Feykir - 13.12.2007, Síða 2
2 Feykir 47/2007
Landsmálin
Guðbjaitur vill hætta
gangagjaldtöku
Guóbjartur Hannesson,
þingmaóur Samfylkingar í
Noróvesturkjördæmi, segist
ætla aó halda því til streitu
aó gjaldtöku af Hvalfjaröar-
göngum veröi hætt, þó sam-
gönguráóherra, sem er
flokksbróóir hans, setji
málið ekki á oddinn.
Guðbjartur sagði skiljanlegt
að á meðan að menn fengju
milljarð í tekjur á ári fyrir
gjaldtökuna væri freistandi að
halda því áfram. Hann er aftur
á móti viss um að þetta verði
endurskoðað á kjörtíma-
bilinu.
Heimild: Ruv.is
Leiðari
Misörlátirjólasueinar
Ég sótti son minn í skólann í hádeginu sem er svo sem
ekki í frásögur færandi nema fyrir það að umræðuefni
dagsins var að sjálfsögðu spurningin: „Hvaðfékkstþú
í skóinn?”
Sonur minnfékk hulstur utan um tannburstann sinn og
var alsæll með það. Annar hafðifengið tómat og hinn
þriðji gulrót. Heyrðistþá sagt utan úr horni -hann fékk
bara hulstur en ég fékk dvd mynd, sagði lítil skotta.
-Þetta er sko jól í Latabæ ekkert smá flott, bætti hún
við. Við mæðgin meðtókum skilaboð hennar og héldum
heim á leið. Spurðiþá sá stutti mig allt í einu afhverju
jólasveinninn gæfi sumum mynd en öðrum eitthvað
minna. -Ég er rosalega ánægður með mittsko, en ég
hefði alveg viljaðfá mynd líka, sagði hann og var hálf
hissa á mismiklu örlæti sveinka.
Sjálfvonast ég til þess að sveinarnir 13 lesi leiðara
Feykis og hafiþað í huga að öll ti'úa börnin nú á sömu
sveinana 13 og skilja því lítið íþví að þó að þau séu þæg
og góð komi meira ísuma skó en aðra. Hvaða skilaboð
erum við að senda börnum okkar með því að þiggja af
jólasveininum gjafir upp á fleiriþúsund, þrettán daga í
röðfyrirjólin? Erum við meðþví að segja aðþví dýrari
því betri og að ódýrar gjafir séu ekki líka góðar gjafir?
Kannski er ég bara svona gamaldags en þetta er eittlwað
sem mér finnst að sveinarnir þurfi að hafa í huga.
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
sími 898 2597
Óháð fréttablad á Norðurlandi vestra - alltaf á fímmtudögum
Feykir
Ulgetandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt I Sauðérkrúki
Póstfang Feykis:
Box 4, 550 Sauðérkrókur
Blnðstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
Herdis Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og
Péll Dagbjartsson.
Ritstjóri &
ébyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
Simi 455 7176
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson
oli@nyprent.is,
Örn Pórarinsson.
Prófnrkalestur:
Karl Jónsson
Askriftarverð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ebf.
Sími 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Starfshópur um eflingu Hólaskóla
Hólaskóli til mennta-
málaráðneytis
Forsætisráðherra hefur mælt
fyrir frumvarpi til laga um
tilfærslu verkefna innan
Stjórnarráðs íslands. Mun
þá Hólaskóli færast frá
landbúnaóarráðuneyti til
menntamálaráóuneytis.
Á ríkisstjórnarfundi þann 4.
desember sl. var síðan
samþykkt tillaga Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra um að
skipa starfshóp til að koma
nteð tillögur um framtíð og
skipan skólahalds á Hólum í
Hjaltadal og málefni Hóla-
staðar.
Starfshópinn skipa Guð-
mundur Árnason, ráðuneytis-
stjóri í menntamálaráðuneyti,
sem jafnffamt er formaður
hópsins, og alþingismennirnir
Sigurður Kári Kristjánsson,
Guðfinna S. Bjarnadóttir,
Guðbjartur Hannesson auk
Önnu Kristínar Gunnars-
dóttir.
