Feykir - 17.09.2009, Blaðsíða 11
34/2009 Feylcir 11
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR )
Selma og synir kokka og baka
Uppáhalds muffinskökur
Sigurgeirs & Bjartmars
-Nú eru réttir um hverja helgi og margt um manninn. Þá er
gúllassúpa auðveld og góð. Með henni hef ég brauðbollur.
Karamellusúkkulaðistangir eru góðar með kaffinu eftir
matinn, segir Selma Svavarsdóttir ökukennari á Blönduósi
en hún og synir hennar þeir Sigurgeir Njáll Bergþórsson 12
ára og Bjartmar Dagur Bergþórsson 6 ára leyfa lesendum
Feykis að njóta þessara uppskrifta með sér.
Sigurgeir Njáll og Bjartmar Dagur baka stundum á föstudögum
og ætla að gefa ykkur uppskriftina af uppáhalds muffmskökunum
sínum. Ragnar Stefánsson og Sandra Maria Marin hrossaræktend-
ur og tamningamenn á Efri-Mýrum ætla að taka áskorun Selmu og
sona og koma með næstu uppskriftir.
Súkkulaðibita
muffins
2.5 bollar hveiti
1.5 bollarsykur
1 tsk. natron
1 tsk salt
2 msk. vanillusykur
3egg
1 dósjógúrt
220gr. brætt smjörlíki
150-200gr. saxað suðusúkkulaði
Allt hrært saman, sett í múffuform og
bakað við 190° C í ca. 15-20 mín.
Ég nota alltaf sömu uppskriftina í alit
gerbrauð, bollur og/eða snúða. Nota
bara hugmyndaflugið hvernig brauð
maður vilL
6 dl volgt vatn og mjólk (nota 3+3)
3 msk þurrger
3 msk sykur (hrásykur)
1 tsk salt
150 gr. brcett smjörlíki
Um 1 kg. hveiti (spelt)
(1 -2 dL hveitiklíð eða eitthvað annað)
Allt sett saman og hnoðað vel, látið
hefast á hlýjum stað þar til það hefur
lyft sér. Bollur mótaðar og bakað við
225 Cí ca. lOmín.
Gúllassúpa
Ég nota lambakjöt í gúllassúpuna, fer
bara í SAH afúrðir og kaupi heiian
skrokk og sker eitthvað af honum í
gúllas. Uppskriftin er fyrir sex.
700gr. gúllas (á að vera nautakjöt)
2 laukar
3 hvítlauksrif
1 msk paprikuduft
liíL vatn
2 teningar kjötkraftur
1- 2 tsk meiran
700gr. kartöflur
2- 3gulrætur
2 paprikur
4-5 tómatar
eða 1 dós niðursoðnir (400g)
Steikið kjötið ásamt lauk og pressuðum
hvítlauk. Setið í pott með vatninu
ásamt kryddinu og sjóðið við vægan
hita í 40 mín. Kartöflur, guirætur,
paprika og tómatar skorið í bita og því
bætt út í og soðið í 30 mín. Kryddið
meira ef vilL
Karamellu-
súkkulaðistangir
Uppskriftina af karamdlusúkkulaði-
stöngunum fékk ég hjá Jóhönnu
Steinunni mágkonu minni. Þær eru
ofboðslega góðar og gott að eiga í
frystikistunni, laumast í eina og eina...
Botn:
225gr. hveiti
'A tsk lyftiduft
115gr.smjör
50 gr. Ijós púðursykur
150 gr. suðusúkkulaði, brætt
2 msk. malaðar möndlur (má sl.)
Hita ofninn í 160 C. Sigta hveiti og
lyftiduft í skál. Bæta smjörinu í og
hnoða saman þar til það líkist grófri
brauðmylsnu.
Hræra sykri og möndlum saman við.
Bræða súkkulaði, bæta því út í og
hnoða í samfellt deig. Þrýsta deiginu
á botninn á vel smurðu ferköntuðu
kökumóti (lítil ofnskúffa, ca. 20x30
að stærð).
Pikka deigið með gaffli og baka í
miðjum ofni í 25-30 mín. Láta kökuna
kólna í forminu.
Fylling;
175gr.smjör
115gr.sykur
2 msk síróp
1 V: dl. rjómi
150 gr. heslihnetur
225gr. suðusúkkulaði
1-2 tsk olía
Rista hnetur á þurri pönnu. Smjör,
sykur, síróp og rjómi sett í pott og
sjóða þar til það verður nokkuð þykkt.
Setja hneturnar fyrir botninn (ekki
allir spenntir fyrir hnetum svo þarf
ekki allar). Hella karamellunni yfir og
látið storkna. Bræða súkkulaði, oh'a
sett saman við og því síðan jafnað yflr
karamelluna og látið storkna. Skerið
kökuna með beittum hníf í stangir/
bita. Geymið í frysti.
Verði ykkur að góðu!
