Fréttablaðið - 05.12.2016, Síða 11
s p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ð 1111 ∙ i
sport
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Drive flísasagir
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
Drive BL180D,
500W, 180mm blað,
borð 590x385mm
25.900
Drive BL230-1200,
1250W, 230mm blað,
borð 1035x455mm
hliðarstækkun
169.900
Drive BL200-570A,
800W, 200mm blað,
borð 790x390cm
37.900 Drive BL200-490B, 1250W, 200mm blað,
borð 790x390cm
hliðarstækkun
54.900
Ólafía Þórunn var að vonum ánægð með áfangann. mynd/gsí
Maður þarf að vera ótrúlega sterkur
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir braut blað í íslenskri íþróttasögu þegar hún tryggði sér sæti á LPGA-mótaröðinni í golfi í gær. Ólafía Þór-
unn lenti í 2. sæti á lokaúrtökumótinu fyrir mótaröðina og var hársbreidd frá sigri. Hún leggur mikið upp úr andlegum undirbúningi.
goLF „Þetta var frábært, alveg ótrú-
legt. Ég er ekki alveg búin að átta mig
á þessu. Núna líður mér eiginlega
bara eins og eftir hringinn,“ sagði
alsæl Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
í samtali við Fréttablaðið skömmu
eftir að hún tryggði sér sæti á LPGA-
mótaröðinni, sterkustu atvinnu-
mannamótaröð í heimi.
Ólafía Þórunn var í 2. sæti fyrir
lokahringinn í gær og því voru lík-
urnar henni í hag. Hún gaf ekkert
eftir og endaði í 2. sæti á tólf höggum
undir pari.
„Ég var alveg búin að átta mig á því
fyrirfram, fyrir daginn í dag, að ég
ætti góða möguleika,“ sagði Ólafía
Þórunn sem átti í smá basli á Hills-
vellinum fyrsta keppnisdaginn. Hún
spilaði hins vegar frábærlega þriðja
og fimmta keppnisdaginn.
„Þetta er aðeins erfiðari völlur,
þrengri og minni flatir. Það var mikill
vindur í dag [í gær] sem gerði þetta
erfiðara. Fyrsta daginn fannst mér ég
eiga að skora miklu betur, ég spilaði
betur en skorið sýndi.
En það var kannski smá skrekkur
í manni, mótið að byrja og svona.
Hina dagana fannst mér skorið í
samræmi við spilamennskuna,“
sagði Ólafía Þórunn. En lærði hún
mikið af því að taka þátt á LET-
mótaröðinni, Evrópsku mótaröð-
inni, í ár?
„Já, klárlega. Ég er búin að læra
ótrúlega mikið á því, að keppa við
þær bestu og sjá hvernig þær spila.
Ég get spilað alveg jafn vel og þær,“
sagði Ólafía Þórunn sem kvaðst
ekkert svekkt þótt hún hafi misst af
„Maður þarf að höndla mótlæti
og líka þegar það gengur vel. Ég var í
samfélagsmiðlabanni. Ég leyfði mér
ekki að fara inn á þá því það getur
verið svolítið yfirþyrmandi. Íslend-
ingar eru svo frábærir, spenntir og
halda svo mikið með þér. Núna verð
ég að fara að lesa öll skilaboðin,“
sagði Ólafía Þórunn að lokum.
Maður þarf að
höndla mótlæti og
líka þegar það gengur vel.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn komin á stærsta sviðið
goLF LPGA-mótaröðin er stærsta
atvinnumannamótaröðin í kvenna-
golfi en Ólafía er fyrsti íslenski kylf-
ingurinn sem kemst inn á móta-
röðina. Ólafía hefur undanfarið ár
leikið á LET-mótaröðinni, Evrópsku
mótaröðinni, sem er næststerkasta
mótaröðin í golfi en árangur hennar
í gær tryggir henni sæti á LPGA- og
Symetra-mótaröðinni sem eru
sterkustu mótaraðirnar vestan hafs.
Ólafía Þórunn varð aðeins annar
kylfingurinn sem tryggði sér þátt-
tökurétt á Evrópumótaröð kvenna
á síðasta ári á eftir Ólöfu Maríu Jóns-
dóttur, kylfingi úr GK.
Um er að ræða stórt tækifæri fyrir
Ólafíu en verðlaunaféð í LPGA-
mótaröðinni er umtalsvert hærra
en þekkist á LET-mótaröðinni ásamt
því að hún á möguleika á þátttöku í
stærstu golfmótum heimsins.
Til dæmis verður verðlaunaféð á
LPGA-mótunum á næsta ári aldrei
undir milljón dollurum á LPGA-
mótaröðinni en á yfirstandandi
tímabili í LET-mótaröðinni voru
aðeins tvö mót sem verðlaunaféð
var meira en milljón dollarar.
Það að hún hafi náð öðru sæti
í gær gæti reynst henni drjúgt en
þegar fyrstu mótin fara fram á
LPGA-mótaröðinni í lok janúar fá
efstu kylfingar úrtökumótsins for-
gang inn í mótin.
Fyrsta mótið fer fram þann
23. janúar næstkomandi á Ocean
View-golfklúbbnum á Bahama en
heildar verðlaunaféð í mótinu er
1,4 milljónir dollara, rúmlega 150
milljónir íslenskra króna. – kpt Ólafía ásamt bróður sínum og kylfusveini. mynd/gsí
efsta sætinu á átjándu holu.
Kylfingurinn knái leggur mikið
upp úr andlegum undirbúningi og
segist hafa lært hvernig hún á að tak-
ast á við pressu og utanaðkomandi
athygli. Hún setti sjálfa sig meira
að segja í samfélagsmiðlabann á
meðan á mótinu í Flórída stóð.
„Svona úrtökumót reyna mikið á
mann andlega og maður þarf að vera
ótrúlega sterkur. Hvert högg skiptir
svo rosalega miklu máli. Þetta er í
raun bara keppni í því hver er sterk-
astur andlega. Það eru allir búnir að
undirbúa sig svo vel og æfa svo vel
en þegar út í mótið er komið snýst
þetta um hver er þolinmóðastur og
sterkastur,“ sagði Ólafía Þórunn.
Ingvi Þór
Sæmundsson
sveinn@frettabladid.is
0
5
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:4
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
8
C
-C
7
A
C
1
B
8
C
-C
6
7
0
1
B
8
C
-C
5
3
4
1
B
8
C
-C
3
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K