Morgunblaðið - 08.10.2015, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Landssamband smábátaeigenda,
LS, undirbýr nú sameiginlegt út-
boð á olíu, sem gæti náð til um 500
minni báta til að
byrja með. Til-
gangurinn er að
leita hagstæðari
kjara fyrir fé-
laga í Lands-
sambandinu og
segir Örn Páls-
son, fram-
kvæmdastjóri
LS, að olíuút-
boðið gæti farið í
formlegt ferli í byrjun nóvember.
Leitað verði eftir tilboðum frá
stóru olíufélögunum N1, Skeljungi
og Olís. Innan vébanda Landssam-
bands smábátaeigenda eru eigend-
ur tæplega þúsund báta.
Fimm milljónir lítra á ári
„Þetta verkefni hefur lengi verið
á teikniborðinu, en eftir að hafa
rætt þennan möguleika við sér-
fræðinga höfum við ákveðið að
stíga skrefið,“ segir Örn. „Með því
að þjappa körlunum saman búum
við til eitt stórt skip úr kannski
500 bátum. Þannig gæti útboðið
verið upp á um fimm milljónir lítra
á ári og jafnvel meira, allt eftir því
hvað það verða margir með í sam-
flotinu.
Allir njóta karlarnir nú þegar
einhvers afsláttar hjá sínu olíu-
fyrirtæki, en við teljum að með
slíku samstarfi við magnkaup
munum við fá enn meiri afslátt og
það er markmiðið. Ég hef fengið
mjög góðar viðtökur við þeirri litlu
kynningu sem þegar hefur farið
fram og menn eru þegar byrjaðir
að hafa samband og skrá sig í hóp-
inn.“ Örn segir að um umtalsverð-
ar upphæðir geti verið að ræða, en
olían sé einn stærsti útgjaldaliður
útgerðarinnar. Það sé þó mjög
mismunandi hvað hver útgerð noti
mikið af olíu.
Sömdu um tryggingar 1997
Örn rifjar upp að árið 1997 ósk-
aði LS eftir tilboðum í tryggingar
fyrir smábátaflotann. Niðurstaðan
hafi verið sú að semja við erlent
tryggingafélag og það samstarf
hafi leitt af sér verulega lækkun
trygginga hjá smábátunum. Sá
samningur hafi fjarað út, en marg-
ir njóti enn þeirra kjara sem þá
var samið um.
„Það var flókið og erfitt í fram-
kvæmd að semja um tryggingarn-
ar á sínum tíma því bera þurfti
saman ólíka skilmála og þjónustu
við það sem menn höfðu. Nú erum
við að tala um olíu og það er jú
sama olían sem alls staðar er í
boði, en vissulega munum við einn-
ig líta til þjónustuþátta,“ segir
Örn.
Vilja samflot um olíukaup
Landssamband smábátaeigenda undirbýr útboð á olíukaupum 500 bátar til
að byrja með „Með því að þjappa körlunum saman búum við til eitt stórt skip“
Við bryggju í Grundarfirði Í upphafi er miðað við 500 minni báta í útboðinu.
Örn Pálsson
Örn Pálsson segir að útboð á ol-
íu fyrir smábáta gæti verið upp-
hafið á útboðum í fleiri vöru- og
þjónustuflokkum. Þar komi
margt til greina og nefna megi
veiðarfæri. „Það er af nógu að
taka og gangi þetta útboð í olíu
vel er ekki spurning að við höld-
um áfram að skoða mögu-
leikana,“ segir Örn.
Margir
möguleikar
FLEIRI ÚTBOÐ HUGSANLEG
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Innanríkisráðuneytið mun væntan-
lega síðar í vikunni kynna drög að
reglum um notkun dróna. Unnið hef-
ur verið að undirbúningi þessa
regluverks um nokkurt skeið og er
það starf nú á lokastigi, segir Jó-
hannes Tómasson, upplýsinga-
fulltrúi ráðuneytisins, í samtali við
Morgunblaðið.
Væntanlegar drónareglur voru til
umfjöllunar á Alþingi síðastliðinn
mánudag. Þar sagði Ólöf Nordal inn-
anríkisráðherra að mikilvægt væri
að jafnvægi væri milli ávinnings af
þessum tækjum og svo óþæginda
sem af þeim geta hlotist. Slíkt væri
gerlegt með reglugerð sem ætti sér
festu í lögum um loftferðir.
Í glugga Seðlabankans
Umræðan um þetta á Alþingi kom
til vegna fyrirspurnar frá Katrínu
Jakobsdóttur, formanni Vinstri
grænna, sem sagði að nú mætti sjá
dróna á flugi á hinum ýmsu stöðum,
svo sem í miðborg Reykjavíkur, við
gönguleiðina upp á Esju og fyrir ut-
an glugga Seðlabankahússins. Jafn-
vel þar sem fólk væri í sólbaði á svöl-
um fjölbýlishúsa, en með slíku væri
gengið nærri friðhelgi einkalífs.
„Þetta hljómar allt eins og nokk-
urs konar vísindaskáldskapur,“
sagði Katrín um notkun drónanna.
Hún telur þurfa hófstillt regluverk
um þetta flug. Tæknin sem slík væri
hins vegar mjög spennandi. Þá sagði
flokkssystir hennar, Lilja Rafney
Magnúsdóttir, tækifæri felast í notk-
un dróna við smalamennsku.
