Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1950, Síða 18
16
Allnngiskosningar 1949
til jöfnunar milli þingflokka þannig, að hver þeirra fái þingsæti í sem
fyllslu samræmi við atkvæðatölu sína við kosningarnar. En þingflokkur
telst í þessu sambandi aðeins sá flokkur, sem komið hefur að þingmanni
í einhverju kjördæmi.
Atkvæðatala þeirra 4 flokka, sem fengu þingmenn kosna í kjördæm-
um og tala hinna kosnu þingmanna var þessi:
Ivosnir Meðaltal
Atkvæði þingmenn á þingmann
Sjálfstæðisflokkur .................... 28 546 17 1 679-yiT
FrainsóknarfloUkur .................... 17 659 17 1 038>yi7
Sósialistaflokkur ..................... 14 077 3 4 692%
Alþýðuflokkur ......................... 11 937 4 2 984%
Lægsta meðaltalið telst hlutfallstala kosningarinnar og miðast út-
hlutun uppbótarþingsæta við hana. Hve mörg uppbótarþingsæti liver
þingflokkur skuli hljóta, finnst með því að deila í atkvæðatölu hans
með tölu þingmanna flokksins kosinna í kjördæmum, fj’rst að viðbættum
1, síðan 2, þá 3 o. s. frv., unz síðuslu útkomurnar geta á þennan hátt
ekki orðið jafnari hlutfallstölunni. Uppbótarþingsætunum er nú úthlut-
að til þingflokka eftir útkomunum við þessar deilingar, þannig að fyrsta
uppbótarþingsætið fellur til þess þingflokks, sem hæsta á útkomuna,
annað til þess, sem á hana næsthæsta, og síðan áfram eftir hæð út-
komutalnanna, unz eitt uppbótarþingsæti hefur fallið á hverja þeirra. Þó
er hér á gerð sú takmörkun, að ekki er úthlutað nema 11 uppbótarþing-
sætum, hversu mörgum sætum sem þá kynni að vera eftir að úthluta til
þess að ná sem mestum jöfnuði við lilutfallstöluna fyrir alla þingflokka.
I töflu V A (bls. 33) er sýnt, hvernig uppbótarþingsætum hefur verið
úthlutað til flokkanna við kosningarnar 1949 og jafnframt sýnt,
hvernig úthlutunin hefði orðið, ef haldið hefði verið áfram að úthluta
uppbótarþingsætum þangað til fenginn hefði verið sem mestur jöfnuður
við Frainsóknarflokkinn.
Af uppbótarþingsætunum, sem úthlutað var 1949 hlaut Sósialista-
flokkurinn 6, Alþýðuflokkurinn 3 og Sjálfstæðisflokkurinn 2. Varð þá
þingmannatala þessara flokka og meðaltal atkvæða á hvern þingmann
svo sem hér segir:
Þing- Atkvæði
menn á þingmann
Sjálfstæðisflokkur 19 1 502VH&
Framsóknarflokkur 17 1 OSS1^
Sósialistaflokkur 9 1 564V6
Alþýðuflokkur 7 1 705V\
Ef halda hefði átt áfram að úthluta uppbótarþíngsætum þangað til
fenginn væri sem mestur jöfnuður fyrir alla þingflokka, þá liefði, eins og
sjá má af töflu V A (hls. 33), orðið að úthluta 16 þingsætum i viðbót eða
alls 27 uppbótarþingsætum. Af þessum 16 viðbótarsætum hefðu 8 farið