Feykir - 21.09.2005, Qupperneq 7
35/2005 Feykir 7
Rabb-a-babb
I íþróttafréttir
smáauglýsingar Sendid smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
Flóamarkaður
Flóamarkaðurínn verður fyrstu
helgina I nóvember.
Nánarsíðar.
Kvenfélag Sauðárkróks.
Tapað - fundið
Bíllykill afSubaru tapaðist á
Sauðárkróki eða Varmahlið!
Vinsamlega látið mig vita efþið
finnið hann í síma 8612528
Til sölu
Suzuki Grand Vitara árgerð 1998
tilsölu. Litur grásans, ekinn 115
þúsundkm. Mjög velmeð farinn.
Upplýsingar í síma 899 4016.
Jón Grétar.
Hjól i óskilum
Hvítt og blátt kvennmannsreiðhjól
tapaðist við Hásæti 5 á
Sauðárkróki (Dvalarheimili
aldraðra). Finnandi hafi samband
við Tamöru.
Árgangur: 1963.
Fjölskylduhagir: Tvö börn, Valdís
Dröfn 21 árs og Ólafur Starrí, 9 ára.
Starf / nám: Starfa hjá Öldunni
- stéttarfélagi og sit í Sveitarstjórn
Skagafjarðar en er reyndar í fríi þar
til áramóta vegna náms við Bifröst.
Hestöfl: Ótrúlega mörg hestöflí Re-
nault Clio.
Hvað er í deiglunni: Að skrifa meist-
araritgerð og fara í ræktina.
Hvernig hefurðu það?
Ég hefþað mjög gott.
Hvernig nemandi varstu?
Fyrirmyndarnemandi - minnir mig....
er þó ekki viss um að handavinnu-
kennarinn minn samþykki það!
Hvað er eftirminnilegast frá ferm-
ingardeginum?
Brúnn rifflaður flauelsjakki og
kúrekastígvél eins og eru ítísku í dag
(afhverju henti ég þeim?
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðirstór?
Ég ætlaði að verða rithöfundur eða
ballettdansmær.
Hvað hræðistu mest?
Að eitthvað komi fyrir mína nánustu.
Hver var fyrsta platan sem þú keypt-
ir (eða besta)?
Örugglega David Bowie...eða var
það FrankZappa?
Hvaða lag ertu líklegust til að syn-
gja í Kareókí?
Ætli ég verði ekki að taka undir með
Jónu Fanney.... five - seven o five!
Hverju missirðu helst ekki afísjón-
varpinu (fyrir utan fréttir)?
Ekta breskum/skoskum spennuþát-
tum með flóknum söguþræði (öfugt
við hina ammmerísku).
Besta bíómyndin?
Þær eru margar - spænskar, frans-
karog danskar, er svona evrópusin-
ni í þessum málum.
Bruce Willis eða George Clooney
/ Angelina Jolie eða Gwyneth Pal-
trow?
Hmmm, Willis og Jolie.
Hvað fer helst í innkaupakörfuna
sem ekki erskrifað á tossamiðann?
Ekkert!!! Jú, kannski pínu nammi
-stundum.
Hvað er ímorgunmatinn?
Te og speltbrauð eftími gefst.
Uppáhalds málsháttur?
Hver er sinnar gæfu smiður.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar
mesttil þín?
Andrés Önd og félagar - fæ reglu-
lega upplýsingar um nýjustu ævin-
týri þeirra frá syni mínum.
Hvert er snilldarverkið þitt í eld-
húsinu?
Kjúklingarétturinn með hnetunum...
nammi namm.
Hver er uppáhalds bókin þín?
Sú sem égerað lesa íhvert sinn.
Efþú gætir hoppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu...
...beint til Suður - Frakklands að
heimsækja vinkonu mína sem býr í
Pýreneafjöllunum.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari þínu?
Óþolinmæði.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra?
Óheiðarleiki.
Enski boltinn - hvaða lið og af
hverju?
Enski boltinn? Hvernig bolti er
það??
Hvaða íþróttamanni hefurðu mest-
armæturá?
Ismanninum Raikonnen - engin
spurning!