Mun starfshópurinn setja
ff am tillögur er stuðla að frekari
uppbyggingu og eflingu
Hólaskóla, m.a. með hliðsjón
af þeirri endurskipulagningu
háskólastigsins sem ffam hefur
farið á undanförnum árum og
væntanlegu ffumvarpi um
ríkisháskóla. I tillögum sínum
skal starfshópurinn miða við
að tryggilega verði haldið um
málefni Hólastaðar og Hólar
haldi reisn sinni og stöðu sent
miðstöð mennta, menningar
og kirkjulegra málefna.
Norðlendingar geta sótt sér jólatré um helgina_
llmandi tié heim í stofu
Hin árlega jólatrjáasala
Skógræktarfélags A-Hún.
verður á Gunnfríðarstöðum
sunnudaginn 16. desember
og laugardaginn 22.
desember milli kl. 11-15.
Þá geta Skagfirðingar
höggvið sín tré þann 16.
í Húnavatnssýslu býðst
gestum og gangandi að konta
og höggva tré fýrir 3000 krónur.
Er þar í boði stafafura,
rauðgreni og blágreni. Að sögn
Páls Ingþórs Kristinssonar
hefur aðsókn í skóginn verið
góð undanfarin ár og er ágóði
jólatrjáasölunnar nýttur til þess
að kaupa fleiri tré til
gróðursetningar. Gera má ráð
fyrir að urn 40 tré verði
gróðursett fyrir hvert fellt tré.
í Skagafirði verður bæði
hægt að ná í tré á Hólunt og
eins í skógarreitinn við
Lindarbrekku milli kl. 12 og
15.
Er fólki bent á að taka með
sér sagir og í Skagafirði kosta
trén 3500 krónur fyrir
almenning og 3000 fyrir félaga
í Skógræktarfélaginu og er þar
fyrst og fremst stafafura í
boði.
Húnaþing vestra___________________
Ný vegtenging við
Laugarbakka
í haust hefur verið unnið við nýja vegtengingu fyrir þéttbýlið að
Laugarbakka í Miðfirði. Nýi vegurinn er tekinn útaf þjóðvegi 1
örskammt austan við brúna á Miðfjaróará.
Þar var gerður nýr vegur nyrsta húsið í þorpinu.
um 600 metra að lengd sem Ástæðan fyrir þessu er sú að
kemur inn á eldri veginn við eldri tenging er í talsverðri
brekku og var fr ekar þröng
fyrir stærri bíla auk þess
sem oft er hált í brekkunni.
Það var Guðmundur
Vilhelmsson verktaki á
Hvammstanga sem vann
verkið. Þessi nýja tenging
verður ekki tekin í notkun
fyrr en í vor. Þá mun
lokafrágangur fara frarn og
bundið slitlag verður lagt á
þennan nýja kafla. ÖÞ:
Uppskeruhátíð hesta-
manna í A-Hún.
Ólafur knapi
ársins
Uppskeruhátíð Hrossa-
ræktarsamtaka A-Hún. og
Hestamannafélagsins
Neista var haldin 1. des. sl.
Voru þar verðlaunuð efstu
kynbótahross í hverjum flokki
auk þess sem Ólafúr
Magnússon á Sveinsstöðum
var kjörinn knapi ársins hjá
Neista. Þá var hæst dæmda
hryssan Þruma fráSkagaströnd
8,27. Ræktunarbú ársins er
Sunnukvistir.
Skagafjörður
Hraðahindrun í
Freyjugötu
Eftir að búið er að meta kostnað við tillögur Ríkarðs
Mássonar og Björns Mikaelssonar varðandi bætta
umferðarmenningu við Árskóla hefur verið tekin
ákvörðun um að setja hraðahindranir við Freyjugötu.
Var þetta samþykkt á þann 6. desember sl. Jafnframt
fundi Skipulags- og var ákveðið að setja hindrun
byggingarnefndar Skagafjarðar og þrengingu á Ránarstíg.
Er eitthvað
að frétta?