Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1991, Page 9

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1991, Page 9
Inngangur Introduction 1. Framkvæmd kosninganna Background of tlie elections Kosningartil Alþingishöfðu síðast farið fram 25. apnl 1987, og áttu því almennar reglulegar alþingiskosningar að verða 1991. Að samþykktu frumvarpi til stjómskipunarlaga um breytingar á stjómarskránni í mars bar að rjúfa Alþingi þá þegar samkvæmt 79. gr. stjómarskrár og stofna til almennra kosninga að nýju. Var Alþingi rofið frá og með laugardeginum 20. apríl 1991 ogjafnframtákveðiðaðalmennarkosningartil Alþingis skyldu fara fram þann dag. Samkvæmt stjórnarskrá eru kjördæmin átta og hefur svo verið frá 1959 en með breytingu hennar 1984 fjölgaði þingsætum úr 60 í 63. Af þessum 63 þingsætum em 54 bundin í stjórnarskrá eftir lágmarkstölu í hverju kjördæmi en kosningalög kveða að öðm leyti á um skiptingu hinna 9 milli kjördæma.Lágmarkstalabundinnaþingsætaíkjördæmumer hin sama og tala kjördæmiskjörinna þingmanna hefur verið frá 1959, n'ema íReykjavík og Reykjaneskjördæmi. 1 þessum tveimur kjördæmum er talan 14 þingsæti og 8 en var 12 og 5. Samkvæmt stjómarskrá skal fyrir hverjar kosningar ráðstafa tilkjördæmaáttaþingsætumeftirákvæðumíkosningalögum og á sama hátt er heimilt að loknum hverjum kosningum að ráðstafa til kjördæmis einu þingsæti. Við úthlutun þingsæta samkvæmt kosningaúrslitum skal gæta þess svo sem kostur er að hver þingflokkur fái þing- mannatölu í sem fyllstu samræmi við heildaratkvæðatölu sína. Er þá heimilt að úthluta allt að fjórðungi þingsæta hvers kjördæmis, þeim sem bundin eru og þeim sem ráðstafað er fyrir hverjar kosningar, með hliðsjón af kosningaúrslitum á landinu öllu. Sama á við um úthlutun þess sætis sem ráðstafað er til kjördæmis að loknum kosningum. Akvæði um skiptingu þingsæta rnilli kjördæma eru í 5. gr. kosningalaga. I a-lið 1. mgr. 5. gr. er kveðið á um hvemig bundnu þingsætin 54 skiptast milli kjördæma. I b-lið sömu mgr. er kveðið á um skiptingu milli kjördæma á þeim þingsætum sem ráðstafa skal fyrir hverjar kosningar. Við skiptingu þeirra er lögð til grundvallartala kjósenda á kjörskrá í hverju kjördæmi í næstu almennum þingkosningum á undan. Um skiptinguna gilda þessar reglur: 1. í hverju kjördæmi skal deila tölu kjósenda á kjörskrá í næstu almennum alþingiskosningum á undan með tölunum 11, 15, 19,23 o.s. frv. eins oft og þörf krefur. Utkomutölur em skráðar fyrir hvert kjördæmi. 2. Nú hefur kjördæmi hlotið, samkvæmt stjórnarskrár- bundnu skiptingunni, fleiri þingsæti en 5 og skal þá fella niður hæstu útkomutölur kjördæmisins, eina fyrir hvert þingsæti umfram 5. 3. Ráðstafa skal einu þingsæti í senn. Fyrsta sætið hlýtur það kjördæmi sem hæsta útkomutölu hefur. Sú tala er síðan felld niður. Annað þingsæti kemur í hlut þess kjördæmis sem nú hefur hæsta útkomutölu o.s.frv. uns öllum sætunum hefur verið ráðstafað. 4. Nú eru tvær eða fleiri útkomutölur jafnháar þegar að þeim kemur samkvæmt 3. tölulið og skal þá hluta um röð þeirra. Lc-lið I. mgr. 5. gr. kosningalaga erkveðið á um ráðstöfun eins þingsætis til kjördæmis að loknum kosningum, samkvæmt nánari ákvæðum laganna. Þannig er 62 þingsætum ráðstafað til kjördæma fyrir kosningar en einu að þeim loknum á grundvelli kosninga- úrslita. Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. kosningalaga gaf dóms- og kirkjumálaráðuneytið út auglýsingu nr. 292 22. júní 1987 um þingsætatölu kjördæma samkvæmt a- og b- lið 1. mgr. 5. gr. sömu laga við næstu almennar kosningar til Alþingis. Samkvæmt þessari auglýsingu skyldu þingsætin 62 skiptast eins og hér fer á eftir. Til samanburðar er einnig sýnd skipting þeirra 54 þingsæta sem bundin eru samkvæmt stjórnarskrá. Bundin þingsæti Þingsæti skv. skv. stjómarskrá augl. ráðuneytis Reykjavík 14 18 Reykjaneskjördæmi 8 11 Vesturlandskjördæmi 5 5 Vestfjarðakjördæmi 5 5 Norðurlandskjördæmi vestra 5 5 Norðurlandskjördæmi eystra 6 7 Austurlandskjördæmi 5 5 Suðurlandskjördæmi 6 6 Alls 54 62 Eru sætin því fjögur umfram lágmarkstölu í Reykjavíkur- kjördæmi, þrjú í Reykjaneskjördæmi og eitt í Norðurlands- kjördæmi eystra. I 1. yfirliti er sýndur sá útreikningur sem úthlutun jöfnunarsætanna er byggð á. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið gaf út auglýsingu nr. 119 20. mars 1991um alþingiskosningarnar 20. apríl 1991, þar sem styttur var frestur varðandi framlagningu kjörskrár. Heimild til þess að hafa fleiri en eina kjördeild í sveitarfélagi hefur verið notuð á ýmsum stöðum, svo sem sjá má í töflu 1 á bls. 28-32. I Reykjavík voru 90 kjördeildir, en í Kópavogi 11, í Hafnarfirði 10 og á Akureyri 8. Eftir tölu kjördeilda skiptust sveitarfélögin sem hér segir: 1 kjördeild 178 10 kjördeildir 1 2 kjördeildir 13 11 kjördeildir 1 3 kjördeildir 2 90 kjördeildir 1 4 kjördeildir 3 5 kjördeildir 1 Alls 201 8 kjördeildir 1 í 7. yfirliti á bls. 13 sést tala kjördeilda í almennum kosningum frá því að hennar er fyrst getið í skýrslu um alþingiskosningar 1931.

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.