Fréttablaðið - 07.11.2016, Blaðsíða 40
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir og bróðir,
Elfar Ingi Sigurbjörnsson
sjómaður,
fæddur 04.08.1959, dáinn 28.09.2016,
verður jarðsunginn frá Kirkju Óháðra við
Háteigsveg þann 10.11.2016 klukkan 14.57.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeir sem vilja minnast
hans láti Krabbameinsfélag Íslands njóta þess.
Börn, tengdabörn, barnabörn og systkini.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Stefán Stefánsson
bílasmiður,
Ársölum 5, Kópavogi,
lést á heimili sínu miðvikudaginn
4. nóvember. Útförin verður gerð frá
Kópavogskirkju, miðvikudaginn 9. nóvember kl. 11.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Katla Magnúsdóttir
er lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Hrafnistu í Hafnarfirði 22. október,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík, fimmtudaginn 10. nóvember
klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimer
samtökin, www.alzheimer.is, eða á reikning þeirra: 515 26
24303, kt. 580690-2389.
Freyja Matthíasdóttir Þór Matthíasson
Edda Matthíasdóttir Swan Edward M. Swan
Sif Matthíasdóttir Jörundur Svavarsson
og fjölskyldur.
Sameinuðu þjóðirnar samþykktu 7. nóv
ember 1956 að krefjast þess að Bretar,
Frakkar og Ísraelsmenn kölluðu her
sveitir sínar í Egyptalandi heim án tafar.
Bandaríkin studdu SÞ í þessari kröfu og
heimflutningar hersveitanna við Súez
skurðinn hófust viku síðar.
Forsaga málsins er sú að í júlí 1956
hafði Nasser Egyptalandsforseti tilkynnt
í ræðu að dagar vestrænna ítaka í Araba
löndum væru taldir og Súezskurðurinn
væri hér með þjóðnýttur. Þetta var þvert
á þá samninga sem höfðu verið gerðir
um skurðinn á árinu 1954 og Bretar,
Frakkar og Ísraelsmenn brugðust hart
við.
Ísraelskar hersveitir komu til Egypta
lands 29. október og hersveitir Breta og
Frakka fylgdu á eftir. Harðir bardagar
fylgdu í kjölfarið og sáu Sameinuðu
þjóðirnar sér ekki annað fært en að sker
ast í leikinn til að koma í veg fyrir frekara
blóðbað. Um miðnætti 22. desember
1956 fóru síðustu hersveitir árásaraðil
anna frá Egyptalandi.
Þ EttA g E r ð i St 7 . N óv E m B E r 1 9 5 6 :
Gert að kalla hersveitir heim
1550 Jón Arason, biskup á Hólum, og synir hans, Björn Jónsson
prestur á Melstað og Ari Jónsson lögmaður, eru teknir af lífi í
Skálholti eftir harðvítugar deilur á milli lútherskra manna og
kaþólskra um völd í landinu.
1659 Frakkar og Spánverjar gera með sér Pýreneasáttmálann og
binda þannig enda á 24 ára stríð milli ríkjanna.
1665 Tímaritið London Gazette hefur göngu sína.
1718 Danska herskipið Giötheborg strandar við Ölfusárósa.
Áhöfnin bjargast.
1917 Októberbyltingin á sér stað í Rússlandi (samkvæmt gregor
íska tímatalinu).
1931 Héraðsskólinn í Reykholti er vígður, en hann var einn af 9
skólum, sem stofnaðir voru að frumkvæði Jónasar Jónssonar frá
Hriflu.
1976 Fyrsti hluti Hitaveitu Suðurnesja er tekinn í notkun.
1987 Ólafur Ragnar Grímsson
verður formaður
Alþýðubandalagsins og
tekur við af Svavari
Gestssyni.
2007 Ungur
námsmaður gerir
skotárás í skóla
í bænum Jokela
í Finnlandi.
Hann verður
átta manns að
bana, særir tólf
og fremur síðan
sjálfsmorð.
2007 Mikheil
Saakashvili, forseti
Georgíu, lýsir yfir
neyðarástandi í höfuðborg landsins í
kjölfar mikilla mótmæla gegn stjórn hans.
Merkisatburðir
Nordic Photos/Getty
Þetta byrjaði allt með því að dóttir mín lenti í einelti. Hún talar við börnin þar sem hún segir sína sögu
og hvernig hún tæklaði eineltið, hvernig
við eigum að haga okkur og hverju við
eigum að passa okkur á og ýmislegt.