( GUÐMUNPUR VALTÝSSON )
Vísnaþáttur 506
Heilir og sælir lesendur góðir.
Byrjum á ágætri haustvísu sem ég veit
reyndar ekki eftir hvern er. En á blaði í
drasli mínu stendur undir henni R.R.
Gaman að heyra frá lesendum ef þeir vita
hver er.
Hljóðttar raust og bliknar blað
bilar traust á mátt sinn eiginn,
þegar hausti hallar að
heim í naust er bátur dreginn.
Það er Erlendur Hansen á Sauðárkróki
sem orðar svo laglega beiðni um
næturgistingu.
/ kvöldhúminu sest er sól
sígur vcerð á frúna.
Hefurþú ekki húsaskjól
handa okkur núna.
Önnur vísa kemur hér eftir Ella.
Otlitið er öskugrátt
andar kalt á stráin.
Lóanfór með líknarmátt
og litlu blómin dáin.
Mikið fréttaefni þótti er sá er gegnir
nafninu Sigmundur Ernir steig i ræðustól
alþingis 25. ágúst síðastliðinn. Af því
tilefni yrkir Elli.
Eins ogfossinn fjötralaus
fram afbergi glitrar.
Aðrir virðast hengja haus
höndin bláa titrar.
Ég held að Bjami úrsmiður hafi ort
þessar.
Svefninn stundum svíkur mann
og sveimarfrá.
Mér leiðist ekki andvakan,
égyrki þá.
Ég er hress og ég erglaður,
égget ekki neitað því.
Ég er eins og annar maður
eftir vikufyllerí.
Þá held ég að næsta vísa sé einnig eftir
Bjarna. Talar hann þar reyndar ekki
fallega um granna sína í vestri.
Allirgrútar okkar lands
eru í Hrútafirði.
Þó er ekki útlit hans
eldhúsklútavirði.
Eins og göngur og réttir tilheyra
hausttímanum, er einnig kvöð á mörgum
bændum að moka skít. Jón Sigurðsson
bóndi í Skollagróf mun hafa ort þessa um
slíkt athæfi.
Ekki þarfsköpum að skipta
skartsins kvein ég lít.
Því huganum hátt má lyfta
þó hendurnar moki skít.
Á efri árum mun Jón hafa ort þessa.
Hœgt að ósifeigðarflýt
fátt ég um það skrifa.
Meðan égget mokað skít
mun égglaður lifa.
Davíð Hjálmar Haraldsson er eins og
margir vita snjall við að yrkja limrur.
Þessar munu eftir hann.
Atli var illkvittinn sauður
ófrómur, lýginn og blauður.
Umbreyttist hann
í öndvegismann
í útfararæðunni, dauður.
Það var aldeilis ótrúleggomma
sem oft fylgdi Jóa og Tomma
affeiti ogsápum
er fóldust í skápum
affœlni við svonefnda homma.
Þar sem nú er einu sinni enn komin tími
gangna og rétta er ágætt að rifja upp
vísur sem tengjast þeim störfúm. Það
mun vera Kristján Stefánsson frá Gilhaga
í Skagafirði sem yrkir svo við brottför úr
Bugaskála á Eyvindarstaðarheiði.
Þó aðfrysti ogfólni blað
finnst mér list að una.
Þeir sem gista þennan stað
þakka vist og muna.
Ef ég fer rétt með mun þessi vísa ort
það mikla hríðarhaust 1963 þegar
gangnamenn í Vestflokk börðust í
norðan blindhríð úr Áfangaflá við
Strönguhvísl út í Buga þriðjudaginn 24.
september. Næsta dag er enn brjáluð
hríð og brutust þá gangnamenn ofan að
Stafni í Svartárdal. Fengu menn, hestar
og hundar, þar rausnarlegar viðtökur
eins og jafnan áður. Er haldið var á stað
heim á fimmtudag mun Kristján hafa ort
þessa.
Gisting þakkað get égfús
greint með huga sönnum
að enn sem fyrr var opið hús
öllum gangnamönnum.
Annan október var farið aftur í Buga til
að freista þess að bjarga einhverju af fé til
byggða. Einn af þeim sem fór í þá för var
Sveinn Jóhannsson bóndi á Varmalæk.
Seint hefur það trúlega gengið, eftir
þessari hógværu vísu hans að dæma.
Þegar heimahögum fjœr
heiðarlöndin könnum.
Geta svona tvœr og tvœr
tafiðfyrir mönnum.
Þegar rætt var um hvernig til hefði tekist
í fyrri ferðinni, lagði Sveinn þetta til
málanna.
Það munfara að breytast
með þjóðarinnar hag
efþarfað telja óreglu til dyggða.
Enginn reyndistfullur,
aldrei tekið lag
og engri skepnu komu þeir til byggða.
Verið þar með
sœl að sinni.
Guðimmdur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
Sími 452 7154