Fréttablað - 01.03.1966, Blaðsíða 1
KIWAN ISKLÚ BBURI N N HEKLA
1
FRETTABLAÐ
AVARP RITSTJÖRA 1. tbl. aarz 1966 1. árg.
Kæru Kiwanisbræður.
Síðan klúbbur okkar var stofnaður fyrir rúmum tveim árum hefur rignt
yfir okkur svokölluðum "bulletins" eða fréttablöðum frá Kiwanisklúbbum
víðs vegar í heiminum, og hefur jafnan fylgt þeim beiðni um að við sendum
þeim eintak af fréttablaði okkar. Svo virðist sem sérhver Kiwanisklúbbur
telji óhugsandi annað en að gefa reglulega út fréttablað, og var því ákveð-
ið að bíða ekki lengur með framkvæmdir, og hér birtist því fyrsta tölublaðið.
Við uppsetningu og form blaðsins hef ég einkum stuðst við "Borealis
Flashes", sem er fréttablað Kiwanisklúbbsins í Fairbanks, Alaska, en sá
klúbbur hefur sent okkur eintak af hverju tölublaði þess marga undanfarna
mánuði.
Ætlunin er að blað þetta komi út mánaðarlega, og verður það jafnan
sent öllum meðlimum klúbbsins í pósti, þeim algjörlega að kostnaðarlausu.
KIWAMIS INTERWATIOWAL-EUROPE
Stjórn Kiwanis International hefur nýlega samþykkt stofnun Evrópusam-
bands Kiwanisklúbba, og mun endanlega gengið frá henni strax og Evrópu-
klúbbarnir eru orðnir 100 að tölu. Innan Evrópu verða sex umdæmi (districts)
eins og hér segir: 1) Italía, Liechtenstein og Sviss 2) Austurríki, Þýzka-
land 3) Belgía, Frakkland, Holland, Lúxembúrg og Mónakó 4) Danmörk, Island,
Woregur og Svíþjóð 5) Bretland, Irland 6) Grikkland, Tyrkland.
Til að umdæmi hljóti staðfestingu Kiwanis International, þurfa að vera
minnst fimm klúbbar innan þess. Eftir að tala klúbba innan sama umdæmis er
orðin 10 eða meira, má skipta umdæminu í deildir (divisions), sem nái yfir
5 til 10 klúbba hver.
EVRÓPUÞIMG KIWAWIS
Þing Kiwanisklúbbanna í Evrópu verður haldið í Vín 21. og 22. maí, og
er Arnór forseti sjálfkjörinn sem annar fulltrúi okkar á þinginu, en Júlíus
varaforseti hlaut kosningu sem hinn. Til vara voru kosnir ritari og erlendur
ritari, þeir ólafur J. Einarsson og Þórir Hall.
r *
KIWAMIS MAGAZIWE
Vararitstjóri Kiwanis Magazine hefur óskað eftir svart/hvítum Ijós-
myndum úr væntanlegri skemmtiferð okkar með vistfólk Hrafnistu 1 sumar. Þó
að nægur tími sé til stefnu, ætla ég að minna ykkur á að gleyma nú ekki því
að taka myndavélarnar með ykkur, þegar lagt verður af stað. Ein eða fleiri
af myndunum mun birtast í Kiwanis Magazine undir orðunum "Kiwanis in Action".
FUMDAREFMI
A næsta almenna fundi, þriðjudaginn 29. marz, hlotnast okkur sú ánægja
að hlýða á borgarstjórann í Reykjavík, hr. Geir Hallgrímsson, en hann verður
gestur klúbbsins og fyrirlesari á fundinum.
Já, vel £ minnst. Samkvæmt meðlimaskrá okkar erum við 83 að tölu, en á
síðasta almenna fundi mætti 51 .... Hvað varð um hina??? ... Sýnið nú
viljann í verki og mætið allir á næsta fundi, - engan má vanta.