Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1964, Blaðsíða 11

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1964, Blaðsíða 11
Alþingiskosningar 1963 9 kjörskrá, áður en kjörfundi lyki. Þessu var breytt með núgildandi kosningalögum, nr. 52/1959. Samkvæmt 5. málsgr. 71. gr. þeirra laga er nægjanlegt, að bréfi með utankjörfundaratkvæði sé komið í einhverja kjördeild þess kjördæmis, þar sem hlutaðeigandi er á kjörskrá, áður en kjörfundi lýkur. Skulu kjörstjórnir senda slík bréf aðskilin til yfirkjörstjórnar. Kvað nokkuð að þeim í alþingiskosningum 1963. í töflu I (bls. 14) er sýnt, hve mörg atkvæði voru greidd utan kjörfundar í bverju kjördæmi við kosningarnar 1963, og einnig, hvernig þau skiptust á sveitar- félög. í 1. yfirliti (bls. 7) er samanburður á því, bve mörg atkvæði komu á hvert 100 greiddra atkvæða í hverju kjördæmi. Sést þar, að Vesturlandskjördæmi var með tiltölulega flest utankjörfundaratkvæði eða 9,4%, en Reykjaneskjördæmi fæst, með 7,2%. Við kosningarnar 1963 voru 2 851 af utankjörfundaratkvæðum, eða 37,6%, frá konum. Af hverju 100 karla og kvenna, sem greitt hafa atkvæði, hafa kosið bréflega: Karlar Konur Karlar Konur 1934 7,7% 5.2% 1949 • • io,o% 5,8% 1937 15,3 „ 6,4 „ 1953 10,3 „ 7,8 „ 1942 6/j 13,2 „ 9,4 „ 1956 10,8 „ 8,3 „ 1942 18/10 .... 8,1 „ 4,8 „ 195 9 28/„ .... 13,4 „ 8,3 „ 1944 17,7 „ 19,7 „ 1959 28/10 .... 9,4 „ 5,4 „ 1946 15,1 „ 10,3 „ 1963 • ■ 10,2 „ 6,4 „ Hið háa hlutfall kvenna 1944 stafar eingöngu af licimakosningum, því að konur notuðu sér þær miklu meira en karlar. í skýrslu Hagstofunnar um alþingiskosningar 1949 er gerð grein fyrir bréf- legri atkvæðagreiðslu við kosningar allt aftur til ársins 1916, og vísast til þess. 4. Atkvæðagreiðsla utan sveitarfélags á kjördegi. Voting on election day outside voters' home commune. Samkvæmt alþingiskosningalögum (sjá 82. gr. laga nr. 52/1959) má kjör- stjórn leyfa manni, sem ekki stendur á kjörskránni, að greiða atkvæði, ef hann sannar það með vottorði, að hann standi á annarri kjörskrá í kjördæminu og hafi afsalað sér kosningarétti þar, og sé vottorðið gefið út af undirkjörstjórn þeirrar kjördeildar. Við kosningarnar 1963 greiddu 154 kjósendur atkvæði á kjördag í öðru sveitarfélagi en þar, sem þeir stóðu á kjörskrá, og var það 0,2% af þeim, sem atkvæði greiddu alls. Slík kosning utan sveitarfélags getur ekki átt sér stað í Reykjavík, en í öllum öðrum kjördæmum, og sé tala þessara atkvæða borin saman við greidd atkvæði utan Reykjavíkur, verður hlutfallstala þeirra 0,3%. í töflu I (bls. 14) er sýnt, hve margir kusu á þennan hátt í hverju kjördæmi á landinu, og í 1. yfirliti (bls. 7), hve margir þeir hafa verið í samanburði við þá, sem atkvæði greiddu alls í kjördæminu. Tiltölulega flestir hafa það verið í Austur- landskjördæmi (0,9%). 2

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.