Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1960, Page 18
16
Alþingiskosningar 1959
8. URSLIT KOSNINGANNA
The outcome of the elections
í töflum IV (bls. 30) og VIII (bls. 55) sést, hver urðu úrslit kosninganna í hverju
kjördæmi og hvernig gild atkvæði féllu a hvern framboðslista eða einstaka frambjoð-
endur, en samandregið yfirlit um þetta er að finna í 3. yfirliti (bls. 15). í töflu IV
eru einnig sýnd til samanburðar kosningaúrslitin í hverju kjördæmi við kosningarnar
1956.
Gild atkvæði við kosningarnar 1959 voru alls 84788 við sumarkosningarnar og
85095 við haustkosningarnar, og skiptust þau sem hér segir á flokkana (til saman-
burðar eru tilsvarandi tölur frá kosningunum 1956):
1956 28/6 1959 25/10 1959
Atkvæði °lo Atkvæði °lo Atkvæði °lo
Sjálfstæðisflokkur .... 35027 42, 4 36029 42, 5 33800 39, 7
Framsóknarflokkur .... 12925 15, 6 23061 27,2 21882 25, 7
Alþýðubandalag 15859 19, 2 12929 15,3 13621 16, 0
Aljjýðuflokkur 15153 18, 3 10632 12,5 12909 15, 2
Þjoðvarnarflokkur .... 3706 4, 5 2137 2,5 2883 3,4
Utan flokka 8 0, 0 - - - -
Samtals 82678 3 00, 0 84788 100, 0 85095 100, 0
í sumarkosningunum var meira eða minna um landslistaatkvæði í öllum kjör-
dæmunum. Heildartala þeirra var 4692 eða 5, 5°Jo af gildum atkvæðum. Hvernig
þau skiptast eftir kjördæmum og á flokkana sést í 4. yfirliti (bls. 17). Við haust-
kosningarnar var ekki um nein landslistaatkvæði að ræða, eins og getið er um í 1.
kafla inngangsins.
Við samanburð á atkvæðatölum Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins annars
vegar við kosningar 1959 og hins vegar við kosningar 1956 verður að hafa í huga, að
þessir flokkar höfðu kosningasamvinnu sín á milli 1956, þannig að þeir höfðu hvergi
báðir frambjóðendur í sama kjördæmi.
9. ÚTHLUTUN UPPBOTARPINGSÆTA
Allocation of supplementary seats
Hvernig atkvæði hafa fallið í hverju kjördæmi í hvorum kosningum fyrir sig sést í
töflum IV (bls. 30) og VIII (bls. 55)% En þegar landskjörstjórn hafa borizt skýrslur um
kosningarnar í kjördæmunum, skal hún úthluta 11 uppbótarþingsætum til jöfnunar milli
þingflokka, þannig að hver þeirra fái þin^sæti í sem fyllstu samræmi við atkvæðatölu
sína við kosningarnar. Þingflokkur telst í þessu sambandi aðeins sá flokkur, sem kom-
ið hefúr að þingmanni í einhverju kjördæmi.
Atkvæðatala þeirra fjögurra flokka, sem fengu þingmenn kosna í kjördæmum, og
tala hinna kosnu þingmanna var þessi:
Sumarkosningar Atkvæði Kosnir þingmenn Atkvæðamagn a þingmann
Sjálfstæðisflokkur . . . . 36029 20 1801 9/20
Framsóknarflokkur . . . 23061 19 1213 14/19
Alþýðubandalag 12929 1 12929
Alþýðuflokkur 10632 1 10632
Haustkosningar Sjálfstæðisflokkur . . . . 33800 21 1609 11/21
Framsóknarflokkur . . . 21882 17 1287 3/17
Alþýðubandalag 13621 6 2270 1/6
Alþýðuflokkur 12909 5 2581 4/5