Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1945, Page 11

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1945, Page 11
Þjóðaratkvæðagreiðsla 1944 9 greiðslunni hefur verið mikil í hverjum lireppi. Sésl þá, að í 116 hrepp- um (auk Seyðisfjarðarkaupstaðar) eða í meir en helmingi allra hreppa á landinu hafa allir kjósendur greilt atkvæði og í engum hreppi á land- inu hefur hluttakan farið niður úr 95%. Þegar litið er sérstaklega á hluttöku karla og kvenna í atkvæða- greiðslunni, þá sést á 1. yfirliti (bls. 8), að hluttaka kvenna er heldur minni en karla, en miklu munar það fekki. Af öllum kvenkjósendum greiddu atkvæði 98.2%, en 98.5% af karlkjósendum. 5. Atkvæðagreiðsla utanlireppsmanna. Votanls hors de leur district. Samkvæmt kosningalögunum má kjörstjórn leyfa manni, sem ekki stendur á kjörskránni, að greiða atkvæði, ef hann sannar með vottorði sýslumanns, að hann standi á annarri kjörskrá í kjördæminu, og að hann hafi afsalað sér þar kosningarrétti. Við sambandslagaatkvæða- greiðsluna 1944 notuðu 204 menn sér þennan rétt til þess að greiða atkvæði á öðruin kjörstað heldur en þar sem þeir stóðu á kjör- skrá. Var það aðeins 0.3% af öllum þeim, sem atkvæði greiddu, og tölu- vert færra heldur en við alþingiskosningarnar sumarið 1942, en þá var minnst um atkvæðagreiðslur með slikum hætti (0.3%),. Þar sem slík atkvæðagreiðsla utanhreppsmanna getur aðeins átt sér stað í sýslun- um, en ekki i kaupstaðakjördæmunum, væri þó réttara að bera tölu þessara atkvæða saman við greidd atkvæði utan kaupstaðakjördæm- anna. Hækkar þá hlutfallstalan við atkvæðagreiðsluna 1944 upp í 0.c%, en við sumarkosningarnar 1942 upp í 0.»%. Af þeim, sem atkvæði greiddu á kjörstað utanhrepps, voru 116 karlar og 88 konur. í töflu I (bls. 13) er sýnt, hve margir greiddu atkvæði á þennan hátt í hverju kjördæmi á landinu og í 1. yfirliti (bls. 8), hve margir það hafi verið í samanburði við þá, sem atkvæði greiddu alls í kjördæminu. (i. Bréfleg atkvæði. Votes par lettre. Samkvæmt kosningalögunum er þeim, sem staddir eru, eða gera ráð fyrir að vera staddir, utan þess hrepps eða kaupstaðar, þar sem þeir standa á kjörskrá, þá er kosning fer fram, og ekki neyta hins almenna réttar til þess að greiða atkvæði á öðrum kjörstað i sama kjördæmi, leyft

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.