Feykir


Feykir - 15.02.2006, Blaðsíða 4

Feykir - 15.02.2006, Blaðsíða 4
4 Feykir 07/2006 Hvammstangakirkja og nýtt safnaðarheimili. Myndir: Kari Sigurgeirsson Jón Bjarnason þingmaður skrifar Eftir góða stund í Hvammstangakirkju Nýtt safnaðarheimili á Hvammstanga var vígt og tekið í formlega í notkun við hátíðlega athöfn síðastliðinn sunnudag. Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup á Hólum predikaði og vígði safnaðarheimilið en sóknarpresturinn sr. Sigurður Grétar Sigurðsson og prófasturinn sr. Guðni Þór Ólafsson á Melstað þjónuðu fyrir altari. Kirkjukórinn undir stjórn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur söng. Fjölmenni var við athöfnina og stolt og gleði ríkti sent búast mátti við. En svona átak byggist fyrst og síðast á samtakamætti fólksins, fórnfúsu starfi og framlögum sjálfboðaliða. Hvammstangakirkja er einstaklega fallegt og hlýlegt hús. Hún er teiknuð 1946 af Guðjóni Samúelssyni arkitekt og húsameistara ríkisins, en vígð af Ásmundi Guðmunds- syni biskup 21. júli 1957. Þegar komið er inn í kirkjuna blasir við stórt kristlíkneski í stað altaristöflu, búið í mjög fagra untgjörð. Líkneskið er gjöf frá Valdimar Eylands presti í Winnipeg en rammann urn líkneskið gáfu þau prestshjónin sr. Gísli og Sigríður Kolbeins sem sátu Melstað í Miðfirði um langt árabil. Þessi fagri búnaður kirkjunnar gefur henni sérstöðu og þegar stigið er inn fyrir þröskuldinn inn í sjálfa kirkjuna finnur rnaður hve öll hin innri umgjörð býður kirkjugesti hjartanlega vel- komna. Það er vandi að teikna og hanna viðbyggingu við svo sérstakt hús sem Hvamms- tangakirkja er, en hér hefur tekist vel til. Gengt er úr kirkjunni beint inn í safnaðarheimilið og hægt að opna þar á milli. Þjónar þá salurinn sem viðbót við kirkjuna sjálfa sem getur verið nauðsynlegt við stærri athafnir. Til hantingju Hvammstanga- búar nreð safnaðarheimilið. Safnaðarstarfið er einn af hornsteinum menningarlífsins Kirkjan og safnaðarstarfið eru víða hornsteinar fjölbreytts menningarlífs, ekki síst í minni samfélögum út unt land. Má þar fyrst telja söng og tónlistarlíf hverskonar, barna- og unglingastarf, sem fjölskyldan öll er virkur þátttakandi í, að ógleymdum hlut eldri borgara. En söng- og tónlistarlíf er ntjög öflugt á Hvammstanga eins og í öllu Húnaþingi. Sem dæmi má nefna að íbúar Húnaþings vestra eru tæp 1200, en 130 nentendur eru skráðir í Tónlistarskóla sveitarfélagsins. Auk þess er rnjög öflugt kórastarf og sönglíf um allt héraðið. Söng- og tónlistarlíf tengt kirkju ogsafnaðarstarfinu er ntikilvegur hlekkur í þessu menningarlífi. Umburðarlynd þjóðkirkja Á þeim umbrotatímum sem santfélag okkar gengur nú í gegnurn er mikil þörf fyrir sterka en untburðarlynda þjóðkirkju. Kirkjan hefur verið grunn- þáttur okkar þjóðskipulags nánast frá upphafi Islands- byggðar og með henni höfum við lifað bæði súrt og sætt í meira en 1000 ár. Mikilvægt er að hún nái að bregðast við breyttum kröfurn á hverjum tíma, en traust bönd milli ríkis og kirkju byggða á gagnkvæmu trausti gefur samfélaginu öryggi sem okkur er mikil- vægt. Trúfrelsi og virðing fyrir öðrurn trúarbrögðum eru sjálfsögð og einmitt í samfélagi umburðarlyndrar þjóðkirkju er líklegast að við okkar aðstæður verði slíku best fýrirkomið. Forðumst markaðsvæðingu kirkjunnar Þjóðkirkjan verður ekki rekin á markaðsgrunni. Það hefúr verið reynt áður, en aflátsbréfin sem seld voru fyrir syndakvitt- un leiddu til klofnings kirkj- unnar. Forsvarsmenn þjóðkirkj- unnar sent og stjórnmálamenn þurfa að stíga hér varlega til jarðar. Hættan er sú að verði bönd ríkis og kirkju slitin þá liggi kirkjan berskjölduð fyrir markaðsvæðingu. Gerist það þekkjum við af biturri reynslu, að þá sækir starfið og áherslan, fjármunirnir beint inn í mesta fjölmennið og kirkjustarfið úti urn land verður þá í enn meiri vörn. Við sjáurn nú þegar þrýstinginn að fækka prestum úti um land og færa þá inn í þéttbýlið. Staðreyndin er sú, að prestar úti unt land hafa afar fjölþættu samfélagshlutverki að gegna og veltur enn meira á nærveru þeirra í minni sam- félögum, ef ntiðað er við höfðatölu íbúanna. Menning og saga þjóðarinnar í húfi Þá ber og að hafa í huga að kirkjurnar vítt og breitt um landið eru byggingarsögulegir dýrgripir, og búnaður þeirra hluti af listasögu landsins. Kirkjustaðirnir eru ein- stæðar vörður í sögu, atvinnu- og menningarlífi þjóðarinnar og samofnir örlögum hennar um aldir. Þessum verðmætum verður að halda til haga og gera sýnileg í nútímanum. Þarna ber þjóðkirkjan víðtækar samfélagsskyldur sem hún á að axla með reisn og gera ráð fyrir í verkefnum sínum og standa þannig undir nafni sem þjóðkirkja. Vel rnætti hugsa sér að fela prestum úti um land aukið hlutverk í þessurn efnum. Kirkjusagan og kirkjustaðirnir eru samofin þeim verðmætum sem reynt er miðla og laða fram t.d. í menningartengdri ferðaþjónustu. Þetta er nú þegar víða gert með því að hafa kirkjurnar opnar og bjóða tónlist og aðra dagskrá um ferðmannatímann. Ábyrgð og samfélagsskyldur kirkjunnar Ég tel mikilvægt að forsvars- menn kirkjunnar og við öll höfum þessa fjölþættu ábyrgð í huga. Kirkjustarfið er mikil- vægur hlekkur í byggðamálum og ómetanlegt í öllu félags- og menningarlífi minni samfélaga úti urn land. Hér ber þjóðkirkjan ríka samfélagslega ábyrgð sem hún má ekki víkja sér undan. Þess vegna þurfum við að standa vörð um prestssetrin og prestaköllin úti urn land og finna þeim aukin og ný samfélagshlutverk í síbreytilegu santfélagi. Þannig sköpum við einnig sátt um umburðarlynda en öfluga þjóðkirkju. Jón Bjamason alþingismaður Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir ásamt séra Guðna Þór Úlafssyni, séra Sigurði Grétari Sigurðssyni og séra Jóni Aðalsteini Baldvinssyni vígslubiskupi á Hólum.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.