Fréttablaðið - 05.12.2016, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 05.12.2016, Blaðsíða 11
s p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ð 1111 ∙ i sport Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Drive flísasagir Kletthálsi 7, Reykjavík Fuglavík 18, Reykjanesbæ Drive BL180D, 500W, 180mm blað, borð 590x385mm 25.900 Drive BL230-1200, 1250W, 230mm blað, borð 1035x455mm hliðarstækkun 169.900 Drive BL200-570A, 800W, 200mm blað, borð 790x390cm 37.900 Drive BL200-490B, 1250W, 200mm blað, borð 790x390cm hliðarstækkun 54.900 Ólafía Þórunn var að vonum ánægð með áfangann. mynd/gsí Maður þarf að vera ótrúlega sterkur Ólafía Þórunn Kristinsdóttir braut blað í íslenskri íþróttasögu þegar hún tryggði sér sæti á LPGA-mótaröðinni í golfi í gær. Ólafía Þór- unn lenti í 2. sæti á lokaúrtökumótinu fyrir mótaröðina og var hársbreidd frá sigri. Hún leggur mikið upp úr andlegum undirbúningi. goLF „Þetta var frábært, alveg ótrú- legt. Ég er ekki alveg búin að átta mig á þessu. Núna líður mér eiginlega bara eins og eftir hringinn,“ sagði alsæl Ólafía Þórunn Kristinsdóttir í samtali við Fréttablaðið skömmu eftir að hún tryggði sér sæti á LPGA- mótaröðinni, sterkustu atvinnu- mannamótaröð í heimi. Ólafía Þórunn var í 2. sæti fyrir lokahringinn í gær og því voru lík- urnar henni í hag. Hún gaf ekkert eftir og endaði í 2. sæti á tólf höggum undir pari. „Ég var alveg búin að átta mig á því fyrirfram, fyrir daginn í dag, að ég ætti góða möguleika,“ sagði Ólafía Þórunn sem átti í smá basli á Hills- vellinum fyrsta keppnisdaginn. Hún spilaði hins vegar frábærlega þriðja og fimmta keppnisdaginn. „Þetta er aðeins erfiðari völlur, þrengri og minni flatir. Það var mikill vindur í dag [í gær] sem gerði þetta erfiðara. Fyrsta daginn fannst mér ég eiga að skora miklu betur, ég spilaði betur en skorið sýndi. En það var kannski smá skrekkur í manni, mótið að byrja og svona. Hina dagana fannst mér skorið í samræmi við spilamennskuna,“ sagði Ólafía Þórunn. En lærði hún mikið af því að taka þátt á LET- mótaröðinni, Evrópsku mótaröð- inni, í ár? „Já, klárlega. Ég er búin að læra ótrúlega mikið á því, að keppa við þær bestu og sjá hvernig þær spila. Ég get spilað alveg jafn vel og þær,“ sagði Ólafía Þórunn sem kvaðst ekkert svekkt þótt hún hafi misst af „Maður þarf að höndla mótlæti og líka þegar það gengur vel. Ég var í samfélagsmiðlabanni. Ég leyfði mér ekki að fara inn á þá því það getur verið svolítið yfirþyrmandi. Íslend- ingar eru svo frábærir, spenntir og halda svo mikið með þér. Núna verð ég að fara að lesa öll skilaboðin,“ sagði Ólafía Þórunn að lokum. Maður þarf að höndla mótlæti og líka þegar það gengur vel. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir Ólafía Þórunn komin á stærsta sviðið goLF LPGA-mótaröðin er stærsta atvinnumannamótaröðin í kvenna- golfi en Ólafía er fyrsti íslenski kylf- ingurinn sem kemst inn á móta- röðina. Ólafía hefur undanfarið ár leikið á LET-mótaröðinni, Evrópsku mótaröðinni, sem er næststerkasta mótaröðin í golfi en árangur hennar í gær tryggir henni sæti á LPGA- og Symetra-mótaröðinni sem eru sterkustu mótaraðirnar vestan hafs. Ólafía Þórunn varð aðeins annar kylfingurinn sem tryggði sér þátt- tökurétt á Evrópumótaröð kvenna á síðasta ári á eftir Ólöfu Maríu Jóns- dóttur, kylfingi úr GK. Um er að ræða stórt tækifæri fyrir Ólafíu en verðlaunaféð í LPGA- mótaröðinni er umtalsvert hærra en þekkist á LET-mótaröðinni ásamt því að hún á möguleika á þátttöku í stærstu golfmótum heimsins. Til dæmis verður verðlaunaféð á LPGA-mótunum á næsta ári aldrei undir milljón dollurum á LPGA- mótaröðinni en á yfirstandandi tímabili í LET-mótaröðinni voru aðeins tvö mót sem verðlaunaféð var meira en milljón dollarar. Það að hún hafi náð öðru sæti í gær gæti reynst henni drjúgt en þegar fyrstu mótin fara fram á LPGA-mótaröðinni í lok janúar fá efstu kylfingar úrtökumótsins for- gang inn í mótin. Fyrsta mótið fer fram þann 23.  janúar næstkomandi á Ocean View-golfklúbbnum á Bahama en heildar verðlaunaféð í mótinu er 1,4 milljónir dollara, rúmlega 150 milljónir íslenskra króna. – kpt Ólafía ásamt bróður sínum og kylfusveini. mynd/gsí efsta sætinu á átjándu holu. Kylfingurinn knái leggur mikið upp úr andlegum undirbúningi og segist hafa lært hvernig hún á að tak- ast á við pressu og utanaðkomandi athygli. Hún setti sjálfa sig meira að segja í samfélagsmiðlabann á meðan á mótinu í Flórída stóð. „Svona úrtökumót reyna mikið á mann andlega og maður þarf að vera ótrúlega sterkur. Hvert högg skiptir svo rosalega miklu máli. Þetta er í raun bara keppni í því hver er sterk- astur andlega. Það eru allir búnir að undirbúa sig svo vel og æfa svo vel en þegar út í mótið er komið snýst þetta um hver er þolinmóðastur og sterkastur,“ sagði Ólafía Þórunn. Ingvi Þór Sæmundsson sveinn@frettabladid.is 0 5 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :4 6 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 8 C -C 7 A C 1 B 8 C -C 6 7 0 1 B 8 C -C 5 3 4 1 B 8 C -C 3 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 4 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.