Heim í Búðardal eða Diskó
Friskó?
Diskó Friskó.
Hver var mikilvægasta persóna 20.
aldarinnar að þínu mati?
Gandhi.
Ef þú ættir að dvelja alein á
eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu
með þér?
Geislaspilarann, uppáhaldsdiskinn
og góða bók.
Hvað er best í heimi?
Góðir vinir og fjölskyldan.
Hvernig eru Skagfirðingar?
Stoltir af uppruna sínum, heima-
kærir og yfirleitt mjög skemmti-
legir.
Sprækir hlauparar nálgast Krókinn.
Króksbrautarhlaupið
Allir sigurvegarar
Króksbrautarhlaupið
fór fram um helgina
og voru þátttakendur
um 60 talsins. Hlau-
pararnir hrepptu hið
ágætasta veður og
hlupu með sól í sinni.
Þeir sem hlupu lengst
fóru 35 kílómetra en all-
ur gangur var á því hvað
hlaupararnir treystu sér
langa vegalengd en þeir
sem fóru stysta spölinn
hófu harkið við Melsgil en
þaðan eru urn 10 km út á
Krók. Allir komu í mark
sem sigurvegarar þó svo
flestir hafi sennilega verið
léttari í spori við upphaf
hlaupsins.
Markið var við Sund-
laug Sauðárkróks þar sem
hlauparar teygðu á un-
danbragðalaust og gæddu
sér á ávöxtum og þeyttum
rjóma og svalandi dryk-
kjum. Um kvöldið var
síðan uppskeruhátíð hjá
skokkurum og göngufólki
Árna Stef sem þó hefur
ekki í hyggju að hvíla lúin
bein því stefnan er sett á
Amsterdam-maraþonið
nú í október.
Skagaströnd
Körfuboltinn
deildinni
Ný stjórn
tekin við hjá
körfubolta-
Adoll og Eyjólfur ásamt hressum krökkum við vigslu vallarins.
Nýr sparkvöllur var
vígður á dögunum á
Skagaströnd.
Völlurinn er liður í átaki
sveitarfélaga og Knatt-
spyrnusambands íslands
um gerð sparkvalla víða um
land. Á myndinni má sjá þá
Adolf Berndsen, forseta
sveitarstjórnar og Eyjólf
Sverrisson hjá KSÍ vígja
völlinn en hópur ungmenna
fylgist með.
Síðastliðið fimmtu-
dagskvöld var aðal-
fundur körfuknatt-
leiksdeildar Tindastóls
haldinn í Vallarhúsinu
við Skagfirðingabraut
á Sauðárkróki.
Halldór Halldórsson
stýrði fundi og fór yfir
starfið á síðasta reikningsári
og reikninga deildarinnar
sem voru í betra standi en
stundum áður. Ný stjórn
var kjörin en hana skipa
Halldór Halldórsson, Ásta
Benediktsdóttir, Jóhann In-
gólfsson, Svavar Birgisson,
Viggó Jónsson og Jóhann
Sigmarsson.
Feykir náði í skottið á
Viggó Jónssyni og sagði
hann stjórnina eiga eftir
að skipta með sér verkum.
Hann sagði ennfremur
að Ijóst væri að Kristinn
Friðriksson yrði spilandi
þjálfari í vetur og þá er ljóst
að Svavar Birgisson og ísak
Einarsson munu spila með
Stólunum. Tindastólsmenn
eru að leita að kana til að
styrkja liðið og þá eru allar
líkur á því að ITelgi Rafn
Viggósson spili með Stólun-
um annan hvern mánuð.
Á fundinum voru verk-
efni vetursins voru rædd,
þ.a.rn. yngri flokka starf,
fjármálin, meistaraflokkar
karla og kvenna en verið
er að leita að bandarískri
stúlku sem ætlað er að
þjálfa og spila með kvenn-
aliði Tindastóls. Mæting
á fundinn var þokkaleg
en það mættu alls um 15
manns á fundinn.
Æfingar eru hafnar hjá
báðum meistaraflokkunum
og yngri flokkunum en
fýrsti leikur Tindastóls í 1.
deild verður væntanlega 9.
október.