Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1990, Page 27
Sveitarstjómarkosningar 1990
25
7. yfirlit.
Summary 7.
Endurkjörnir og nýkjörnir sveitarstjórnarmenn 1990 eftir kyni og aldri (frh.)
Representatives re-elected and electedfor tliefirst time in local government elections 1990, hy sex and age (cont.)
Sveitarstjómarmenn eftir aldri 31. maí 1990
Representatives by age May 31, 1990
18- 20- 25- 30- 35- 40- 45- 50- 55- 60- 65- 70 aldur,
19 24 29 34 39 44 49 54 59 64 69 ára ár
ára ára ára ára ára ára ára ára ára ára ára oge. Mean
years years years years years years years years years years years a.o. age
Electedfor tlie first
Nýkjömir 41 • 80 91 60 48 40 34 25 16 20 20 - • time
Karlar 36 • 75 87 60 39 38 30 21 14 17 20 - • Males
Konur 59 • 100 100 63 69 49 44 50 33 40 - - • Females
10. Endurkjörnir og nýkjörnir fulltrúar
10. Representatives re-elected and elected for thefirst time
Af sveitarstjómarmönnum, sem kjörnir voru 1990, höfðu
59% verið kjörnir aðalmenn í sömu sveitarstjórn í kosning-
unum 1986 og/eða 1982. Voru því 41% sveitarstjórnar-
manna„nýir“. Isveitarfélögummeð l.OOOfbúaogfleiri voru
52% kjörinna fulltrúa endurkjömir frá síðasta eða næstsíðasta
kjörtímabili, í sveitarfélögum með 300-999 ibúa 48%, og í
sveitarfélögum með innan við 300 íbúa 67%. Þar sem
kosning var hlutbundin var hlutfall endurkjörinna 51%, en
þar sem hún var óbundin 66%.
Af þeim sem vom kjörnir í sveitarstjórn í kosningunum
1990, áttu 64% karla einnig átt sæti þar eftir kosningamar
1986 eða 1982, en einungis 41 % kvenna. Er það að talsverðu
leyti afleiðing þess að konum í sveitarstjórnum fjölgaði um
95 frá 1982 en körlum fækkaði um 171.
Meðalaldur endurkjörinna fulltrúa var 46,4 ár (47,4 ár
1986) en nýkjörinna 40,0 ár (38,7 ár 1986).
Af þeim sveitarstjórnarmönnum, sem voru kosnir 1986,
voru 53% endurkjörnir 1990, 55% karla og 42% kvenna.
Hlutfall endurkjörinna var nokkuð svipað meðal þeirra sem
vom á aldrinum 25-49 ára 1986, 52-58% (tala allra yngstu
sveitarstjórnarmannanna er svo lág, að hæpið er að tala um
hlutfallstölur). Af þeim sem vom kosnir 1982, voru 31%
endurkjörnir 1990.
I 7. yfírliti er sýnd tala fulltrúa eftir kyni og aldri og eftir
því hvort þeir vom kjörnir í framhaldi af setu í síðustu
sveitarstjórn eða næstsíðustu.
I 8. yfirliti er sýnt hvernig fulltrúar framboðslistanna
skiptust í endurkjörna og nýkjöma sveitarstjómarmenn.
I 9. yfirliti er sýnd tala þeirra karla og kvenna eftir
aldursflokkum, sem hlutu kosningu 1982 og/eða 1986, og
voru endurkjörin 1990.
11. Breytingar á mörkum og stöðu sveitarfélaga frá
kosningunum 1986
11. Clianges in commune boundaries and status since the 1986
elections
Samkvæmt sveitarstjórnarlögunum 1986 hættu sýslufélög
að vera lögboðinn samstarfsvettvangur hreppa eins og fyrr
segir. 1 töflu 1 á bls. 30-41, þar sem sýndar eru tölur fyrir öll
sveitarfélög landsins, em gömlu sýslufélögin notuð sem
landfræðilegar einingar, og kaupstaðir og bæir innan marka
þeirra taldir þar með. Sveitarfélögum fækkaði um 19 milli
kosninganna 1986 og 1990.
Eftir gildistöku sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986 verða
sveitarfélög einungis sameinuð eða þeim skipt upp með
tvennum hætti: Annars vegar samkvæmt ákvörðun félags-
málaráðuneytis á grundvelli 2. mgr. 5. gr. laganna f samræmi
við tillögur einstakra nefnda, sem skipaðar eru samkvæmt
107. gr. laganna. Hins vegar samkvæmt staðfestingu
ráðuneytisins með vísan til 112. gr. sveitarstjómarlaga. Auk
þess getur ráðuneytið staðfest breytingar á mörkum sveitar-
félaga samkvæmt samkomulagi þeirra með vísan til 2. mgr.
3. gr. laganna.
Fráþví að sveitarstjórnarlögin tóku gildi og til kosninganna
1990 urðu eftirtaldar breytingar á skipan sveitarfélaga:
A. Breytingar á mörkum sveitarfélaga
A. Changes in commune boundaries
1. Fróðárhreppur í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu var
sameinaður Ólafsvíkurkaupstað í eitt sveitarfélag er
nefnist Ólafsvíkurkaupstaður. Sameiningin tók gildi 1.
apríl 1990 (auglýsing nr. 133 16. mars 1990). í Fróðár-
hreppi vom 25 íbúar 1. desember 1989 og 1.188 í
Ólafsvík. f sveitarstjórnarkosningunum 1986 vom 18 á
kjörskrá íFróðárhreppi og 5 hreppsnefndarmenn kjörnir,
en í Ólafsvík voru 788 á kjörskrá og kosnir 7 bæjar-
fulltrúar. Bæjarstjórnin sem var kosin í Ólafsvík 1986,
héltáframsembæjarstjómÓlafsvfkureftirsameininguna.
2. Klofningshreppi í Dalasýslu var skipt I. september 1986
og jarðirnar Ballará og Melar lagðar til Skarðshrepps en
aðrarjarðirtil Fellsstrandarhrepps (auglýsing nr. 370 30.
júlf 1986). íþeimhlutaKlofningshrepps.semsameinaðist
Fellsstrandarhreppi, vom 20 íbúar 1. desember 1985 en
3 íhinumhlutanum. í sveitarstjórnarkosningunum 1986
voru 15 manns á kjörskrá í Klofningshreppi og 3
hreppsnefndarmenn kosnir. í Fellsstrandarhreppi voru
þá 50 á kjörskrá og 5 hreppsnefndarmenn kosnir en 37
voru á kjörskrá f Skarðshreppi og 3 kosnir. Nýjar sveitar-
stjómarkosningar fóru fram í hreppunum tveimur 8.
nóvember 1986. Tala hreppsnefndarmanna er óbreytt í