Fréttablaðið - 08.11.2016, Blaðsíða 17
fólk
kynningarblað 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r
Að kúkA á
hverjum degi
„Það ætti í
raun að vera
jafn eðli legt
að hafa hægð-
ir daglega eins
og að borða,“
segir Hrönn
Hjálmarsdótt-
ir, heilsumark-
þjálfi hjá Artasan. „Meltingarfærin
okkar eru undirstaða góðrar heilsu
og það er til mikils að vinna að hafa
þau alltaf í toppstandi. Þau sjá um
að brjóta niður fæðuna þannig að
líkaminn getur tekið upp næring-
arefnin. Það sem hann nýtir ekki,
skilar hann frá sér í formi hægða.
Það er aðeins mismunandi hversu
oft við þurfum að hafa hægðir en
eðlilegt þykir að hægðirnar séu
mjúkar og að við losum þær einu
sinni til tvisvar á dag. Hjá sumum
gerist það aðeins sjaldnar en þrisv-
ar til fjórum sinnum í viku ætti að
vera algjört lágmark,“ segir Hrönn.
hægðArtregðA Algeng
Harðlífi og hægðartregða er að
sögn Hrannar því miður afar al-
gengt vandamál. Hún segir sífellt
fleiri þjást vegna þess, bæði börn
og fullorðna. „Lausnin ætti þó ekki
að felast í því að nota efni sem
framkalla niðurgang nema nauð-
syn krefji. Það er alls ekki í lagi
að geta ekki kúkað í marga daga,
né að hægðalosun valdi sársauka
eða kosti áreynslu. Of tíðar klósett-
ferðir eru heldur ekki af hinu góða
en í báðum tilfellum þarf að finna
lausn á vandanum. Lausnin felst þó
ekki í einhverju einu ákveðnu held-
ur er margt sem þarf að huga að,
bæði mataræði, inntaka lyfja, lífs-
stíll, inntaka á mjólkursýrugerlum
og stundum meltingarensímum.“
ensím og gerlAr
Ástæður þess að meltingin fer
í ólag geta að sögn Hrannar verið
margvíslegar. „Það kemur fyrir að
okkur vantar meltingarensím en
laktósaóþol er einmitt dæmi um
slíkt. Röskun á þarmaflóru má þó í
flestum tilfellum rekja til lélegs
mataræðis; of mikils af unnum
matvælum, sykurneyslu og allt of
lítils af trefjum. Sýklalyf og ýmis
önnur lyf eins og svefnlyf og þung-
lyndislyf hafa sömuleiðis mjög
slæm áhrif á þarmana. Mikil koff-
ín- og áfengisneysla er líka slæm
sem og streita og óregla í svefni.“
skortur á meltingArensímum
Matur fer misvel í fólk. Ákveð-
in matvæli eða samsetning matar
getur að sögn Hrannar valdið ónot-
um og uppþembu og gæti orsökin
hugsanlega verið skortur á melting-
arensímum. „Þá náum við ekki að
brjóta niður ákveðna fæðu nógu vel
sem getur skapað hin ýmsu melt-
ingarvandamál. Ýmis heilsufarsleg
vandamál geta tengst skorti á melt-
ingarensímum og eru vindverkir,
uppþemba, ónot og ógleði algeng-
ust. Bólur, exem, höfuðverkur og
liðverkir eru einnig þekkt. Melting-
arensím eins og Digestive Enzyme
Complex er hægt að taka inn með
mat en þau hjálpa til við niðurbrot
á fæðu í maganum.“
Öflug þArmAflórA
Ef þarmaflóran er ekki í jafnvægi
hefur það gríðarleg áhrif á heilsu-
farið en ónæmiskerfið er að mestu
leiti staðsett í þörmunum. Hrönn
segir það geta tekið langan tíma að
byggja upp öfluga þarmaflóru. „Ef
hún hefur verið lengi í ójafnvægi
þarf að huga sérstaklega að því að
taka inn öfluga mjólkursýrugerla
því hollur matur er kannski ekki
nóg.“
hægðir segjA til um heilsunA
Þar sem allir þurfa að hafa hægð-
ir frá vöggu til grafar þá ætti um-
ræðan um hægðir að mati Hrann-
ar ekki að vera eins mikið feimn-
ismál og raunin er. „Það er mjög
mikilvægt að hafa heilbrigðar
hægðir á öllum æviskeiðum. Á með-
fylgjandi mynd má sjá hvernig heil-
brigðar hægðir eiga að líta út. Við
ættum öll að gera okkur far um að
huga vel að þessum málum, skoða
hvernig þær líta út og keppa að því
að geta losað daglega.“
Hrönn segir heilbrigðar hægð-
ir forsendu þess að þarmaflóran sé
í jafnvægi. „Heilbrigð þarmaflóra
er undirstaða heilsunnar og hún ver
okkur líka gegn óæskilegum örver-
um og hefur margs konar áhrif á
heila- og taugakerfið, þar með talið
geðheilsu.“
heilbrigðAr hægðir
frá heilbrigðum líkAmA
Eðlilegar hægðir eru mjúkar og
hægt að losa þær án nokkurrar
áreynslu. „Ef svo er ekki er lík-
legt að það vanti trefjar í fæðuna
en trefjar fáum við í grófu korni,
baunum, grænmeti og ávöxtum.
Við meltum ekki trefjarnar en þær
drekka í sig vökva og því þarf allt-
af að huga vel að því að drekka nóg
af vatni. Trefjarnar gera hægð-
irnar mjúkar, tryggja að þær fari
hratt gegnum ristilinn og auðvelda
losun.“
hvernig voru hægðirnAr í dAg?
Artasan kynnir Mjólkursýrugerlar og meltingarensím eru okkur lífsnauðsynleg. Prógastró DSS®-1 er öflugur asídófílus
sem margfaldar sig í smáþörmunum og byggir upp þarmaflóruna. Digestive Enzyme Complex eru meltingarensím sem
auðvelda niðurbrot á mat og draga úr líkum á uppþembu og óþægindum.
Kaupaukatilboð
Í nóvember fylgja meltingarens-
ímin frá Natures Aid með Próg-
astró, öflugu mjólkursýrugerl-
unum. Kaupaukatilboðið fæst í
flestum apótekum, heilsubúð-
um og heilsuhillum verslana á
meðan birgðir endast.
Mikilvægt að kúka
á hverjum degi.
Hægðir segja til
um heilbrigði.
Þar sem allir þurfa að hafa hægðir frá vöggu til grafar ætti umræða um þær ekki að
vera jafn mikið feimnismál og raunin er.
0
8
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
8
-F
5
4
C
1
B
3
8
-F
4
1
0
1
B
3
8
-F
2
D
4
1
B
3
8
-F
1
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K