Fréttablaðið - 08.11.2016, Síða 17

Fréttablaðið - 08.11.2016, Síða 17
fólk kynningarblað 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r Að kúkA á hverjum degi „Það ætti í raun að vera jafn eðli legt að hafa hægð- ir daglega eins og að borða,“ segir  Hrönn Hjálmarsdótt- ir, heilsumark- þjálfi hjá Artasan. „Meltingarfærin okkar eru undirstaða góðrar heilsu og það er til mikils að vinna að hafa þau alltaf í toppstandi. Þau sjá um að brjóta niður fæðuna þannig að líkaminn getur tekið upp næring- arefnin. Það sem hann nýtir ekki, skilar hann frá sér í formi hægða. Það er aðeins mismunandi hversu oft við þurfum að hafa hægðir en eðlilegt þykir að hægðirnar séu mjúkar og að við losum þær einu sinni til tvisvar á dag. Hjá sumum gerist það aðeins sjaldnar en þrisv- ar til fjórum sinnum í viku ætti að vera algjört lágmark,“ segir Hrönn. hægðArtregðA Algeng Harðlífi og hægðartregða er að sögn Hrannar því miður afar al- gengt vandamál. Hún segir sífellt fleiri þjást vegna þess, bæði börn og fullorðna. „Lausnin ætti þó ekki að felast í því að nota efni sem framkalla niðurgang nema nauð- syn krefji. Það er alls ekki í lagi að geta ekki kúkað í marga daga, né að hægðalosun valdi sársauka eða kosti áreynslu. Of tíðar klósett- ferðir eru heldur ekki af hinu góða en í báðum tilfellum þarf að finna lausn á vandanum. Lausnin felst þó ekki í einhverju einu ákveðnu held- ur er margt sem þarf að huga að, bæði mataræði, inntaka lyfja, lífs- stíll, inntaka á mjólkursýrugerlum og stundum meltingarensímum.“ ensím og gerlAr Ástæður þess að meltingin  fer í ólag geta að sögn Hrannar verið margvíslegar. „Það kemur fyrir að okkur vantar meltingarensím en laktósaóþol er einmitt dæmi um slíkt. Röskun á þarmaflóru má þó í flestum tilfellum rekja til lélegs mataræðis;  of mikils af unnum matvælum, sykurneyslu og allt of lítils af trefjum. Sýklalyf og ýmis önnur lyf eins og svefnlyf og þung- lyndislyf hafa sömuleiðis mjög slæm áhrif á þarmana. Mikil koff- ín- og áfengisneysla er líka slæm sem og streita og óregla í svefni.“ skortur á meltingArensímum Matur fer misvel í fólk. Ákveð- in matvæli eða samsetning matar getur að sögn Hrannar valdið ónot- um og uppþembu og gæti orsökin hugsanlega verið skortur á melting- arensímum. „Þá náum við ekki að brjóta niður ákveðna fæðu nógu vel sem getur skapað hin ýmsu melt- ingarvandamál. Ýmis heilsufarsleg vandamál geta tengst skorti á melt- ingarensímum og eru vindverkir, uppþemba, ónot og ógleði algeng- ust. Bólur, exem, höfuðverkur og liðverkir eru einnig þekkt. Melting- arensím eins og Digestive Enzyme Complex er hægt að taka inn með mat en þau hjálpa til við niðurbrot á fæðu í maganum.“ Öflug þArmAflórA Ef þarmaflóran er ekki í jafnvægi hefur það gríðarleg áhrif á heilsu- farið en ónæmiskerfið er að mestu leiti staðsett í þörmunum. Hrönn segir það geta tekið langan tíma að byggja upp öfluga þarmaflóru. „Ef hún hefur verið lengi í ójafnvægi þarf að huga sérstaklega að því að taka inn öfluga mjólkursýrugerla því hollur matur er kannski ekki nóg.“ hægðir segjA til um heilsunA Þar sem allir þurfa að hafa hægð- ir frá vöggu til grafar þá ætti um- ræðan um hægðir að mati Hrann- ar ekki að vera eins mikið feimn- ismál og raunin er. „Það er mjög mikilvægt að hafa heilbrigðar hægðir á öllum æviskeiðum. Á með- fylgjandi mynd má sjá hvernig heil- brigðar hægðir eiga að líta út. Við ættum öll að gera okkur far um að huga vel að þessum málum, skoða hvernig þær líta út og keppa að því að geta losað daglega.“ Hrönn segir heilbrigðar hægð- ir forsendu þess að þarmaflóran sé í jafnvægi. „Heilbrigð þarmaflóra er undirstaða heilsunnar og hún ver okkur líka gegn óæskilegum örver- um og hefur margs konar áhrif á heila- og taugakerfið, þar með talið geðheilsu.“ heilbrigðAr hægðir frá heilbrigðum líkAmA Eðlilegar hægðir eru mjúkar og hægt að losa þær án nokkurrar áreynslu. „Ef svo er ekki er lík- legt að það vanti trefjar í fæðuna en trefjar fáum við í grófu korni, baunum, grænmeti og ávöxtum. Við meltum ekki trefjarnar en þær drekka í sig vökva og því þarf allt- af að huga vel að því að drekka nóg af vatni. Trefjarnar gera hægð- irnar mjúkar, tryggja að þær fari hratt gegnum ristilinn og auðvelda losun.“ hvernig voru hægðirnAr í dAg? Artasan kynnir Mjólkursýrugerlar og meltingarensím eru okkur lífsnauðsynleg. Prógastró DSS®-1 er öflugur asídófílus sem margfaldar sig í smáþörmunum og byggir upp þarmaflóruna. Digestive Enzyme Complex eru meltingarensím sem auðvelda niðurbrot á mat og draga úr líkum á uppþembu og óþægindum. Kaupaukatilboð Í nóvember fylgja meltingarens- ímin frá Natures Aid með Próg- astró, öflugu mjólkursýrugerl- unum. Kaupaukatilboðið fæst í flestum apótekum, heilsubúð- um og heilsuhillum verslana á meðan birgðir endast. Mikilvægt að kúka á hverjum degi. Hægðir segja til um heilbrigði. Þar sem allir þurfa að hafa hægðir frá vöggu til grafar ætti umræða um þær ekki að vera jafn mikið feimnismál og raunin er. 0 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 3 8 -F 5 4 C 1 B 3 8 -F 4 1 0 1 B 3 8 -F 2 D 4 1 B 3 8 -F 1 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 7 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.