Skólavarðan - 01.10.2002, Blaðsíða 22
skal setja sér markmið og skila kennslu-
áætlun á tilskildum tíma. Skólanámskrá
skal á heimasíðu menntastofnunarinnar
nemendum, foreldrum og öðrum sam-
félagshópum til fróðleiks. Ég á fullt í fangi
með að hefja ferilinn og koma mér fyrir. Er
nauðsynlegt að hafa skothelda kennslu-
áætlun? Er kennsla eitthvað sem hægt er að
negla niður og skipuleggja nokkra mánuði
fram í tímann? Má ég ekki bara setja mér
markmið og láta svo kylfu ráða kasti hvaða
leið verður farin svo lengi sem ég næ þeim
í lok skólaárs - leyfa börnunum að stjórna
flæðinu svolítið með mér í stað þess að
synda á móti straumnum hvernig sem stað-
an er hjá nemendahópnum? Hmm... ég
gæti nú reyndar skoðað hvað aðrar
menntastofnanir hafa gert í þessum mál-
um. Afrita og líma („copy“ og „paste“) er
mun fljótlegra en að finna upp hjólið.
Erum við ekki öll að vinna eftir sama
plagginu hvort sem er? Er það ávísun á lé-
lega frammistöðu í kennslu að stytta sér
leið í pappírsvinnunni eða er það greindar-
merki og vottur um heilbrigða skynsemi?
Koma ekki samræmdu prófin til með að
skera úr um það á endanum hvort kennari
sinnir starfi sínu eða ekki? Hvernig skyldi
sá tölulegi minnisvarði um starfsferilinn
líta út eftir 40 ár? Ég vona svo sannarlega
að hann verði stöðugri en gengið á
Decode.
Hva, er ég eitthvað hrædd um að bregð-
ast þessum mannskap? Óttalega er þetta nú
annars sakleysislegt fólk hér á kennarastof-
unni, já, bara vinalegt og andinn virðist
vera nokkuð góður líka. Skyldi starfsfólkið
vera ánægt með úthlutun launaflokkanna?
Mikið hafði ég nú misskilið það allt, ég
hélt að þeir væru áunnir og ekki afturtekn-
ir, en þá kemur bara á daginn að á næsta
ári verður úthlutað upp á nýtt úr þessum
potti. Ef ég skil dæmið rétt þá gæti ég
lækkað eða hækkað í launum eftir ár, fer
víst eftir samsetningu kennaraliðsins, ald-
ursdreifingu og verkefnastjórnun. Það er
eins gott að fara varlega í raðgreiðslur Visa
til 36 mánaða! Þetta er ekki mikið öryggi
ef ég skil dæmið rétt. Og þessar 9,14
stundir. Er raunhæft að vinnan fyrir utan
kennslu sé eingöngu 9,14 stundir? Er
komman örugglega á réttum stað? Best að
kynna sér kjarasamningana betur! Upplagt
að spyrja trúnaðarmanninn sem minnir
mig á að það var engu líkara en að starfs-
fólk skólans tæki þátt í rússneskri rúllettu
þegar kosið var til trúnaðarmanns. Tólinu
var kastað þvers og kruss á fundinum og
enginn vildi verða fyrstur til að taka í gikk-
inn. Hvað er svona hættulegt við að vera
trúnaðarmaður? Er þetta mikil vinna? Er
þetta sjálfboðaliðastarf? Eru engin fríðindi?
Að lokum lenti svo nýútskrifaður kennari í
sigtinu og átti sér ekki viðreisnarvon upp
frá því. Aumingja hann. Nú, nú, ræfillinn
fær þó altént kaffi og kökur í sárabót, og nú
eru engar samningaviðræður svo að þetta
ætti ekki að vera mikið mál. Eða hvað?
Jæja, best að gera eitthvað, það þýðir
ekki að sitja með hendur í skauti þegar
skólabjallan hefur skilað sínu og tilvonandi
forsetaframbjóðendur streyma inn. En
hvað var það aftur sem... já, muna eftir
leyfisbréfinu!
Þankar í upphafi kennslu
25
Koma ekki samræmdu prófin til með að skera úr um það á endanum
hvort kennari sinnir starfi sínu eða ekki? Hvernig skyldi sá tölulegi
minnisvarði um starfsferilinn líta út eftir 40 ár? Ég vona svo sannarlega
að hann verði stöðugri en gengið á Decode.
Og þessar 9,14 stundir. Er raunhæft að vinnan fyrir utan kennslu sé
eingöngu 9,14 stundir? Er komman örugglega á réttum stað?