Fréttablaðið - 08.11.2016, Page 10

Fréttablaðið - 08.11.2016, Page 10
Bandaríkin Bandarískir kjósendur taka í dag af skarið um það hvort þeirra Hillary Clinton eða Donalds Trump verður næsti forseti Banda- ríkjanna. Clinton yrði fyrsta konan sem gegnir þessu valdamikla emb- ætti, en Trump gæti orðið til alls vís. Hillary Clinton og Donald Trump hafa síðustu daga bæði verið á miklum þeytingi á milli kosninga- funda, í von um að næla sér í sem allra flest atkvæði á lokametrunum í þeim ríkjum þar sem óvissan er einna mest. Í gær kom Clinton fram á kosn- ingafundi í Michigan, Norður-Karó- línu og Pennsylvaníu en Trump not- aði síðasta daginn til að heimsækja fjögur af ríkjum Bandaríkjanna: Flórída, Norður-Karólínu, Penn- sylvaníu og New Hampshire. Barack Obama forseti hefur einn- ig blandað sér í kosningabaráttuna til stuðnings Clinton og stefndi á að koma fram á síðasta kosningafundi hennar í Pennsylvaníu. „Við erum á góðri ferð,“ sagði Clinton og hét því að unna sér ekki hvíldar fyrr en síðasta atkvæðið hefur verið talið. Kosið verður í dag en skoðana- kannanir sýna að afar mjótt er á mununum, þótt Clinton hafi haft nokkurra prósenta forskot fram á síðasta dag. Mikil óvissa ríkir um það hvort yfirlýsingar alríkislögreglunnar FBI muni hafa frekari áhrif á fylgi frambjóðendanna. Aðeins tveimur dögum fyrir kosningadag kom nýj- asta yfirlýsingin frá James B. Comey, yfirmanni FBI, þar sem hann segist ekki sjá neina ástæðu til að rann- saka tölvupóst Clinton frekar. Aðeins viku fyrr hafði hann skýrt frá því að í tengslum við rannsókn á fyrrverandi eiginmanni helstu aðstoðarkonu hennar hafi fundist tölvupóstsamskipti við Clinton sem hugsanlega gæti þurft að rannsaka frekar. Sú yfirlýsing virtist hafa merkj- anleg áhrif á skoðanakannanir. Sigurlíkur Donalds Trump jukust töluvert, ekki reyndar vegna þess að fylgi Clintons hafi dalað neitt heldur var það fylgi Trumps sem jókst nokkuð hratt. Demókratar reiddust mjög þess- ari yfirlýsingu og hafa sumir sakað - . ✿ kosningaspáin Á kosningavef bandaríska tölfræðingsins Nate Silvers, Fivethirtyeight.com, er grannt fylgst með öllum skoðanakönnunum sem gerðar eru í Bandaríkjunum. Líkur á útkomu eru reiknaðar út reglulega, yfirleitt oft á dag. © GRAPHIC NEWSHeimild: FiveThirtyEight Myndir: Associated Press SiGUrlÍKUr Kjörmenn 49,2% 44,5% Spáin 7. nóvember Hillary Clinton Donald Trump Tölum fyrir Gary Johnson, fram- bjóðanda Frjáls er hér sleppt HI AK MN ND TN AR MO AZ CA WA CO IL NC SC KYKS FL GA PA OK AL LA VA NY TX NM NV WY ID UT OR MT SD NE IA WI IN OH NH VT ME MI MS DE NJ CT RI MA MD DC WV Trump Clinton 90%50% hvernig líkurnar hafa þróast 100% Kosið 8. nóvember 75 50 25 0 Clinton 75,2% Trump 24,8% Heimsbyggðin bíður úrslitanna í ofvæni Hillary Clinton hefur enn nokkurt forskot á Donald Trump samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum, en það er ekki mikið. Óvissa ríkir um hve mikil áhrif síðasta útspil FBI hefur á úrslitin. Hvernig sem fer þá markar dagurinn tímamót. Stuðningsmenn Trumps á kosningafundi í Virginíu þar sem stóryrðin gagnvart Hillary Clinton voru ekki spöruð frekar en venju- lega. NordiCpHoToS/AFp 219 milljónir manna hafa rétt til að kjósa í Bandaríkjunum. umhverfismál Parísarsamning- urinn um aðgerðir gegn loftslags- breytingum gekk í gildi á heimsvísu á föstudaginn. Samningurinn var samþykktur í París 12. desember 2015. Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auð- lindaráðherra, skrifaði undir samn- inginn fyrir Íslands hönd 22. apríl 2016 og Alþingi samþykkti sam- hljóða fullgildingu hans 19. sept- ember síðastliðinn að tillögu utan- ríkisráðherra. Ísland var þar með á meðal fyrstu 55 ríkja sem þurftu að fullgilda til að samningurinn gengi í gildi á heimsvísu. Ísland stefnir á 40 prósenta minnkun losunar gróðurhúsalofttegunda árið 2030, miðað við árið 1990, í samstarfi við aðildarríki ESB og Noreg. Í gær hófst 22. aðildarríkjaþing Rammasamnings S.