Feykir - 25.01.2006, Page 7
04/2006 Feykir 7
Guðmundur Valtýsson skrifar_
Vísnaþáttur 422
Heilir og sælir lesendur góðir.
Ekki er hægt að komast hjá því
í upphafi þáttarins að leiðrétta
meinlegar villlur úr síðasta þætti. I
vísu Davíðs Hjálmars til Sigrúnar
Haralds var alls ekki gefið í skyn að
hún væri þykk. Á fyrsta hending
vísunnar að vera þannig.
Þykir einni þörf á leit.
Þá er í einni af vísum Jakobs
á Hóli ótrúleg niðurstaða sem
fæst aðeins með því að víxla
tveimur stöfum í prentverkinu.
Eins og glöggir lesendur hafa
séð gerist ekki annað en það að
fjTÍr mannleg mistök færist errið
fram fyrir íið og úr verður þetta
ótrúlega rímorð farið dýrð í þeirri
þriðju. Mun fyrri hluti þessarar
ágætu vísu eiga að vera þannig.
Nú er landsins sköpun skírð
Skarta myndir frómar.
Vonum öll að þessi leiðrétting
komist til skila til sem flestra.
Tökum þá upp léttara hjal og
fáum eina eftir Móskóga Stebba.
Vangaköld er veðradís
visna að rótum grösin.
Við höfum þó alltaf ís
út í viskyglösin.
Önnur snilldar vísa kemur hér
eftir Stefán og mun hún vera
gerð er hann lenti á fundi hjá
Kvæðamannafélaginu Iðunni.
Andans glœða gróður enn
gömulfrœði og snjallar bögur.
Hér úr lœðing leysa menn
lögin kvœða hrein ogfögur.
Að lokum þessi frá Stefáni.
Ekki breyta árin mér
öls þó neyti glaður.
Guð einn veit það, að ég er
alltaf sveitamaður.
Gaman að leita næst til
annars Skagfirðings Jóhanns
Magnússonar frá Mælifellsá.
Held ég að hann hafi ort þessa
hringhentu vetrarvísu.
Freðin öll er hamrahöll
héluvöllinn stjörnur lýsa,
hcestu fjöllin földuð mjöll
fellurgjöll á milli ísa.
Ef ég veit rétt kernur hér önnur
vísa eftir Jóhann og mun hún ort
á hörðu vori.
Vék um síðir vetrartíð
vorsól þýðir svörðinn kalinn.
Bráðum skrýðist blómum hlíð
blœrinn líður hœgt um dalitm.
Til Lovísu konu sinnar mun
Jóhann hafa eitt sinn ort.
Að þó líði œvikveld
eyðist htimið svarta.
Við þinn hlýja arineld
á éggeisla bjarta.
Þá langar mig til að leita til ykkar
lesendur góðir með upplýsingar
um höfund að eftirfarandi vísu,
sem ég veit reyndar ekki fyrir víst
hvort ég fer rétt með.
Margt ég vildi þakka þér
og þess ergott að minnast.
Að þú ert ein afþeint sem mér
þótti best að kynnast.
Einhvern tímann hef ég skrifað
hjá mér í þeim tilgangi að safna
í draslið, að þessi magnaða
hringhenda sé eftir Sigurð
Guðmundsson frá Heiði í
Gönguskörðum.
Ösamlyndið elur synd
illsku kyndir brælu,
flekkkar yndis fagra myttd
frá sér hrindir sœlu.
Gladdi mig að heyra frá hinu
ágæta félagi þeirra Þingeyinga,
Kveðanda. Þar mun eitt sinn á
gleðskaparkvöldi hin magnaða
Ósk Þorkellsdóttir hafa verið
spurð um hvort væri snjallari
uppfinning tala eða rennilás.
Mun hún hafa svarað svo
skilmerkilega.
Víst er það létt að loka með
Lásnum og vœnt til sölu.
Ónýtir lásar ergja mittgeð
En auðvelt að festa tölu.
Oft verður tala svekkjandi og súr
sýnd en ei gefm krásins.
Því karlarnirsem að klœða mann úr
kunna betur á lásinn.
Gaman að íslenskar konur skuli
ennþá átta sig á því að karlmenn
með réttu eðli, hafa enn áhuga
á að ná niður lásnum. í síðasta
þætti var eins og koinið hefur
fram vísa eftir Davíð Hjálmar
sem ég held að búi á Akureyri.
Eftir að okkar magnaði
Guðni landbúnaðarráðherra
fékk hálsbandið í veislunni á
Bessastöðum mun hann hafa ort
þessa.
Glœstar blautargranir á
gafhann fyrsta kossinn.
Stoltur bera í staðinn má
stórriddarakrossinn.
Að lokum heimagerð vísa sem ort
er á útfarardegi hins mæta manns
Sigurðar Þorbjörnssonar, áður
bónda á Geitaskarði í Langadal.
Okkar bestu kynni voru þau,
að þegar sú illa árás var gerð á
íslenska bændastétt um talningu
búfjár og undirritaður læsti
fjárhúsum sínum til þess eins að
mótmæla slíkum gjörningi, var
Sigurður á Geitaskarði fyrstur til
eftir að þetta fréttist að hringja
til mín og stappa í mig stálinu og
bjóðast til að veita mér allan þann
stuðning sem hann gæti í þessari,
sem hann taldi aðförað íslenskum
bændum.
Ört þó streymi líjfsins lind
og leiti nýrra heima.
Fagra afþeim manni mynd
munu flestir geyma.
Verið þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi.
S: 452-7154.
íþróttafréttir
Powerade-mótið í knattspyrnu
W
Agæt byrjiin Stólanna
þratt ffyrir töp
Sparkvertíð fótbolta-
manna hófst um miðjan
janúaren þá spiluðu
Tindastólsmenn fyrsta
leiksinn í Powerade-
mótinu í Boganum á
Akureyri.
