Morgunblaðið - 08.10.2015, Side 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2015
ÁBYRGÐAR- OG ÞJÓNUSTUAÐILAR:
Optical Studio Smáralind og Optical Studio Keflavík
OPTICAL STUDIO
FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ
Allt að 50% ódýrari
en sambærileg
vara á meginlandi Evrópu*
KAUPAUKI
Með öllum margskiptum glerjum*
fylgir annað par FRÍTT með í sama
styrkleika. Tilvalið sem sólgleraugu
eða aukagleraugu.
*Margskipt gler á við Varilux, Multifocal, Progressive og tvískipt gler.
GLERAUGU Á HAGSTÆÐARA VERÐI
* Lindberg-umgjörð m/ Hoya Progressive glerjum, 1.6 Index.
Skaðinn er skeður,
ein kona í borg-
arstjórn Reykjavíkur,
sem ákvað að hætta í
stjórninni, ætlaði sér
síðasta daginn sem
hún sæti stjórn-
arfund, að skjóta eitr-
aðri ör á Ísrael, –
(með kröfum um við-
skiptabann), – í sama
mund og hún hlypi af
fundinum og skellti
hurðinni á eftir sér, – greinilega í
þeirri von að hún þyrfti ekki að
svara fyrir þetta athæfi og þar
með yrðu engin eftirmál. En þessi
eitraða ör var hlaðin hatri músl-
ima á íbúum Ísraelsríkis og Gyð-
ingum.
En í stað þess að hitta „Landið
helga“, þá geigaði skotið og hitti í
þess stað íslensku þjóðina í hjarta-
stað. En þótt það væri ein mann-
eskja sem kom fram með þessa
tillögu þá var það öll borg-
arstjórnin sem samþykkti þessa
tillögu. Öll stjórnin er þar með
samsek, enda hefði þetta gerræði
aldrei komið til, nema því aðeins
að borgarstjórnin veitti samþykki
sitt.
Þá er það enginn vafi í mínum
huga, að borgarstjórinn var þessa
vel meðvitandi, allt frá upphafi, og
hann er þar með samsekur öllum
hinum í stjórninni.
En hvernig væri nú að líta að-
eins á uppruna þessara tveggja
þjóða ?
Allt frá stofnun hins nýja Ísr-
aels ríkis, þá hafa þjóðir Íslands
og Ísraels verið vinaþjóðir, enda
að mörgu leyti ná-
tengdar að trú og
menningu. Ísr-
aelsþjóðin sem nú á
heimkynni á hinu
forna landssvæði
hins gamla Ísraels,
er að stofni til hinir
fornu Gyðingar, það
er Júda-ættkvíslin, –
ein af hinum tólf ætt-
kvíslum hins forna
Ísraels, – raunar
stærsta ættkvíslin,
sem bjó um aldir í
Landinu helga í
kringum Jerúsalem, og raunar á
því sama svæði og nú er hið nýja
Ísraels ríki.
Íslenska þjóðin er einnig að
stofni til ein af ættkvíslunum tólf,
– það er af ættkvísl Benjamíns,
sem var hin minnsta af hinum tólf
ættkvíslum hins forna Ísraels, og
þeirra heimkynni voru á lands-
svæðinu í kringum Galíleu-vatnið
allt fram yfir daga Krists. Þá
bjuggu báðar þessar þjóðir, (eða
ættkvíslir), hlið við hlið, í sátt og
samlyndi, á hinu forna landi Ísr-
aels.
En það mun hafa verið
skömmu eftir dauða Krists, að
Rómverjar, – sem höfðu þá yf-
irráð yfir landi Gyðinga, – höfðu í
hótunum við Gyðinga, um að
senda her til landsins, ef þeir
greiddu ekki skatt til Rómar. Ef
rómverski herinn kæmi eftir
landi, norðan að, þá kæmu þeir
fyrst að landi Benjamíns-
ættarinnar. En sú ættkvísl var
fámenn og varnarlítil. Þá vissu
menn einnig að Rómverjar voru
miskunnarlausir í hernaði. Þetta
gæti því haft þær afleiðingar, að
allri Benjamíns-ættkvíslinni yrði
útrýmt.
