Feykir - 18.04.2007, Qupperneq 11
15/2007 Feykir 11
Frá Hólum
Líflegur dagur
á Hólum
Flesta daga er líflegt á Hólum í Hjaltadal, en
fimmtudagurinn 29. mars síóast liðinn var þó einn sá
líflegasti.
Þær stöllur Fanney og Rósa uppskáru sigur fyrir glæsilegt atriöi sitt.
Nemendur syngja skólasöng Grunnskólans á Hólum.
Margir sóttu ráöstefnuna.
í byrjun dags sóttu nemendur
frá Árskóla æfingakennslutíma
hjá fyrsta árs nemendum í
hrossaræktardeild, sem eru
að taka námskeið sem heitir
Kennslufræði og reiðkennsla.
I kjölfar þeirra mætti
sendiherra Rússlands nreð
fylgdarmönnum til að skoða
starfsemi skólans og kynna sér
sögu staðarins.
Hópur kúabænda úr
Húnavatnssýslum fékk einnig
k)Tiningu á starfsemi Hólaskóla
- Háskólans á Hólum og
sýningu á nýja hesthúsinu hjá
rektor.
Eftir hádegismat hitti
hópurinn vígslubiskupinn
og skoðaði kirkjuna og
Auðunarstofu.
Grunnskólinn að Hólurn
hélt uppá 30 ára starfsafmæli í
íþróttahúsi Háskólans á Hólum
og hélt elsta deild skólans
ráðstefnu og sýningu á eigin
hönnun.
Gestir á ráðstefnunni
voru Andri Snær Magnason,
rithöfundur sem flutti erindi
og nemendur V alsárskóla
á Svalbarðseyri sem meðal
annars sýndu dans. Skólastjóri
Valsárskóla færði kveðjur
og gjafir í tilefhi affnælisins.
Krakkarnir borðuðu saman,
fóru í sund og síðan skoðuðu
gestirnir Auðunarstofú, kirkj-
una og nýja hesthúsið.
Fjarnemar í ferðamáladeild
voru einnig á Hólum þennan
dag auk nema í staðarvarða-
námskeiði. Þeir voru með tíma
langt fram á kvöld og nutu
meðal annars tónlistarflutnings
í Auðunarstofu hjá ffæði-
mönnum Guðbrandsstofn-
unar sem að þessu sinni eru
hjónin og tónlistarmennirnir
Marta Halldórsdóttir og Örn
Magnússon.
Nemendur í hrossaræktar-
deild voru um kvöldið með
Grímugæðingakeppni í reið-
höllinni. Þetta var hin besta
skemmtun og gaman að sjá
hvernig nemendur blanda
saman gamni og alvöru - sýna
það sem þau hafa lært og velja
að gera það á líflegan hátt með
búningum og skemmtilegu
tónlistarvali.
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
Vísnaþáttur 450
Heilir og sælir lesendur góðir.
Það er hin snjalla Guðrún Árnadóttir
ffá Oddsstöðum sem á fyrstu vísurnar
að þessu sinni.
Þegarfátt til yndis er
uni ég sátt að dreyrna.
Hvarflar þrátt í muna mér
margt sem átti að gleyma.
Hugans tnyndir horft á
hjartans littdir streyma.
Mínar syndir sé ég þá
sól ogyndi geyma.
Þar sem ég hef nýlega eignast talsvert af
vísum eftir útvegsbóndann og snjöllu
refaskyttuna Hinrik í Merkinesi, birti
reyndar tt'ær í síðasta þætti, langar mig
til að halda áfram með efni ffá honum.
Um hið íslenska veðurfar sem oft hefur
áhrif á störf bóndans yrkir Hinrik.
Saman rentia hitninn og haf
hellist Guðs úr könnutn.
Hann er að skola skítinn af
skepnutn bœði og tnönnutn.
Eitt ert van og anttað of
ersú reynsla fettgin.
Skœrt ttú Ijótnar skýjarof
skúrittn fram hjá genginn.
Horft til baka á efri árum.
Tœtnd var mörg ein flaska fríð
föluð ást hjá konutn.
Þetta er löngu liðitt tíð
liftr t minnittgonum.
Þar sem rnikið hefur verið rætt um álver
nú að undanförnu er gaman að rifja
næst upp þessa vísu Hinriks.
Álversþokan þykk og há
þjakar fleiru en mönnum.
Blessttð jarðarblótttin stttá
bliktta ogdeyja í hrönnuttt.
Á efri árum mun þessi hafa orðið til.
Líða tekur á lífs tttítts haust
latigur er tampur dreginn.
Sjálfsagt hef ég sett í naust
síðast hérna megittn.
ÓlafurSteinarValdimarssonvarráðu-
neytisstjóri í Samgönguráðuneytinu
á níunda áratug síðustu aldar. Eitt
sinn er hann var staddur á ráðstefnu
í Vestmannaeyjujm vildi svo illa til að
flugvél sem hann átti pantað far með
til lands. Fór um það bil er lokahóf
ráðstefnunnar stóð sem hæst. Missti
hann af vélinni og tók það ráð að
senda konu sinni svohljóðandi
skeyti.
Margt er um meyjar
mestatt part einar.
Ófœrt til Eyjar.
Ólafur Steinar.
Ragnheiður Magnúsdóttir frá Rrest-
bakka á Síðu, orti svo við andlátsfregn.
Hjartarœtur hryggðitt sker
heljar vakir gítta.
Alda dauðatts burtu ber
alla vini mína.
Við betri aðstæður yrkir hún þessa.
Vegir greiðast vorsins þrá
vertnir inn að hjarta.
Vesturleiðum ölluttt á
attga blóttt skarta.
Gísli Ólafsson skáld frá Eiríksstöðum
mun ver höfundur að næstu vísum.
Lífsins rökitt lýsa skammt
leiðir ökutn nautnar.
Rœtast stöku sinttuttt saint
svefns og vökudrautttar.
Fannstu löttgutn fánýt skjól
ferlega dimmir skuggar.
Ettda snéru undatt sól
allir þíttir gluggar.
Mikil umræða er þessa daga um pólitík
og fylgi hinna ýmsu stjórnmálaflokka.
Þykir fylgi Framsóknar mörgum ansi
lélegt. Kristján Stefánsson yrkir svo.
Atkvæðutn þarfœkkarfer
Framsókn völdum glatar sínum.
Títnabœrt að yrkja er
eftirmœli, ífjórum línunt.
Guðna að tnissa grátlegt væri
Guðtta aðfriða þyrfti strax.
Guðtti vill hafa hrygg og lœri
hala ogjúgur, tagl ogfax.
Þegar Egill Jónasson varð sextugur
mun vinur hans Baldur Baldvinsson
hafa sent honum þessa snotru vísu.
Sattna lýsittg listamanns
Ijóðadísir skrifa.
Munu hýsa minning hatts
ttteðatt vísur lifa.
Ef ég man rétt var það Stefán Vagnsson
sem sendi Halla frá Kambi þessar er
hann varð fimmtugur.
Heftr lifað hálfa öld
hraustur sigldi strikið.
Því tttun verða kátt í kvöld
kveðið og drukkið tttikið.
Heftr Braga og Bakkus við
bundið tryggðir slyttgar.
Þeirsem gattga uttt þeirra hlið
það eru Skagftrðingar.
Verið þar með
sæl að sinni.
Guðmuttdur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blöttduósi
Sími 452 7154