Feykir - 26.04.2006, Qupperneq 7
16/2006 Feyfcir 7
Guðmundur I/altýsson skrifar_
Vísnaþáttur 428
Heilir og sælir lesendur góðir.
Það er Einar Sigtryggsson á
Sauðárkróki sem byrjar þáttinn
að þessu sinni. Deilir hann þar
á ýmislegt sem nú er hávært í
þjóðfélagsumræðunni.
ísletidingar eru í vanda
og þeir verða að gœta sín.
1 miðjum klíðum málin standa
mannauður og viska dvín.
Bandaríkin spara ogspara
sprengja loforð þjóðin kaus.
Þyrlurnar og þoturfara
þjóðin stendur varnarlaus.
Mikið jjármagn mœtti spara
mont og þrjóska varar enn.
I Öryggisráðið œtla aðfara
ólánssamir stjórnmálamenn.
Þjóðfélagið þarf að aga
þessi stjóm er valdablind.
Okkar stolt og okkar saga
œtti að vera fyrirmynd.
Á mistökum erþjóðin þreytt
því er rétt að hinkra við.
Enn við getum ýmsu breytt
eflum traust og styrkjum frið.
Þroskahefta þjóðfélag
þarfað virkja hverja sál.
Eiturneysla er í dag
okkar stœrsta vandamál.
Eins og rnargir vita var Jóhann
Ólafsson í Miðhúsunt, snjall
hagyrðingur. Einhverju sinni á efri
árurn hans er kona bað hann um
vísur í tímariti orti hann svo.
Að bregðastþínum björtu vonum
bölvað fitmst mér dálítið.
Þvígjarnan vil éggagnast konutn
en get svo lítið nú orðið.
Önnur vísa kemur hér eftir
Jóhann.
Oft er syndin svalalind
sem ffá hrindir trega.
Hennar skyndi ntörg er mynd
rnáluð yndislega.
Gaman að heyra næst frá Erlendi
Hansen á Sauðárkróki, en hann
yrkir svo um vornótt.
Sofa núna síst ég má
sumargræn er jörðin.
Einn ég rölti upp með á
upp í Gönguskörðin.
Fjöllin sofa bylgjublá
brosir nætursólin.
Fósturjörðin föl á brá
fer í morgun kjólinn.
Þrátt fyrir að nokkuð sé í að
hestamannamót suntarsins hefjist
langar mig til að rifja næst upp
kveðskap Sigríðar Sigfúsdóttur
í Forsæludal sent ort mun vera
um Sigurð Ólafsson söngvara
og skeiðhest hans HroU á
fjórðungsmóti Landssambands
hestamanna sem haldið var í
Húnaveri 1964.
Hófaglaður hrifning mína vekur
Hrollur flýgur völlinn eins og ör.
Skrefagleiður skeiðið létta tekur
skorta virðist hvorki þrek néjjör.
Hans í brjósti tnikill tnóður svellur
á tnildu kveldi hér í fjallaþröng.
Hófasláttur fáksins hvílafellur
semfallegt undirspil við knapans söng.
Þá langar mig að spyrja lesendur
hvort þeir viti hver yrkir svo
fallega?
Retma skipi um reiðan sjá
reiða eins oggapi.
Þjóra og dufla þertium hjá
það er að mínu skapi.
Margar snjallar vísur eru til eftir
Bjarna frá Gröf. Gott atlæti hefur
hann haft þar sem hann var
gestkomandi eftir þessari vísu hans
að dærna.
Margt éggott hjá meyjumfœ
mest úr potti veiga.
Þœr eruflott á þessutn bœ
það má tiú drottin eiga.
Önnur vísa kemur hér eftir Bjarna.
Guði skattinn greiða ber
gœfuna þó bresti.
Fyrir lífiðfengum vér
feigð í veganesti.
Alltaf er gaman að rifja upp vísur
eftir Björn Leví Gestsson sem
kenndur er við Björnólfsstaði.
Þessi er eftir því sem ég best veit
eftir hann.
Líftð ekkert leyftr hik
úr lægðum upp á tinda.
Það eru eintóm augnablik
sem eilífðina mynda.
Þá langar mig að spyrja lesendur
hvort þeir viti hver hefúr ort
þessa?
Hávaðinn í heitnsins önn
hefur núna strikið.
Betra er að vefjist tunga um tönn
en tala allt of mikið.
Þá væri einnig gantan að fá upp-
lýsingar unt höfund að þessari.
Hérájörðu er mörgu
misjafnt skipt
þess mœtti nefnafjölda
af dœmutn sötmum.
Því upp til skýja
skilst tnér vera lyft
skáldum meir
en bestu heiðursmötmum.
Jón S. Bergntann mun eitt sinn
hafa ort svo fagurt.
Að tnér hrapar háð og spé
hrekkjum napurt glapinn.
Ég heffattgað frœgð ogfé
fyrir asnaskapitm.
Gott er að fá að enda þáttinn okkar
á þessari ágætu vísu Þormóðs
Pálssonar frá Njálsstöðum.
Ég hefi þyrstur kelað kysst
kvenna mist og notið.
