu knatt-
spyrnulið yngri aldurs-
flokka, bæði stúlkna og
pilta, frá sjö sveitarfélögum
víða að af landinu. Félögin
sem sendu þátttakendur að
þessu sinni voru Kormákur,
Bolungarvík, Smárinn,
Tindastóll, KS og Haukar.
Að þessu sinni léku veðrið
við keppendur og mótshald-
ara og þurfti ekki að flýja inn í
húsmeðverðlaunaafhendingu
líkt og í fyrra.
Myndina tók Jón Sigurðsson.
smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
Til sölu Toyota Rav árgerð 1996, ekinn 115 þús. kilómetra, beinskiptur, litur blár. Sumar- og vetrardekk. Vel með farinn bíll á góðu verði efsamið erstrax. Upplýsingar í síma 822 1144 og 4535392. Fuglabúr fyrír lítið Fuglabúr fæst fyrir litið. Upplýsingar ísíma 893 5428. Herbalife Viltu: léttast-þyngjast-auka orku- byggja upp-bæta líðan?? Fullkomin innri- sem ytri næring. Hafðu samband, Sigrún Baldursdóttir Sjálfstæður dreifingaraðlli Herbalife www.heilsufrettir.is/sigrunb Simi 4536182/ 8220809