Víkurfréttir - 28.08.1980, Síða 12

Víkurfréttir - 28.08.1980, Síða 12
l^Z^TBÉTTIB | Fimmtudagur 28. ágúst 1980 SPARISJÓÐURINN er lánastofnun allra Suðurnesjamanna. Taka þarf eina allsherjar eitrunarherferð í Keflavík - segir Júlíus Baldvinsson, meindýraeyðir „Mánafákur“ Að undanförnu hefur nokkuð borið á rottum í efri hluta Kefla- víkur, og í einu dablaðanna var skýrt frá því um daginn, að hér væri mikill rottufaraldur. I tilefni af þessu snerum við okkur til Júlíusar Baldvinssonar, mein- dýraeyðis, og spurðum hann nánar um þetta. - Nei, þaö er ekki hægt að segja aö það sé neinn faraldur hér," sagði Júlíus, ,,en því erekki hægt að neita að það hefur þó nokkuð borið á rottum hér i Keflavík, og þá sérstaklega í efri hluta bæjarins og þa aðallega á svæðinu fyrir ofan Hringbraut, Þar viröist vera miklu minna vatn í skolpræsunum, en þegar neðar dregur er vatnið meira og hitinn frá hitaveituaffallinu er nokkuð mikill, en það kunna þærekki að meta og færasig þvíofarþarsem vatnið er ekki eins mikið. Ég held samt að það veitti ekki af að taka eina allsherjar eitrunarherferð í Keflavík, en þaðeru nokkrirvan- kantar á að koma því við. Það vantar t.d. aðstöðu til að blanda eitrið og einnig er mjög erfitt að koma eitri fyrir i brunnunum þar sem hitinn frá affallinu er svo mikill þessa dagana að það myndi örugglegabráðna, þannig að lítiö gagn væri í því. Nú að undanförnu hefur einnig verið nokkuð um það að svæla hefur þurft hús vegna silfurskottu og matarbjöllu, en af þeim hefur verið þó nokkuð. Matarbjallan berst hingað með alls konar kornvöru." Erlingur Jónsson hefur ekki aldeilis setiö auðum höndum fremur en endranær. Við rák- umst á hann um daginn í smíða- stofu Gagnfræðaskólans, þar sem hann var að leggja síðustu hönd á nýjasta listaverk sitt, sem hann nefnir „Mánafákur". Er þetta kopar skúlptúr, 180 cm að hæð á 140 cm háum stalli. Eigandi listaverksins mun vera Birgir Guönason. Erlingur er nú á förum til Noregs í myndlistarnám. Enn einn gamall Nú nýverið var keyptur hingað 12 ára gamall bátur, sem hlotið hefur nafnið SANDVÍK KE 25, 25 lesta eikarbátur smíðaður á Akureyri 1968. Eigandi hans er Svanur Jónsson, Keflavík, og er báturinn farinn til rækjuveiða. epj. Til síldveiða Þessi mynd var tekin nú ívikunni i Keflavíkurhöfn þarsem unniðvaraf fullum krafti við að útbúa m.b. Heimi KE til síldveiöa meö reknet. Ekki tókst okkur aö afla upplýsinga um hve margir Suðurnesjabátar verða gerðir út á reknet. en þeir munu vera nokkrir. Loks nýr bátur til Keflavíkur 6. ágúst sl. hljóp af stokkun- um hjá Dráttarbraut Keflavíkur hf., nýr 17 lesta eikarbátur, sem gefið hefur verið nafnið GRÓA KE 51, og er eigandi hans Smári Einarsson, Keflavík. Báturinn er mjög vel tækjum búinn og vandaöur af allri gerð og í honum er GM vél 175 ha. Smíði hans hófst fyrir um 10 árum og hefur hann því verið all lengi ísmíðum.envinnaviðhann var lengst framan af sem íhlaupa vinna er verkefnaskortur var í Dráttarbrautinni. GRÓA er með smíðanúmer 8 hjá Dráttarbrautinni, en liðin eru 23 ár síöan bátur var smiðaður þar síöast, þar til nú, en það var 57 lesta eikarbátur, Guðbjörg, sem smiðuð var fyrir Sandgerð- inga 1957. GRÓA er fyrsti báturinn sem kemur nýsmíðaður til Keflavíkur í 8 ár, eða síðan 1972 að Ólafur Sólimann kom hingað nýr, ef undan er skilin nýsmíði skuttog- arans Aðalvikur er kom 1974. GRÓA mun fara næstu daga á línuveiöar. epj.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.