Stólarnir mættu Þór frá
Akureyri og urðu að sætta
sig við 2-0 tap. Engu að
síður voru menn sáttir við
spilamennskuna og haff var
á orði að leikmenn virtust í
mun betra formi en á sama
tíma í fyrra.
Stólarnir spiluðu annan
leik sinn á mótinu síðast
liðinn föstudag og mættu
þá liði Fjarðabyggðar.
Snorri Geir gerði fyrsta
rnark leiksins á glæsilegan
hátt með skoti af 40 metra
færi - en í eigið mark. Rúnar
Már jafhaði en Fjarðabyggð
komst í 1-2 rétt fyrir
hálfleik. Haukur jafnaði í
síðari hálfleik en undir lokin
fengu Austfirðingar víti sem
þeir nýttu og höfðu því sigur
á Stólunum, 2-3.
Körfubolti________
Morbley
mættur
Tindastólsmenn sendu
Lynell Ingram heim á
dögunum en kappinn
þótti ekki standa undir
væntingum.
Ekki voru Stólarnir lengi
að fylla skarðið sem Ingram
skildi eftir sig - reyndar ekki
stórt skarð og í það minnsta
minna en efiii stóðu til.
Nýi kaninn hefur getið sér
gott orð fýrir körfuknattleik á
írlandi, ber nafiiið Damion
Morbley og slagar hátt í 2
metra.
Tindastóll - Reynir 122-80_______________
Léttur sigur gegn Reyni
Lið Tindastóls tók Reyni
úr Sandgerði í bakaríið á
föstudagskvöldið. Tinda-
stólsmenn voru kanalaus-
ir en spiluðu á löngum
köflum glimrandi bolta
gegn liði Reynis sem sitja
í neðsta sæti 1. deildar.
Svavar og ísak voru
atkvæðamestir í liði
Tindastóls og gerðu báðir
31 stig í 122-80 sigri
Stólanna.
Tindastólsmenn hófú
þegar frá byrjun að pressa
Reyni og unnu boltann hvað
effir annað sem skilaði sér í
því að Stólarnir náðu fljótt 8
til 10 stiga foskoti. Þegar
pressan virkaði ekki fékk
Reynir auðveld stig og þá hitti
Sigurður Sigurbjörnsson vel
fyrir gestina og hélt þeim inni
í leiknum í fyrri hálfleik.
Staðan eftir fyrsta leikhluta
var 32-22 og Tindastólsmenn
gátu leyft sér að láta ungu
strákana spila talsvert í öðrum
leikhluta. Fyrir vikið náðu
Reynismenn að halda í
horfinu og staðan í hálfleik
57-45.
Reynismenn komu öflugir
til leiks í síðari hálfleik, gerðu
strax t\'ær 3ja stiga körfur og
minnkuðu muninn í sex stig,
57-51. Þá kom algjörlega
geðveikur kafli hjá Stólunum
þar sem hreinlega allt gekk
upp; pressan, vörnin, sóknin
og skotin. Isak og Óli drituðu
niður 3ja stiga skotum og svo
tóku Svavar og Kiddi til við
það sama. Á meðan Stólarnir
gerðu 41 stig gerðu Reynis-
menn 9. Staðan 98-60 eftir
þriðja leikhluta. I fjórða
leikhluta fengu ungu strák-
arnir að láta til sín taka og
sigurinn var öruggur sem f)rn
segir, 122-80.
Það var gaman að sjá
Stólana spila á föstudags-
kvöldið, mikill hraði, leikgleði
og skemmtileg tilþrif, og
áhorfendur skemmtu sér hið
besta. Allir komust leikmenn
Stólanna vel frá leiknum en
þó er rétt að segja frá því að
Isak var hreint frábær; gerði
31 stig, tók 12 fráköst, 6
stoðsendingar, stal 4 boltum
og varði 2 skot. Þá hitti Óli
sem aldrei fyrr, gerði 18 stig
kappinn og átti 7
stoðsendingar.
Stig Tindastóls: Isak31, Svavar
31, Óli 18, Kiddi 15, Bjarni 7,
Baldur 7, Maggi 6, Bagnar 4,
Hreinn 2 og Ingvi 1.
smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
Spilavist
Spilavisti Framsóknarhúsinu
sunnudaginn 29. janúar kl. 15:30.
Vöfflur og kaffi - allir velkomnir.
Framsóknarfélag Skagafjarðar
Bill til sölu
Subaru Legacy station árg. 2002,
ekinn 74.000 km. Sumar- og
vetrardekk á felgum, dráttarbeisli
og þjónustubók. Velmeðfarinn
bill, einn eigandi.
Upplýsingarísima 8650816
Hestamenn
Nokkrir básar til leigu. Sé um
fóður og hirðingu. Upplýsingar i
síma 453 5558.
Félagsvist
Til sölu er á vægu verði nýr
sturtuklefi ásamt dúk á vegg
Istærð 70x80 cm).
Upplýsingar í síma 453 5393.
Góður jeppi til sölu
Tilsölu erPajero "89,176, sjálf-
skiptur, 7 manna. Skoðaður "07.
Billí toppstandi á góðu verði.
Upplýsingar í síma 891-9164.
Bílastóll til sölu
Tilsölu Britax bílstóll"Club class
extra " fyrir börn frá fæðingu til 18
kg. Hægtað snúa á tvo vegu
og halla þegar barnið sefur.
Notaður eftir eitt barn og vel með
farinn.
Einnig rúm úrlútaðrifuru 150x200
án dýna, selstódýrt.
Upplýsingari síma 8956419