Morgunblaðið - 08.10.2015, Síða 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2015
Í grein minni frá 5.
september síðastliðnum,
þá lýsti ég því hvernig
lítill hópur opinberra
starfsmanna, í ráðu-
neytum og stjórnsýsl-
unni hefur byggt sér
upp lokað forréttinda-
kerfi, sem kemur al-
gjörlega í veg fyrir það
að allir landsmenn séu
jafnir samkvæmt lögum
landsins.
Ekki tók síðan betra við, þegar
gerðardómurinn kvað upp úrskurð
sinn í launamálum hjúkrunarfræðinga
og félagsmanna Bandalags háskóla-
manna, enda allir aðilar, sem um málið
fjölluðu innan forgangselítunnar. Nei,
þessi vinnubrögð ganga einfaldlega
ekki, að láta þessa forréttindaelítu
vanvirða grunnatriði stjórnarskrár
landsins, að allir þegnar landsins skuli
vera jafnir fyrir lögum landsins.
Á þeim tíma, sem ég starfaði að
kjarasamningamálum á vegum VSÍ,
sem er forveri Samtaka
atvinnulífsins, var mér
það ljóst að áður en
samningaviðræður eru
hafnar, þá þurfa að vera
til staðar skýrar upplýs-
ingar um þær afleið-
ingar sem viðkomandi
atriði hefur. En vitleys-
an gekk meira að segja
svo langt að starfsfólki
ASÍ og VSÍ var boðin
aðild að Lífeyrissjóði op-
inberra starfsmanna,
sem starfsfólkið þáði,
þrátt fyrir harðorð mót-
mæli og að barið hafi verið í borðið hjá
VSÍ.
Já, kjarasamningarnir við lækna,
kennara, hjúkrunarfræðinga og samn-
ingar við BHM eru allir verulega
ámælisverðir, því þar er byrjað á öfug-
um enda. Fyrst þarf að ákveða lág-
markslaun í landinu. Við skulum kalla
þau X og síðan þurfum við að marka
launasviðið sem heimilt er að semja
innan á almennum markaði, til dæmis
XXX.
Síðan þarf að setja í lög ákvæði þess
efnis, að séu laun hærri en þreföld lág-
markslaunin, þá falli burt allar verk-
fallsheimildir, þannig að aldrei verði
hægt að nota verkfallsvopnið, ef launin
eru yfir þreföldum lágmarkslaunum.
Ofurlaun þau, sem í mjög auknum
mæli hafa tíðkast hjá æðstu stjórn-
endum og millistjórnendum í dag,
verður að endurskoða. Mín tillaga er
sú að tekinn verði upp sérstakur há-
tekjuskattur, 5% á kr. milljón á mán-
uði, og hækki síðan um 5% fyrir hverj-
ar byrjaðar eitt hundrað þúsund
krónur í mánaðarlaun, þó þannig að
skattprósentan verði aldrei hærri en
90% í þennan hálaunaskatt. Ég tel það
víst að þessi aðferð muni skila góðum
árangri í því að bæta siðferðið í þess-
um ofurlaunamálum. Þannig mætti
afla tekna sem renna til samfélagsins
alls, en ekki aðeins fyrir þessa lokuðu
elítu opinberra starfsmanna.
Siðferðið í samningamálum við op-
inbera starfsmenn er á það lágu plani,
að engu tali tekur. Þetta lokaða forrétt-
indakerfi opinberra starfsmanna verð-
ur að uppræta þannig að allir þegnar
þjóðfélagins verði jafnir fyrir lands-
lögum. Við ykkur hjúkrunarfræðinga
vil ég segja, að þið hafið látið græðgina
ná tökum á ykkur. Þegar ég var á fjór-
anda ári, þá varð ég fyrir því óláni að
mjaðmakúlan á vinstra fæti brotnaði af
leggnum, sem kostaði mig liðlega
tveggja mánaða dvöl á Landspít-
alanum, á stofu 14 á handlækn-
ingadeild, sem þá var undir styrkri
stjórn Snorra Hallgrímssonar og frök-
en Jóhönnu. Já, þá var heimavist
hjúkrunarskólans í risinu á Landspít-
alanum. Þegar ég var orðinn hjóla-
stólafær, þá fór ég á hverju kvöldi með
Ágústi (lamaða íþróttamanninum) upp
á heimavist, og þar kynntist ég dálítið
því námsefni sem þið fóruð yfir, og þar
á meðal var siðfræðin sem ég hreifst af.
Mér er hreinlega spurn, hvort hætt sé
að kenna siðfræði eftir að hjúkrunar-
fræðin var færð á háskólastig? Ég vil
því hvetja ykkur, kæru hjúkr-
unarfræðingar, til að draga til baka
allar uppsagnir ykkar og einnig að
falla frá þeirri siðlausu leiðréttingu
sem gerðardómurinn færði ykkur.
Við ykkur félagsmenn BHM vil ég
fyrst segja, að kröfugerð ykkar var til
háborinnar skammar. Ekki hvarflaði
að ykkur að taka neitt tillit til þess að
það er þjóðin öll, sem kostar helming
námslána ykkar, en ekki þið. Einnig
vil ég geta þess, að mér þykir sem þið
gleymið því alltof oft að þið eruð í
þjónustu þjóðarinnar, en hún er ekki í
þjónustu ykkar.
