Feykir


Feykir - 29.06.2005, Side 1

Feykir - 29.06.2005, Side 1
'*yífí' ✓ Ibúðalánasjóður www.ibudalan.is Ferðamenn í Tjarnarhólma Mynd: Sveinn Guðmundsson jr. Lögreglan á Blönduósi og á Sauðárkróki Taka þátt í sérstöku átaki gegn hraðakstri Lögreglan á Blönduósi og á Sauðárkróki eru þátt- takendur í miklu samstarfsverkefni á vegum embættis Ríkislögreglustjóra og Samgönguráðu- neytisins um bætta umferðamenningu, en fyrir tæplega ári síðan kynnti samgönguráðherra aðgerða- áætlun í umferðaröryggismálum undir yfirskriftinni „Breytum þessu". Mun sérstakt átak vera í gangi sem nær frá Hvolsvelli í suðri vestur og austur um til Húsavíkur, þar sem sér- staklega verður tekið á hraðakstri en einnig almenn- um umferðalagabrotum með áherslu á svokallað „eye- witness”, þar sent stuðst er við upptökur úr löggæslu- myndavélum. Af þessu tilefni mun Lögreglan á Sauðárkróki fá sína fyrstu löggæslu- myndavél til afnota og Lögreglan á Blönduósi fær aðra. I næstu viku kemur síðan til framkvæmda ein þeirra aðgerða sent samgönguráð- herra hefur boðað, þegar fyrsta leiðbeinandi hraða- skiltið verður aflrjúpað. í framhaldinu mun Vegagerðin annast uppsetningu skilta með leiðbeinandi upplýsing- um um ökuhraða á tiltekna staði á stofnvegum og helstu tengivegum. Tilgangurþessarraaðgerða á þjóðvegunum er að fækka dauðaslysum og tjölda alvar- lega slösuðunt í umferðinni, en við vinnslu umferðarörygg isáætlunarinnar var val á að- gerðum til aukins umferðar- öryggis byggt á áætlaðri arðsemi einstakra aðgerða. Á tímabilinu 2005-2008 verður 1.540 milljónum króna varið til þessa verkefnis, en vonir standa til að ávinningur aðgerðanna verði fækkun dauðaslysa um að jafnaði 4,2 á ári og fækkun alvarlegra slasaðra urn að jafnaði 14,5 á ári. > Sjá nánari upplýsingar á vef Samgönguráðuneytisins www.samgonguraduneyti.is A ustur-Húna vatnssýsla Leitað samninga við Framgöngu etif. vegna iðjukosta Eins og fram kom í Feyki nýverið, sendu sveitarfé- lögin í Austur-Húnavatns- sýslu frá sér áskorun til ríkisstjórnar íslands þar sem skorað er á stjórnvöld að kynna sér möguleika á staðsetningu iðjuvers í Austur-Húnavatnssýslu. I kjölfar áskorunarinn- ar var héraðsráði falið að leita samninga við fyrirtækið Framgöngu ehf., sem staðsett er á Skagaströnd, til að gera frumkönnum á möguleikum þess að korna á fót iðjuveri í Austur-Húnavatnssýslu. Jafnframt var samþykkt að fá Gallup til að gera viðhorfs- könnun í Austur-Húnavatns- sýslu um stóriðjumál. Háskólinn á Hólum_______ Aðsókn aldrei meiri Metaðsókn er Hólaskóla en hafa nú borist 137 umsóknir í skólann. Næsta ár má búast við að í skólanum verði um 125 nemendur, sem er umtalsverð aukning frá síðasta skólaári. Þess skal getið að tjar- nemendur sent hafa þegar hafið nám eru ekki inn í tölu um umsóknir (um 25 einst- aklingar). Ekki geta allir um- sækjendur fengið inni í skóla- num og má það fýrst og fremst skýra nteð fjöldatakmörku- num í hrossaræktardeild og eins eru nokkur dæmi urn að fólk uppfylli ekki inntökuski- lyrði. Ennþá er möguleiki að sækja um í ferðamála- og fiskeldis- og fiskalíffræðideild þó að frestur sé liðinn. Tekið er við umsóknum á reiðken- narabraut til l.júlí. Aukin aðsókn er að ferða- máladeildin hvað varðar nem- endafjölda. Sautján rnanna nemendahópur fer á annað ár deildarinnar sem er nú í fyrsta sinn boðið. Að meirihluta eru þetta nemendur sem voru í skólanum í vetur en einnig bætast við eldri nemendur sem hafa lokið diplómaárinu og nentendur sem hafá útskrifast úr Ferðamálaskóla Kópavogs. 10-12 verða á fyrsta ári á stað- num og líklega samtals um 40 manns í fjarnámi. I hrossaræktardeild er verið að prófa umsækjendur en beita þarf fjöldatakmörkunum þar og þarf fy'rirsjáanlega að hafna nokkrum hópi umsækjenda. Alls munu 50 nemendur stunda nám í hrossaræktarde- ild í vetur. Aldrei hafa fleiri sótt um í deildina. I fiskeldis- og fiskalíffræði- deild er aðsókn svipuð og verið hefur og en í vetur munu m.a. stunda nám við Hólaskóla líffræðinemar frá Háskóla ís- lands. Þeir munu vera hér eina önn og sérhæfa sig í fiskalíf- fræði. Almenn raftækjaþjónusta - frysti og kæliþjónusta - bíla- og skiparafmagn - véla- og verkfæraþjónusta —ICléMflW eh{ Aðalgötu 24 550 Sauðárkrókur Simi 453 5519 Fax 453 6019 Bílaviðgerðir hj ólbarðaviðgerðir réttingar og sprautun /iiœ bílaverkstæði Sæmundargötu lb 550 Sauðárkrókur Sínii 453 5141

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.