Feykir - 26.04.2006, Blaðsíða 6
6 Feykir 16/2006
Aftur í liðna tíð XIV :: Hörður Ingimarsson skrifar
Þing LÍV1963 á Sauðárkróki
Stéttarfélag verslunarmanna í Skagafirði var stofnað 9. júní 1958 fyrir nærri hálfri öld. Langflestir félagsmanna voru
launamenn hjá kaupfélaginu, (KS), þar sem heyrði til undantekninga ef ekki var greitt eftir umsömdum textum, sem
voru mjög lágir. Á þessum árum þótti gott að hafa fasta vinnu. Það voru lífsgæði þess tíma.
Fyrstiformaður„Verslunar-
mannafélags Skagfirðinga” var
Guðmundur Ó. Guðmunds-
son, afburða góður skrif-
stofumaður, félagsmálafröm-
uður og íþróttamaður. Síðar
mikilvirkur að málefnum
hestamanna. Guðmundur var
sonur Ingu vökukonu á
Spítalanum og bjó lengst af við
Skagfirðingabrautina, en hvarf
til Reykjavíkursvæðisins fyrir
all löngu síðan. Ingimar
Bogason tók við formennsku í
félaginu 1960 og leiddi til
nokkurs vegsauka, enda traust
og samhent stjórn í félaginu.
V e r s 1 u n a r m a n n a f é 1 a g
Reykjavíkur (VR) var mjög
leiðandi um kjör afgreiðslu- og
skrif-stofufólks á þessum árum
undir forystu Guðmundar H.
Garðarssonar, síðar alþingis-
manns. Allskyns yfirborganir
og sporslur voru algengar í
Reykjavík á þessum tíma. hað
braut niður alla stéttarlega
samstöðu og varð leiðandi um
launakjör í dreifðum byggðum
sem urðu að sætta sig við
bcrstrípaða texta. Við þessar
aðstæður kom fram leiðtogi
sem bar Guðmund H.
Garðarsson ofurliði um for-
ystuna í L.Í.V. (Landsamband
íslenskra verslunarmanna).
Það var Sverrir Hermannsson
síðar alþingismaður, ráðherra
og bankastjóri.
Dreifbýlismenn sáu nýja
von um bætt kjör með forystu
Sverris frá Svalbarði í Ögurvík.
Fyrsti landsfundur L.Í.V.
utan Reykjavíkur var svo
haldinn á Sauðárkróki 2. - 5.
maí 1963. Þetta var mjög vel
heppnað þing og samkoma og
gestgjöfunum til mikils sóma.
Öll fundarhöldin fóru fram í
Félagsheimilinu Bifröst og
þótti umgjörðin öll hin
veglegasta. Bæjarstjórnin á
Sauðárkróki sýndi þinginu
sóma svo og fulltrúar stéttar-
félaga á heimaslóðum.
Veglegar veislur fýlgdu
þinghaldinu og heimsóttir
voru helstu staðir svo sem
Byggðasafnið í Glaumbæ og
farið var heim að Hólum í
Hjaltadal.
Þetta þing L.I.V. var lengi í
minnum haft og þótti takast
einstaklega vel og samheldnin
meiri við fundarhaldið en
gerðist á samskonar fundum í
Gestirá þingiLÍV 1963 i Biíröst. Frá vinstri: Hólmfriður Jónasdóttir formaður Öldunn-ar, mikill verkalýðssinni og leiðtogi vinstrimanna um
langtskeið, Friðrik Sigurðsson formaðurFram kom viða að verkalýðs- og félagsmálum og bjó alla sina búskapartið á Króknum, Rögnvaldur
Finnabogason bæjarstjóri frá 1958-1966 og þaráður skrifstofu-stjóri Bæjarins i tið Björgvins Bjarnasonar bæjarstjóra. Eiginkona Rögnvaldar
er Hulda Ingvarsdóttir sem ólst upp með Guðnýju móðir sinni og manni hennar Kristni Gunnlaugssyni frá árinu 1931 á Króknum, Hulda er fædd
á Sauðárkróki 1926 og Rögnvaldur er Eskfirðingur að uppruna. Pau hjón settu mikinn svip á bæjarlifið á sinni tið og áttu glæsilega afkomendur.
