Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1980, Qupperneq 15

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1980, Qupperneq 15
1979 13 8. ÖTHLUTUN UPPBÓTARÞINGSÆTA. Allocation of supplementary seats. í töflu III A (bls. 27) sést. hvernig atkvæði hafa fallið í hverju kjördæmi. Þegar landskjörstjórn hafa borist skýrslur um kosningamar í kjördæmunum, skal hún úthluta 11 uppbótarþingsætum til jöfnunar milli þingflokka, þannig að hver þeirra fái þingsæti í sem fyllstu samræmi við atkvæða- tölu sína við kosningamar. Þingflokkur í þessu sambandi telst aðeins sá flokkur, sem komið hefurað þingmanni í einhvequ kjördæmi. Atkvæði, sem fallið hafa á lista utan flokka.koma ekki til greina við úthlutun uppbótarþinasæta. Atkvæðatala þeirra fjögra flokka, sem fengu þingmenn kosna í kjördæmum.og talahinna kosnu þingmanna var þessi: Kosnir Atkvæðamagn Atkvæði þingmenn á þingmann Sj álfstæðisflokkur...................... 43838 14 3131 4/14 Framsóknarflokkur................... 30861 17 1815 6/17 A lþýðubandalag..................... 24401 10 2440 1/10 A lþyðuflokkur...................... 21 580 7 3 0 82 6/7 Hve mörg uppbótarþingsæti hver þingflokkur skuli hljóta.finnstmeð þvíað deila f atkvæðatölu hans með tplu þingmanna flokksins kosinna f kjördæmum, fyrst að viðbættum 1, síðan 2, þá 3 o. s. frv. Uppbótarþingsætunum er síðan úthlutað til þingflokka eftir útkomunum við þessar deilingar, þannig að fyrsta uppbótarþingsætið fellur til þess pingflokks, sem hæsta á útkomuna, annað til þess sem a hana næsthæsta, og síðan áfram eftir hæð utkomutalnanna, uns eitt uppbótarþingsæti hefur fallið á hverja þeirra. Þo er hér á gerð sú takmörkun, að ekki er úthlutað nema 11 uppbótarþing- sætum, hversu mörgum sætum sem þá kynni að vera eftir að úthluta til þess að ná sem mestum jöfnuði við hlutfallstöluna fyrir alla þingflokka. Eftir stjórnarskrárbreytinguna 1959 skal ávallt út- hluta 11 uppbótarþingsætum, jafnvel þott fullur jöfnuður náist með færri uppbótarþingsætum. f töflu IV (bls. 30) er sýnt, hvemig uppbótarþingsætum hefur verið úthlutað til flokkanna við kosn- ingarnar 1979, og jafnffamt kemur þar fram, hvemig úthlutunin hefði orðið, ef haldið hefði verið áfram að úthluta uppbótarþingsætum, þar til fenginn hefði verið sem mestur jöfnuður við þann flokkinn, sem hefur lægsta hlutfallstölu. A f uppbótarþingsætum, sem úthlutað var 1979, hlaut Alþýðuflokkurinn 3, Alþýðubandalagið 1 og Sjálfstæðisflokkurinn 7 uppbótarþingsæti. Þingmannatala flokkanna og meðaltal atkvæða á hvern þingmann varð þá sem hér segir: Sj álfstæðisflokkur 2087 11/21 Framsóknarflokkur 1815 6/17 A lþýðubandalag 2218 3/11 A lþyðuflokkur 2158 Ef halda hefði átt áfram_ að úthluta uppbótarþingsætum, þar til fenginn væri sem mestur jöfn- uður milli þingflokkanna, þá hefði orðið að úthluta 6 viðbótarsætum eins ogsjá má af töflu IV A (bls.30), og hefði Sjálfstæðisflokkurinnfengið3,Alþýðubandalagið 2 og Alþyðuflokkurinn 1 uppbót- arþingsæti. Til þess að finna, hverjir frambjóðendur þingflokks, sem hafa ekki náð kosningu í kjördæm- um, skuli fá uppbótarþingsæti, er farið eftir atkvæðatölu þeirra í kjördæmunum, ymist beinlínis eftir atkvæðatölu þeirra eða eftir atkvæðatölunni í hlutfalli við gild atkvæði í kjördæminu. Fyrsti uppbótarþingmaður þingflokks verður sá, sem hefur hæsta atkvæðatölm annar sá, sem hefurhæsta hlutfallstölu atkvæða, þriðji sá, sem hefur næsthaesta atkvæðatölu, fjórði sá, sem hefur næsthæsta hlutfallstölu, o. s. frv. - f töflu IV B (bls. 30) er sýnd röð frambjóðenda flokkanna hvað þetta snertir. f töflu IV C (bls. 31) kemur fram, hvaða frambjóðendur hlutu uppbótarþingsætioghverjir urðu varamenn.

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.