Fréttablaðið - 07.11.2016, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Þetta er virkilega
krefjandi og
skemmtilegt hlutverk og
ein skemmtilegasta sýning
sem ég hef tekið Þátt í.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
D Ý P R I O G B E T R I S V E F N
Með því einu að snerta takka getur
þú stillt rúmið í hvaða stöðu sem er
og með öðrum færð þú nudd. Saman
hjálpa rúmið og dýnan þér að ná há
marks slökun og dýpri og betri svefni.
Svo vaknar þú endurnærð/ur og til
búin/n í átök dagsins.
Tilboð 442.350 kr.
STILLANLEGT RÚM – VERÐDÆMI
Með tveimur Serta Therapist heilsudýnum,
2 x 90 x 200 cm. Fullt verð: 589.800
H E I L S U R Ú M
Þ R Á Ð L AU S FJ A R S T Ý R I N G
LEDvasaljós
Klukka
Vekjaraklukka
Upp/niður höfðalag
Upp/niður fótasvæði
Rúm í flata stöðu
2 minni
Nudd
Bylgjunudd
S T I L L A N L E G U H E I L S U R Ú M I N F R Á C &J :
· Inndraganlegur botn
· Lyftigeta yfir 2 x 450 kg per botn
· Mótor þarfnast ekki viðhalds
· Tvíhert stálgrind undir botni
· Tveir nuddmótorar með tímarofa
· Þráðlaus fjarstýring með klukku,
vekjara og vasaljósi
· LED lýsing undir rúmi
· Hliðar og endastopparar svo dýnur
færist ekki í sundur
A F S L ÁT T U R
25%
J Ó L AT I L B O Ð!
S T I L L A N L E G H E I L S U R Ú M
FRÁBÆR JÓLATILBOÐ
STILLANLEG
HEILSURÚM
3.900 K R.
N ÝJ U N G Í B E T R A B A K I
S L Ö K U N O G V E L L Í Ð A N
UNDRI heilsuinniskór með fimmsvæða
nuddinnleggi. Draga úr spennu og örva
blóðflæði. Skórnir eru fallegir, hlýir og
einstaklega þægilegir. Fáanlegir í dökkgráu
eða ljósu flókaefni. Komdu og prófaðu!
O K K A R K L A S S Í S K I
H E I L S U I N N I S KÓ R
Vinsælasta jólagöfin í Betra
Baki komin aftur. Inniskór sem
laga sig að fætinum og dreifa þyngd jafnt um
allt fótsvæðið. Ný og endurbætt útgáfa!
B Y LT I N G A K E N N T
5 S VÆ Ð A N U D D I N N L E G G
7.900 K R.
Í Ég man þig fer Elma Stefanía með hlutverk Söru, fyrrverandi eiginkonu Freys, sem leikinn er
af Jóhannesi Hauki Jóhannessyni.
Óskar Þór Axelsson leikstýrir mynd-
inni sem byggir á bók Yrsu Sigurðar-
dóttur. Bókin naut mikilla vinsælda
hérlendis og erlendis þegar hún
kom út en þetta er fyrsta myndin
sem byggð er á sögu eftir Yrsu.
„Sara er frekar vel stæð kona sem
hefur unnið mikið í þeirri miklu
sorg sem hún og maðurinn hennar
eru að ganga í gegn um,“ útskýrir
Elma Stefanía, en sjö ára sonur
þeirra hjóna týndist og upp úr því
komu hnökrar í hjónabandið. „Þau
eru sem sagt skilin og fara hvort í
sína áttina. Taka mjög ólíkt á sorg-
inni og þroskast í sundur. Sara sækir
sér hugarró hjá miðli og í andlegum
málefnum.“
Í kvikmyndinni fléttast tvær
sögur saman í eina. Þessar sögur lúta
ólíkum lögmálum. Önnur er alveg
ekta draugasaga, en hin meiri saka-
málasaga, og Óskar fléttar þessum
tveimur sögum Yrsu snilldarlega
saman.
„Tökur á fyrrihluta myndarinnar
fóru fram í fyrra og gekk það allt
saman vel. Núna er hins vegar
komið að seinni hluta myndarinnar,
þar sem mínar senur verða teknar.
Það er frábært að vinna með Óskari,
hann er góður leiðbeinandi, ég er nú
þegar búin að fara í búningamátun
og æfingu, svo held ég bara áfram
að undirbúa mig fram að tökum,“
segir Elma en ásamt því að leika í Ég
man þig, fer Elma með tvö stór hlut-
verk í Borgarleikhúsinu um þessar
mundir.
„Það er nóg að gera í leikhúsinu.
Ég er að leika Hallgerði langbrók
í Njálu eftir þá Mikael Torfason
og Þórleif Örn Arnarsson. Þetta er
virkilega krefjandi og skemmtilegt
hlutverk og ein skemmtilegasta
sýning sem ég hef tekið þátt í. Það
eru örfáar sýningar eftir svo það fer
hver að verða síðastur að koma en
ég mæli algjörlega með þessari sýn-
ingu,“ segir Elma Stefanía.
Elma er þaulvön að stíga á svið
í hinum ýmsu hlutverkum. Hún
hefur tekist á við hvert burðar-
hlutverkið á eftir öðru frá því hún
útskrifaðist úr leikaranámi frá Lista-
háskóla Íslands fyrir þremur árum.
Þá hefur hún þrisvar verið tilnefnd
til Grímuverðlauna fyrir túlkun sína
á ýmsum hlutverkum. Í vetur er
hún einnig í sýningunni Hannes og
Smári í Borgarleikhúsinu. Sú sýning
er á leið til Akureyrar í nóvember og
segir Elma að það sé mikið grín og
gaman að leika á móti Ólafíu Hrönn
og Halldóru Geirharðsdóttur en þær
leika Hannes og Smára.
„Það er virkilega skemmtilegt að
taka þátt í þessari sýningu. Hún er
bæði fyndin og mikilvæg.“
Í janúar fer Elma Stefnía svo í fars-
ann Út að aka í leikstjórn Magnúsar
Geirs Þórðarsonar.
„Það verður frábært að fá að
taka þátt í sýningunni hans Magn-
úsar Geirs. Ég hef aldrei leikið í farsa
áður svo það er alveg nýtt og ekki
skemmir fyrir að í þessari sýningu
verður einvalalið leikara,“segir Elma
Stefanía og neitar svo að ræða frekar
um aðra bíómynd sem ráðgert er að
fari í tökur á næsta ári.
gudrunjona@frettabladid.is
Býr sig undir
tökur á ég man þig
Elma Stefanía Ágústsdóttir leikkona undirbýr sig nú fyrir tökur á
spennumyndinni Ég man þig, eftir bók Yrsu Sigurðardóttur, í leik-
stjórn Óskars Þórs Axelssonar, en nýlega hófust tökur á seinni hluta
myndarinnar. Elma er fastráðin leikkona við Borgarleikhúsið þar
sem hún fer með hlutverk Hallgerðar langbrókar í Njálu.
Það er nóg um að vera hjá Elmu Stefaníu Ágústsdóttur leikkonu um þessar mundir. FRÉTTABLAÐIÐ/EyÞÓR
Elma Stefanía fer með hlutverk Hallgerðar langbrókar í Njálu. MyND/ÞJÓÐLEIKHúSIÐ
7 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m Á n U D A G U r22 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
0
7
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
6
-3
B
E
0
1
B
3
6
-3
A
A
4
1
B
3
6
-3
9
6
8
1
B
3
6
-3
8
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
6
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K