Þ. um lofts- lagsbreytingar í Marrakesh í Mar- okkó. Það verður jafnframt fyrsta aðildarríkjaþing Parísarsamn- ingsins, en hann er byggður á grunni Rammasamningsins, sem hefur að geyma almenn ákvæði um losunarbókhald og skyldu ríkja heims að bregðast við loftslagsbreyt- ingum af manna völdum. Fyrir þinginu liggur m.a. að útfæra nánar ýmis ákvæði Parísarsamningsins, s.s. um bókhald ríkja varð- andi losun gróðurhúsa- lofttegunda og bindingu kolefnis með skógrækt og öðrum aðgerðum, aðlögun að breytingum, fjármál og fleira. – shá Sögulegt samkomulag frá París í gildi á heimsvísu útivist Ferðafélag Árnesinga hyggst gera kort um gönguleiðir um og yfir Ingólfsfjall. „Til framtíðar litið er mikilvægt að göngufólki og almenningi séu veittar ábyrgar upplýsingar um gönguleiðir sem taldar eru öruggar á og við Ing- ólfsfjall,“ segir í bréfi ferðafélagsins til þeirra sem eiga lönd í fjallinu með ósk um leyfi fyrir kortagerðinni. „Á undanförnum árum hafa því miður hent slys og óhöpp sem rekja má til fákunnáttu fólks um göngu- leiðir á þessu svæði,“ rekur ferða- félagið, sem leggur til sex aðkomu- Gera göngukort fyrir Ingólfsfjall staði að fjallinu. Tekið er fram að gönguleiðir fari ekki um ræktar- lönd og að tröppur verði settar yfir girðingar. – gar ingólfsfjall austan Hveragerðis. FréTTAblAðið/E. Ól. 311,8 225,0 75,2% 24,8% jún júl ág sept okt nóv FBI um að draga taum Trumps, en þegar nýjasta yfirlýsingin kom sagði Trump ekkert að marka FBI: „Hillary Clinton er sek. Hún veit það. FBI veit það,“ sagði hann og sakaði FBI um að vera á hennar bandi. Síðustu dagana hefur bilið á milli þeirra staðið nokkurn veginn í stað og verið í kringum tvö prósent, sem þýðir að ekki þarf mikið til þess að Trump hrósi sigri þótt Clinton hafi vissulega vinninginn enn þá. Mestar líkur standa til þess að Clinton hafi sigur á Trump, líklega frekar nauman, en hvorki er hægt að útiloka að Trump vinni nauman sigur á henni né að Clinton sigri þegar allt kemur til alls með miklum yfirburðum. Þessir tveir óvæntu möguleikar eru báðir í raun vel mögulegir, miðað við skoðanakann- anir síðustu daga og vikna. Venjulega taka úrslitin að skýrast á miðvikudagsmorgni, en það gæti dregist verulega ef litlu munar í ein- hverjum ríkjum. gudsteinn@frettabladid.is 40% minnkun á losun skaðlegra efna er skuldbinging Íslands 8 . n ó v e m B e r 2 0 1 6 Þ r i Ð J u d a G u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð Erum við reiðubúin? Lokaráðstefna Norrænu velferðarvaktarinnar Ráðstefnan fer fram fimmtudaginn 10. nóvember kl.9-16:00 á Hilton hótelinu. Norræna velferðarvaktin er hluti formennskuáætlunar Íslands í norrænu samstarfi árin 2014-2016. Verkefnið miðar að því að undir- búa velferðarkerfin á Norðurlöndunum til að takast á við vá bæði af völdum náttúrhamfara eða mannavöldum. Rætt verður um félags- þjónustu sveitarfélaga og vá, nýja norræna velferðarvísa, viðbrögð velferðarkerfa í efnahagskreppum og fleira spennandi. Fyrirlesarar eru: Lena Dominelli, félagsráðgjafi og prófessor í félagsvísindum við háskólann í Durham Jonas H. Pontusson, prófessor í félagsvísindum við Genfarháskóla Guðný Björk Eydal, prófessor við félagsráðgjafadeild HÍ Sigríður Jónsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu Håkan Nyman, sérfræðingur í sænska heilbirgðis- og félagsmálaráðuneytinu Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði við HÍ Ari Eldjárn, verður með uppistand og Baldvin Þór Bergsson er ráðstefnustjóri Þeir sem vilja sækja ráðstefnuna eru beðnir um að skrá þátttöku á www.nvv.is. Þar má einnig sjá ítarlegri dagskrá. 0 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 3 8 -D 7 A C 1 B 3 8 -D 6 7 0 1 B 3 8 -D 5 3 4 1 B 3 8 -D 3 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 7 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.