Síðan fer ég þarna í kvöld og tala við
foreldrana,“ segir Hermann Jónsson sem
ásamt dóttur sinni heldur fyrirlestra í
hátíðarsal Breiðagerðisskóla í dag og
kvöld.
„Ég kalla fyrirlesturinn minn Foreldrar
með markmið vegna þess að ég er ekki
að koma neinar töfralausnir við einelti og
þetta fjallar ekki bara um einelti heldur
um uppeldi og hvernig við foreldrar
eigum að setja okkur markmið. Útgangs
punkturinn er sá að ef þú ætlar að ná
árangri í einhverju í lífinu, sama hvað
það er: líkamsrækt eða eitthvað annað,
þá þarf að setja sér markmið og þú vinnur
að því að ná þeim markmiðum. Það sama
á maður að gera í uppeldinu.
Ég segi frá því hvernig ég hef sett mér
markmið í mínu uppeldi, hvað ég ætla
mér með mínu uppeldi og hvernig ég
nota það til að styðja hana í gegnum
allt sem á gengur, hvort það er einelti
– eins og ég kem mikið inn á, hvernig
ég hjálpaði dóttur minni í gegnum
eineltið, eða hvort það eru einhver önnur
vandamál og hvernig ég vinn í því að ná
mínum markmiðum sem faðir.
Ég segi alltaf þegar ég tala um mark
miðið mitt: Ég er ekki að ala upp börn –
ég er að ala upp fullorðna einstaklinga.
Það er eitthvert markmið – ég vil að
börnin mín verði að ákveðnum einstakl
ingum. Ég er ekki að tala um frægð, frama
eða einhverja atvinnugrein – ég er að tala
um gildi. Ég vil að börnin mín tileinki sér
ákveðin gildi sem skilgreini þau sem per
sónur. Ég kalla það manneskjusýn. Það er
sýn á þá manneskju sem mig langar til að
vera og ég vil að börnin mín verði.“
Ertu með einhver góð dæmi um gildin
sem þú leggur áherslu á?
„Ég tek þarna fullt af dæmum um gildi.
Sem dæmi var Selma Björk þekkt fyrir að
svara hatri með ást. Þegar hún lenti í ein
elti og það var til dæmis sagt við hana „þú
ert svo ljót“, vegna þess að hún var fædd
með skarð í vör, þá svaraði hún bara með
„mér finnst þú bara svolítið sætur“. Ég tek
þetta sem dæmi vegna þess að þetta er
gildi sem ég myndi vilja tileinka mér, ég
myndi vilja vera sú manneskja sem svarar
hatri með ást og þetta er dæmi um gildi
sem dóttir mín hefur náð að tileinka sér.
Eitt sem ég sá mjög fljótlega að ég yrði
að lifa lífi mínu eftir er að allt sem ég geri
er skilaboð til barnanna minna – þetta
fjallar ekki um að segja börnunum eitt
og gera svo annað því að börnin gera það
sem fyrir þeim er haft. Þannig að þegar
við erum til dæmis að kvarta yfir því
hvernig börnin okkar haga sér á netinu
þá segi ég: Hvernig ert þú að haga þér á
netinu, ertu eitthvað betri? Uppeldi er
svo frábært því við erum bara að kíkja á
okkur sjálf og þú þarft að vinna með sjálf
an þig til að hjálpa börnunum þínum.“
stefanthor@frettabladid.is
Að svara hatri með ást
Feðginin Hermann Jónsson og Selma Björk halda fyrirlestra í dag og í kvöld. Fyrirlestr-
arnir hafa yfirheitið Ást gegn hatri og kemur nafnið frá reynslu þeirra af miklu einelti sem
Selma varð fyrir og því hvernig hún og faðir hennar brugðust við.
Feðginin hermann Jónsson og selma Björk halda fyrirlestra í dag þar sem fjallað verður um einelti og uppeldi. FréttaBlaðið/erNir
Ég segi alltaf þegar ég
tala um markmiðið
mitt: Ég er ekki að ala upp börn
– ég er að ala upp fullorðna
einstaklinga.
7 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m Á n U D A G U r16 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
0
7
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
6
-4
0
D
0
1
B
3
6
-3
F
9
4
1
B
3
6
-3
E
5
8
1
B
3
6
-3
D
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
6
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K