Því fór svo að þeir tóku sig þá
upp, – allir sem einn, – með allan
sinn búsmala, og héldu norður í
átt að sléttunum í kringum Svarta
hafið. (Þar sem núna er Úkraína).
Það var sennilega sama, eða svip-
uð leið, og hinar tíu Ísraels-
ættkvíslanna höfðu farið nokkrum
öldum fyrr, þegar þær ættkvíslir
námu lönd í Vestur-Evrópu,
Skandinavíu og á Bretlandseyjum.
Eftir að Benjamíns-ættkvíslin
hafði dvalið nokkur hundruð ár
þarna á sléttunum við Svartahafið,
þá tóku menn sig upp, enn á ný, í
leit nýrra landa þar sem þeir gætu
stofnað sitt eigið heimaland og bú-
ið þar í friði.
Í þeirri för héldu þeir áfram allt
til Danmerkur, Svíþjóðar og Nor-
egs. Í Noregi vildu þeir nema land
kringum tvo stóra firði, – land
sem þeir gætu helgað sér sem sitt
eigið heimaland, en það gekk ekki
eftir sökum stöðugs ófriðar við
norska smákónga og ættarhöfð-
ingja.
Að lokum fór það svo, að ákveð-
ið var að taka stefnu á lítt byggða
eyju, sem vitað var um langt í hafi
úti, og að sá staður yrði sem enda-
stöð. Það varð úr; þar var nýtt
land numið – og þar var stofnað
hið nýja ríki Benjamíns-
ættarinnar, – og gefið nafnið Ís-
land.
En snúum okkur þá til dagsins
í dag, hvað er til ráða, út úr því
vandamáli sem komið er upp milli
þessara tveggja vina- og frænd-
þjóða ?
Það fyrsta er, augljóslega, að
dregin verði til baka þessa van-
hugsaða ályktun, – eða tillaga, –
borgarstjórnarinnar, og að til-
lagan verði dæmd dauð og ómerk.
Að mínu mati, þá ætti það að
vera næsta skrefið, að ríkisstjórn
Íslands sendi Ísraelsstjórn form-
lega afsökun, með útskýringum
um, að þarna hafi íslensk lög ver-
ið brotin, (sem og alþjóðalög), og
að borgarstjórn Reykjavíkur hafi
ekki haft neinar heimildir til þess
að blanda sér í utanríkismál Ís-
lendinga, – með þessum hætti.
Þá er það mitt mat, að borg-
arstjórinn í Reykjavík sé ekki
lengur hæfur til þess að gegna
stöðu æðsta yfirmanns borg-
arinnar og því eins þá verði að
víkja honum úr því starfi.
Meirihluti borgarstjórnarinnar,
sem samþykkti þessa óréttmætu
tillögu, er einnig vanhæfur, (einn-
ig, að mínu mati), og ber því að
víkja allri stjórninni frá. Svo og, í
framhaldi af því, þá verði end-
urkosið til borgarstjórnar
Reykjavíkur, og að ný stjórn
verði mynduð, sem sitji það sem
eftir er núverandi kjörtímabils, –
og þá jafnframt, að nýr borg-
arstjóri verði ráðinn.
Sáttarhönd skal fram rétta
Eftir Tryggva
Helgason » Íslenska þjóðin er
einnig að stofni til,
ein ættkvísl hins forna
Ísraels, – ætt Benja-
míns, – hin minnsta
hinna tólf ættkvísla hins
forna Ísraels.
Tryggvi
Helgason
Höfundur er fv. flugstjóri og
stofnandi flugfélagsins Norðurflugs
á Akureyri.
Móttaka að-
sendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfu-
daga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Kerfið er
auðvelt í notkun og tryggir ör-
yggi í samskiptum milli starfs-
fólks Morgunblaðsins og höf-
unda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á
aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í
hægra horni forsíðu mbl.is.
Þegar smellt er á lógóið birtist
felligluggi þar sem liðurinn
„Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf not-
andinn að nýskrá sig inn í kerf-
ið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja
hverju þrepi í skráningarferlinu.
Eftir að viðkomandi hefur skráð
sig sem notanda í kerfið er nóg
að slá inn kennitölu notanda og
lykilorð til að opna svæðið.
Hægt er að senda greinar allan
sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá
kl. 8-18.
mbl.is
alltaf - allstaðar