Guðjón Sigurðsson forseti Bæjarstjórnar á Sauðárkróki. Bakarameistari, leikariog félagsmálafrömuður. Bakaríið varsem musteri Sjálfstæðis-
flokksins i tið Guðjóns, þarfóru fram grasrótarstörf og „heldri-manna" samkomur i Rotary. Guðjón var mikill gleðigjafi og Króksari af bestu gerð.
Stjórn Verslunarmannafélagsins 1963. Frá vinstri efri röð: Guðmundur 0. Guðmundsson, Ingimar Bogason formaður og Evert Þorkelsson
síðar kaupmaður í Matvörubúðinni við Aðalgötuna. Frá vinstri fremri röð: Magnús Sigurjónsson lengi verslunarstjóri Byggingar-vöruver-
slunarKS, seinna vöruhússstjóri Skagfirðingabúðar og leiðtogi i Bæjarstjórn Sauðárkróks 1982-1986. Satsamtals 12árí Bæjarstjórn. Árni
Jónsson kenndur við Skriðu, starfaði i áratugi hjá KS og kom viða að forystu í iþróttum. Ljósmyndir: Stefán Pedersen, birtmeð hans leyfi.
Reykjavík. Mjög efldi þetta
félagslega einingu og sam-
heldni verslunarmanna heima
fýrir.
Ingimar Bogason lauk
formennsku sinni 1966 í félagi
verslunarmanna. Segja má að
þinghald LÍV 1963 hafi verið
svanasöngur Ingimars að
félagsmálum eftir aðkomu og
forvstu að verkalýðsmálum og
ýmsu fleiru um rösklega 30 ára
skeið.
Hörður Itlgimarsson Flott ásýnd senunnar íBifröst- ein af mörgum. Frá vinstri: Hannes Þ. Sigurðsson þekktur
knattspyrnudómari, Ingimar Bogason, Guðmundur Ú. Guðmundsson, Gunnlaugur Briem
forseti þingsins, þekktur borgari i Reykjavik, og Sverrir Hermannsson leiðtoginn sjálfur i
ræðupúltinu, glæsilegur ásýndum og siðast formaður Frjálslynda flokksins.
molar
Lillurnar og Húna-
kórinn syngja saman
Lillukórinn heldur sína árlegu
tónleika í Félagsheimilinu
á Hvammstanga 1. maí kl.
16:00. Gestir kórsins að
þessu sinni er Húnakórinn,
kór Húnvetningafélagsins í
Reykjavík. Stjórnandi hans
er Eiríkur Grímsson og
undirleikari Pavel Manásek.
Lillukórinn er skipaður 30
söngelskum konum víðsvegar
úr Húnaþingi vestra.
Kórstjóri er Ingibjörg
Pálsdóttir, undirleikari og
stjórnandi Guðjón Pálsson.
Kórarnir tveir munu syngja
hvor í sínu lagi og einnig
saman. Efnisskráin er
fjölbreytt, bæði innlend og
erlend lög.
Eins og undanfarin
ár verður í boðið upp á
kaffihlaðborð í hléi að hætti
Lillukórsins.
Söngskemmtun í
Sauðárkrókskirkju
Hin árlega Sæluvika
Skagfirðinga hefst n.k.
sunnudag með setningu
kl. 16. í Safnahúsinu. Fyrsti
dagskrárliður Sæluviku hefst
svo kl. 17. þann sama dag í
Sauðárkrókskirkju.
Þar munu fjórir einsöngv-
arar stíga á stokk og flytja
íslenskareinsöngsperlur,aríur
og dúetta. Einsöngvararnir
sem þarna leiða krafta sína
saman eru; Ari Jóhann
Sigurðsson tenór, Kristján
F. Valgarðsson baritón,
Halldóra A. H. Gestsdóttir
sópran og Þórhallur Barðason
baritón.
Fjórmenningarnir, sem
allir eru lærðir söngvarar
hófu samstarf nú fýrr í
vetur og eru þessir tónleikar
þeir fyrstu í væntanlegri
tónleikaröð. Undirleikar á
tónleikunum er hinn þekkti
píanóleikar Aladár Rácz sem
kemur frá Húsavík.
Eins og fyrr segir hefjast
tónleikarnir kl. 17.00,
miðaverð er kr. 1.500.- og
ætti enginn að láta þennan
tónleikaviðburð fram hjá sér
fara.