Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1964, Blaðsíða 8
6
Alþingiskosmngar 1963
1874, og sömuleiðis er þar stuttlega greint frá skilyiðum fyrir kosningarrétti síðan
1903. Vísast til þess.
Af kjósendatölunni 1963 voru 49,9% karlar, en 50,1% konur. Koma 1 006
kvenkjósendur á móts við hvert þúsund karlkjósendur.
Af öllum kjósendum á landinu 1963 komu að meðaltali 1 663 kjósendur á
hvern þingmann, en 1 594 við næstu kosningar á undan, liaustið 1959.
1 töflu I á bls. 14 er sýnd tala kjósenda í hverju kjördæmi svo og í hverjum
kaupstað, hverri sýslu og hverjum hreppi. Enn fremur er sýnd tala kjósenda á
hverjum kjörstað í Reykjavík. Tala kjósenda á hvern kjördæmiskosinn þingmann
var sem hér segir í hverju kjördæmi í alþingiskosningum 1963:
Reykjavík .................................. 3 521
Reykjaneskjördæmi........................... 2 751
Vesturlandskjördæmi......................... 1 326
Vestfjarðakjördæmi.......................... 1 108
Norðurlandskjördæmi vestra ................. 1 154
Norðurlandskjördæmi eystra ................. 1 867
Austurlandskjördæmi ........................ 1 160
Suðurlandskjördæmi ......................... 1 476
2. Kosningarþátttaka.
Participation in elections.
Við kosningarnar sumarið 1963 greiddu atkvæði alls 90 958 kjósendur eða
91,1% af heildarkjósendatölunni. Mest hefur þátttaka í alþingiskosningum orðið
1956 eða 92,1%, en við atkvæðagreiðsluna um niðurfelling sambandslaga og stofnun
lýðveldis 1944 var þátttakan 98,4%.
í skýrslu Hagstofunnar um alþingiskosningar 1949, bls. 6—8, er gerð nokkur
grein fyrir þátttöku í kosningum frá 1874. Vísast til þess.
Síðan 1934 hefur kosningarþátttaka verið sem hér segir:
1934 81,5% 1949 89,0%
1937 87,9 „ 1953 89,9,,
1942 6/, ...... 80,3 „ 1956 92,1 „
1942 18/10 82,3,, 1959 “/„ 90,6 „
1944 98,4,, 1959 !6/10 90,4 „
1946 87,4 „ 1963 91,1 „
Þegar htið er sérstaklega á þátttöku karla og kvenna í kosningunum, þá sést
í 1. yfirhti (bls. 7), að þátttaka kvenna er minni en þátttaka karla. Við kosningar
1963 greiddu atkvæði 93,1% af karlkjósendum, en 89,2% af kvenkjósendum. Við
haustkosningar 1959 voru þessi hlutföll 93,0 og 87,8 og við sumarkosningar 1959
voru þau 93,1 og 82,2.
í töflu I (bls. 14) sést, hve margir af kjósendum hvers kjördæmis og hvers
umdæmis innan þeirra hafa greitt atkvæði við kosningar 1963. Hve mikil kosningar-
þátttakan var ldutfahslega í einstökum kjördæmum, sést í 1. yfirhti (bls. 7). Mest
var kosningarþátttakan í Suðurlandskjördæmi (93,2%), en minnst í Norðurlands-
kjördæmi vestra (89,9%). Þátttaka karla var mest í Suðurlandskjördæmi (96,5%),
en kvenna í Vesturlandskjördæmi (90,5%). Kosningarþátttaka karla var minnst
í Reykjavík (91,7%), en kvenna í Norðurlandskjördæmi vestra (86,7%). Þátt-
taka kvenna var í öUum kjördæmum minni en þátttaka karla, þar sem hún var
minnst.