Og af kvistum eplin hrist
eftir fyrsta skotið.
Verið þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi.
S: 452-7154.
íþróttafréttir
Skíðamenn á faraldsfæti
Hópur Skagfirðinga á
Anarésar Andar leilcunum
Miðvikudaginn 19. apríl hófust 31. Andrésar Andar
leikarnir á Akureyri og stóðu þeirfram á laugar-
daginn 22. apríl. Það voru 23 áhugasöm börn og
unglingar frá Skagafriði ásamt foreldrum og syst-
kinum sem héldu Norður og tóku þátt í leikunum.
Frá skrúðgöngu í upphafi móts.
Allir þátttakendur fóru í
skrúðgöngu á miðvikudags-
kvöldið og var gengið frá KA
heimilinu að Iþróttahöllinni
þar sem setning leikanna fór
fram en að þessu sinni tóku
um 700 keppendur þátt í
leikunum.
Á sumardaginn fjTSta
hófust svo leikarnir og ekki
skentmdi það fýrir að
veðurguðirnir voru í sínu
besta skapi. Að kvöldi mátti
sjá sólbrúnar kinnar og nef
en snjóhvíta augnaumgjörð
eftir skíðagleraugu.
Keppendur Skagfirðinga
voru á aldrinum 6-15 ára og
kepptu í göngu og alpa-
greinunum þ.e. svigi og
stórsvigi. Árangur skagfirsku
krakkanna var góður en
öflugt starf foreldra
undanfarin ár er farið að
skila sér og nær tvöfalt fleiri
keppendur frá Skagafirði nú
en árið á undan.
Gunnar Birgisson náði
glæsilegunt árangri í
skíðagöngu en hann sigraði í
báðum greinunum sem
hann tók þátt í þ.e. göngu
með ffjálsri aðgerð og göngu
með hefðbundinni aðferð og
það nteð miklum
yfirburðum. Guðný Sif
Gunnarsdóttir komst á
verðlaunapall í flokki 9 ára í
svigi, UnnurÁrsælsdóttir var
hársbreidd frá verðlaunapalli
í stdgi og stórsvigi í flokki 9
ára og Hólmar Daði Skúlason
var einu sæti ffá verðlaunum
í svigi í flokki 10 ára. Þess má
geta að alls voru 7 keppendur
ffá Skagafirði í flokld 7 ára og
þvi ljóst að uppbyggingar-
starfið er farið að skila sér.
Allir Skagfirðingarnir stóðu
sig með prýði og framtíðin er
björt ef ffarn fer sem horfir
hjá Skíðadeild Tindastóls.
Þórsheintilið á Akureyri
var aðalbækistöð hópsjns en
þar hittist hópurinn þreyttur
og kátur að kvöldi og borðaði
saman og lagði á ráðin fýrir
næsta dag. Veðurspár voru
grandskoðaðar svo að réttur
áburður yrði nú örugglega
borin undir skíðin og voru
pabbarnir rnjög ábúðafullir
úti á stétt á kvöldin með
straujárnin á skíðunum.
Mikill kostnaður fýlgir 3ja
daga keppnisúthaldi en nteð
hjálp dyggra stuðningsðila og
samheldni aðstandenda varð
úr hin hollasta fjölskylduferð
í anda útivistar og sanns
íþróttaanda. Keppendur og
aðstandendur þeirra vilja
koma sérstöku þakldæti á
ffamfæri við Sparisjóð Skag-
firðinga, Sa uðá rk ró ksba ka rí,
Steinull hf og Skagfirðinga-
búð fýrir rausnarleg ffantlög
og skilning á ntikilvægi
barna- og unglingastarfs.
Gunnar Birgisson á fullri ferð.
nj- ~ln
íbúð til sölu
Til sölu er 81,7 fm. íbúð á 2. hæð i fjölbýlishúsinu að Viðgrund 4 á Sauðárkróki.
Tvö svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi. Parket á stofu og holi, dúkur á herbergjum og
eldhúsi. Góðar suðursvalir. Sérgeymsla í kjallara auk sameiginlegs þvottahúss. Ibúðin er í góðu
ástandi og gott útsýni. Laus til afhendingar fljótlega.
Verð 9 millj.
Nánari upplýsingar veita Bjarni í síma 894-0197 og Svanhildur eftir kl 17 í síma 453-5256.
H_______________________________________________________________________________________________P
smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
Til sölu l/W Vento árgerð 1998, keyrður 125 þúsund km, sóllúga, filmur, spoiler. Beinskiptur, vetrar- og sumardekk á felgum, álfelgur. Einnig á sama stað bláyrjóttur svefnsófi, sófaborð með 2 glerplö- tum og ísskápur með frysti. Terrano til sölu Til sölu Nissan Terrano II árg. 2002, ekinn 123.000 km. Verð 1.750.000,- Upplýsingarí síma 892 7707. Bíll til sölu Til sölu Subaru Legacy árg. 2003. Góðurbíllá góðu verði. Uppl. I síma 845 5499 Hvolpar Nokkrir 8 vikna gamlirhvolpar fástgefins. Upplýsingar gefur Maria á Ökrum IFIjótum I síma 4671054.