Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1950, Síða 8
6
Alþingiskosningar 1949
45%. Og með stjórnarskrárbreytingunni 1934 var aldurstakmark allra
kjósenda lækkað niður í 21 ár og sveitarstyrkþegum veittur kosningar-
réttur. Við það liækkaði kjósendatalan svo, að hún komst upp yfir 56%,
og síðan 1942 hefur hún verið nálægt 60%.
Af kjósendatölunni 1949 voru 49.2% karlar, en 50.s% konur. Koma
1033 kvenkjósendur á móts við hvert þúsund karlkjósenda, þar sem
hinsvegar enginn teljandi munur er á tölu allra karla og kvenna á
landinu. Stafar þetta af því, að innan við kosningaraldur (21 ár) eru
heldur fleiri karlar heldur en konur, en á kosningaraldri eru konur
þeim mun fleiri.
Af öllum kjósendum á landinu 1949 komu að mcðaltali 1 586
kjóscndur á hvern þingmann, en 1 494 við næstu kosningar á undan,
um vorið 1946.
Tahi kjósenda í hverju kjördæmi við kosningarnar 1949 sést á töflu
I (hls. 18). Töluvert ósamræmi er milli kjósendatölu og þingmannatölu
í einstökum kjördæmum, enda eiga uppbótarþingsætin að bæta úr því.
Minnst kjósendatala kemur á þinginann á Seyðisfirði, 465, þar næst i
Norður-Múlasýslu, 728, og í Austur-Skaftafellssýslu, 753, en í 7 kjör-
dæmum alls koma færri en 1000 kjósendur á þingmann. Aftur á móti
kemur hæst kjósendatala á þingmann í Gullbringu- og Kjósarsýslu,
4 397, og þar næst á Akureyri, 4 078, og Reykjavík, 4 076. í öðrum
kjördæmum koma færri en 3000 kjósendur á þingmann.
2. Kosningahluttaka.
Participntion des élcctcurs.
Við kosningarnar haustið 1949 greiddu alls atkvæði 73 432 manns
eða 89.o% af allri kjósendatölunni ó landinu.
Síðan 1874 hefur kosningahluttakan verið:
I'ar sem ut- I\ar scm at-
kvæðngreiðsla Á öllu kvæðagrciðsla Á öllu
fór fram landinu fór fram landinu
1874 .. . . . . — 19.6 % 1919 .... .. 58.7 % 45.4 %
1880 .. . . . . — 24.7 — 1923 .... .. 75.6 — 70.o —
1886 .. . .. . — 30.o — 1927 . . 71.5 —
1892 .. . . . . — 30.5 — 1931 .... — 78.2 —
1894 .. . . . . — 26.4 — 1933 .... .. 71.2 — 70.1 —
1900 .. . ... — 48.7 — 1934 .... — 81.5 —
1902 .. . .. . — 52.6 — 1937 .... — 87.o —
1903 .. . . . . — 53.1 — 1942 % . — 80.3 —
1908 .. .... 75.7 % 72.4 — 1942 — 82.3 —
1911 .. . . . . 78.4 — 1944 — 98.4 —
1914 .. .... 70.o — 55.3 — 1946 — 87.1 —
1916 .. .... 52.6 — 48.2 — 1949 — 89.o —
1918 ... , , . , 43.8 —