Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1960, Side 68
Hagstofa Islands
gefur út eftirtalin rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ýtarlegar skýrslur um þau efni, sem
Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í sjálfstæðum heftum,
og fást þau keypt einstök. Menn geta b'ka gerst áskrifendur að Hagskýrsl-
unum með því að snúa sér beint til Hagstofunnar, Arnarhvoli, Reykjavík.
Sími 24460. — Áskrifendur að Hagskýrslunum fá þær sendar jafnóðum og þær
koma út, en vegna óvissu um, hvaða hefti og hve mörg koma út árlega, er
ekki um að ræða fast áskriftargjald, heldur greiða áskrifendur jafnóðum hið
ákveðna verð skýrslnanna, eða fleiri hefti í einu, eftir því sem henta þykir.
H. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um innflutning og
útflutning, fiskafla, hag bankanna, framfærsluvísitölu og ýmislegt fleira, sem
ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslum. Enn fremur
bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma um ýtarlegri skýrslur.
Áskriftargjald er 25 krónur um árið.