Feykir - 08.05.2008, Síða 1
Borgarröst 5, Sauðárkrókur
Sími 453 6760 / 698 4342 Fax: 453 6761
Netfanq: malverk550@simnet.is
Elín Ásta Bjarnadóttir og
Vilhelm Berg Hafsteinsson
eignuðust lítinn baráttujaxl
Kraftaverkakarlinn
Hafsteinn Bjarni
Hafsteinn Bjarni Vilhelmsson er sjö
vikna kraftaverkakarl, sonur Vilhelms
Bergs Hafsteinssonar og Elínar Ástu
Bjarnadóttur. Hafsteinn litli var hætt
kominn viö fæöingu og var honum fyrstu
tvo sólahringa lífs sfns vart hugað líf.
Sjö vikum sfðar brosir þessi litla hetja
framan f blaðamann Feykis úr öruggum
móðurfaðmi.
» sjá bls. 6
Byggðarráð Skagafjaróar verður ekki við áætlun fræðslunefndar
Styrkur til söngskóla skertur
Byggðarráð Skagafjarðar
hefur afturkallað að
stærstum hluta styrk sem
Fræðslunefnd Skagafjarðar
hafði áður samþykkt að
veita Söngskóla Alexöndru.
Fræðslunefnd áætlaði
að styrkja skólann um
krónur 299.863 á mánuði
miðað við vorönn 2008, en
byggðarráð lækkaði þann
styrk niður í 60 þúsund
krónur á mánuði.
í bókum kemur fram
að fjárheimild ráðsins leyfi
ekki þá styrkupphæð sem
fræðslunefnd hafði áður lagt
til. Var þvi samþykkt að veita
Söngskóla Alexöndru styrk að
upphæð kr. 60.000 á mánuði
á vorönn. Styrkurinn er
veittur vegna þeirra nemenda
er hófu nám hjá Alexöndru í
Tónlistarskóla Skagafjarðar í
haust og fylgdu kennara sínum.
Jafnframt er sagt að ekki verði
um frekari styrkveitingar að
ræða þar sem Sveitarfélagið
Skagafjörður reki nú þegar
Tónlistarskóla.
Fulltrúar minnihluta
greiddu atkvæði á móti
styrkveitingunni og lögðu
báðir fram bókanir þar sem
þeir telja að ekki sé við hæfi
að styrkja tónlistakennslu í
einkareknum skólum á sama
tíma og sveitarfélagið reki
tónlistarskóla.
Húnavatnshreppur
Ottast afkomubrest í sveitarfélaginu
I ályktun frá Hreppsnefnd
Húnavatnshrepps leggst
nefndin alfarið gegn fyrir-
hugaðri innleiðingu á
mavælalöggjöf ESB og
skorar á Alþingi að stöðva
frumvarpið.
f ályktun kemur fram að
augljóst sé að frumvarpið setji
landbúnað og vinnslustöðvar
í mikið uppnám og ógni heil-
brigði íslensks búfjár. Húnava-
tnshreppur sé mikið landbú-
naðarsvæði og hreppsnefnd
þykir sýnt að með samþykkt
frumvarpsins verði afkomu-
brestur hjá íbúum sveitar-
félagsins með ófyrirsjáan-
legum afleiðingum. Þá vill
hreppsnefndin vekja athygli
á að forsætisráðherra skipaði
Norðvesturnefnd og hefur hún
það hlutverk að styrkja byggð
og atvinnu á Norðvesturlandi.
Landsmót 2010
f.v. Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands hestamannafélaga,
Eymundur Þórarinsson, f.h. Gullhyls rekstraraðila svæðisins og
Lárus Dagur Pálsson, stjórnarformaður Landsmóts hestamanna ehf.
Landsmót hestamanna
2010 á Vmdheimamelum
I framhaldi af ákvörðun undirrituðufulltrúiSkagfirðinga
stjómar LH þann 14. des. og fulltrúar mótshaldara þann
2007 um að hefja viðræður við 2.05.2008 samning um að 19.
Skagfirðinga um að Landsmót Landsmót hestamanna verði á
hestamanna2010verðihaldiðá Vindheimamelum í Skagafirði
Vindheimamelum í Skagafirði, 28. júní - 4. júlí 2010.
VIÐ BÓNUM 0G RÆSTUM!
Daglegar ræstingar og
reglubundið viðhald á bóni
í fyrirtækjum og stofnunum
Hringdu núna eða sendu tölvupóst
Sími: 846 7007 ' Netfang: siffo.ohive.is
Bílaviðgerðir
hjólbarðaviðgerðir
réttingar • •
og sprautun x %