Drónar fást víða í raftækjaversl-
unum. Þeir allra einföldustu kosta
innan við 10 þúsund krónur en svo
fást líka tæki sem eru margfalt dýr-
ari en langdrægari.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flugmaður Að stýra dróna á flugi er spennandi. Þetta kallar líka á einbeitingu eins og lesa mátti úr svip Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra sem reyndi fyrir sér í drónaflugi á Kirkjubæjarklaustri í fyrrakvöld.
Reglur um drónaflug
verða kynntar í vikunni
Notkun flygilda minnir formann VG á vísindaskáldsögu
Maður á sextugsaldri, sem lögregla
kom að meðvitundarlausum á Akra-
nesi sl. föstudag og var fluttur á
bráðamótttöku Landspítalans í
Fossvogi, hefur verið úrskurðaður
látinn. Honum hafði verið haldið í
öndunarvél þangað til síðdegis í gær.
Annar maður, á fertugsaldri, hafði
verið handtekinn, grunaður um til-
raun til manndráps en málið er nú
orðið að morðmáli. Hinn grunaði var
úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14.
október í Héraðsdómi Vesturlands
en gæsluvarðhaldsúrskurðurinn hef-
ur verið staðfestur af Hæstarétti.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
lögreglunni á Vesturlandi en í til-
kynningunni segir einnig að rann-
sókn málsins miði vel.
Ennfremur segir í tilkynningunni
að þegar lögregla hafi komið að
manninum, sem nú er látinn, hafi
verið talið að um hengingu hefði ver-
ið að ræða. Að á vettvangi hafi verið
vitni sem hafði hafið endurlífgun.
Einnig hafi verið annar maður á
vettvangi, en það var sá grunaði sem
var stuttu síðar handtekinn.
isak@mbl.is
Akranesmálið nú
orðið að morðmáli
Hinn grunaði er í gæsluvarðhaldi
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hæstiréttur Dómurinn staðfesti
gæsluvarðhald yfir þeim grunaða.
Samninganefndir Starfsgreina-
sambandsins (SGS) og Flóa-
bandalagsins undirrituðu í gær
samning við samninganefnd ríkisins
vegna starfsfólks aðildarfélaga SGS
hjá ríkisstofnunum.
Fram kemur í tilkynningu á vef
SGS að samningurinn sé á svipuðum
nótum og samið var um á hinum al-
menna markaði í vor og mun hann
gilda frá 1. maí síðastliðnum.
„Hækkun frá 1. maí er 25.000
krónur. Hinn fyrsta júní árið 2016
hækka laun um 5,5% að lágmarki
15.000 krónur auk breytinga á
launatöflu. Ári síðar hækka laun um
4,5% og 1. júní 2018 hækka laun um
3%. Samningurinn gildir til 31. mars
árið 2019 og kemur þá til sérstök
eingreiðsla 1. febrúar 2019 upp á
45.000 krónur fyrir starfsfólk í fullu
starfi og hlutfallslega fyrir starfsfólk
í hlutastarfi,“ segir í tilkynningunni.
„Lágmarkslaun eru hækkuð til
samræmis við það sem samið var um
á hinum almenna vinnumarkaði og
verða 300.000 krónur frá 1. júní 2018
fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem
starfað hafa fjóra mánuði samfellt
hjá sömu stofnun. Framlag í þróun-
ar- og símenntunarsjóði verður
hækkað í 0,82% auk þess sem aukið
framlag verður sett í stofnanasamn-
inga samkvæmt sérstakri bókun,“
segir jafnframt.
Samningurinn verður borinn und-
ir félagsmenn aðildarfélaga SGS á
næstunni. jonpetur@mbl.is
SGS samdi við ríkið
Samið var á svipuðum nótum og
gert var á almennum vinnumarkaði
Ólöf Nordal inn-
anríkisráðherra
mun á ríkis-
stjórnarfundi á
föstudag koma
með tillögu um
að Karl Axelsson
hæstaréttar-
lögmaður verði
skipaður dómari
við Hæstarétt Ís-
lands. RÚV greindi frá þessu í gær-
kvöldi. Sérstök dómnefnd hafði
komist að þeirri niðurstöðu að Karl
væri hæfastur í starfið. Kom nefnd-
in með tillögu þess efnis og frestur
til að gera athugasemd við hana er
liðinn. Ráðherra er því bundinn af
henni.
Þrír sóttu um stöðuna, auk Karls
þau Davíð Þór Björgvinsson og
Ingveldur Einarsdóttir.
Tillaga um skipun
Karls í Hæstarétt
Karl Axelsson
Hæstiréttur hefur staðfest nið-
urstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur
um nálgunarbann yfir karlmanni
fyrir að áreita og ógna fyrrverandi
eiginkonu sinni. Skal maðurinn
sæta nálgunarbanni í sex mánuði
og er lagt bann við að hann komi á
eða í námunda við heimili konunnar
og barna þeirra. Eftir skilnað
hjónanna 2012 hafa þau deilt um
forræði barnanna. Með dómi í ár
var konunni dæmt forræðið.
Sætir nálgunar-
banni í sex mánuði