Kæru ráðherrar, þingmenn og aðrir
starfsmenn stjórnsýslunnar, takið nú
á ykkur rögg og farið að vinna vinnuna
ykkar, við að tryggja að allir þegnar
þjóðfélagsins verði jafnir fyrir lögum
landsins. Og ekki væri verra að þið
upplýstuð um öll þau sérkjör sem þið
eruð aðnjótandi við innvinnslu réttar
til eftirlauna, sem þingmenn og eða
ráðherrar.
Örlítið meira um virðingarleysi stjórnvalda
gagnvart ákvæðum stjórnarskrárinnar
Eftir Guðjón
Tómasson » Ofurlaun þau, sem í
mjög auknum mæli
hafa tíðkast hjá æðstu
stjórnendum og milli-
stjórnendum í dag,
verður að endurskoða.
Guðjón
Tómasson
Höfundur er eldri borgari.
Fjáröflun
fyrir félög og hópa
www.danco.is
Heildsöludreifing
Flottar pakkningar sem innihalda
jólapappír og skraut
Keppnin um Oddfellow-
skálina hafin
Keppni um Oddfellow-skálina hófst
í vikubyrjun. Sextán pör mættu til
leiks og styrktu félagsauðinn en þetta
er í fjórða skiptið sem spilað er um
skálina.
Hér er lokastaðan, meðalskor 168
stig:
Páll Hjaltason - Hjalti Pálsson 236
Guðm. Ágústsson - Brynjar Níelsson 202
Hreinn Ó. Sigtryggss. - Jón Úlfljótss. 184
Sigurður Sigurðss. - Arnar Óskarss. 184
Jóhannes Sverrisson - Óskar Karlsson 182
Rúnar Sveinss. - Ragnar Halldórss. 181
Feikna stuð á feðgunum Hjalta og
Páli, 70,2% skor og tóku heim verð-
laun kvöldsins.
Spilaðar verða 6 lotur og gilda fjög-
ur bestu skorin.
Sigurvegarar frá upphafi:
2015 Helgi G. Jónsson -
Hans Óskar Isebarn
2014 Páll Hjaltason - Hjalti Pálsson
2013 Þorsteinn Þorsteinss. - Rafn Haraldss.
Næst verður spilað 2. nóvember.
Hausttvímenningi lokið hjá BK
Fyrstu keppni vetrarins hjá Brids-
félgi Kópavogs lauk sl. fimmtudag og
giltu tvö kvöld af þremur til verð-
launa. Ingvaldur Gústafsson og Bern-
ódus Kristinsson sigruðu örugglega,
hlutu 123,9 stig.
Næstu pör:
Þórður Jörundss. – Þórður Jörundsson 114,1
Sigm. Stefánss. – Hallgr. Hallgrímss, 112,6
Haraldur Ingason – Pétur Gíslson 112,6
Friðjón Þórhallss. – Hjálmar Pálss. 109,4
Fimmtudaginn 8. október hefst svo
Fresco-impkeppnin sem er þriggja
kvölda butler og þarf að mæta öll
kvöldin. Spilað er í Gjábakka, Fann-
borg 8, kl. 19.
Keppnin um
Súgfirðingaskálina hafin
Haustmánuður genginn í garð og
þá hefst keppni um Súgfirðingaskál-
ina, tvímenningsmót Súgfirðinga-
félagsins. Þetta er í 15. skipti sem
keppnin er haldin. Mæting var góð,
15 pör styrktu félagsauðinn.
Úrslit úr fyrstu lotu urðu eftirfar-
andi en meðalskor er 180 stig.
Flemming Jessen - Kristján H. Björnss. 220
Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson 209
Hafliði Baldursson - Árni Guðbjörnss. 199
Steinþór og Birgir Benediktssynir 197
Eðvarð Sturluson - Mortan Hólm 193
Rafn Haraldsson - Jón Sveinsson 184
Flemming og Kristján byrjuðu
mótið af krafti og enduðu kvöldið með
61,1% skor.
Spilaðar verða sjö lotur og telja sex
beztu skorin. Næsta lota verður spil-
uð í byrjun gormánaðar þann 26. okt.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Akraneskaupstaður innleiddi
eigið eldvarnaeftirlit í öllum stofn-
unum sínum 1. október síðastliðinn
í samvinnu við Eldvarnabandalag-
ið. Í þessu felst afgerandi yfirlýs-
ing um að bæta eldvarnir hjá stofn-
unum bæjarins og auka þar með
öryggi þeirra sem þar starfa og
eiga þangað margvísleg erindi.
Ekki veitir af því pottur er sann-
arlega víða brotinn í þessum efn-
um. Eldvarnafulltrúar munu héðan
í frá annast reglulegt eftirlit með
eldvörnum hver í sinni stofnun
samkvæmt leiðbeiningum og gát-
listum Eldvarnabandalagsins. Eld-
varnabandalagið og Slökkvilið
Akraness og Hvalfjarðarsveitar
veittu eldvarnafulltrúum bæjarins,
34 talsins, nauðsynlega fræðslu og
þjálfun svo þeir geti sinnt hlutverki
sínu vel. Við óskum þeim allra
heilla í því.
Innleiðing eigin eldvarnaeftirlits
er mikið fagnaðarefni.
Það er kærkomin viðbót við eld-
varnaeftirlit slökkviliðsins og
markmið þess er annars vegar að
draga úr hættu á að eldur komi upp
og hins vegar að tryggja nauðsyn-
legan viðbúnað til að bregðast við á
ögurstundu.
Eldklárir starfsmenn
Eldvarnabandalagið og slökkvi-
liðið veittu einnig öllu starfsfólki
bæjarins fræðslu um eldvarnir
bæði á vinnustaðnum og heima og
var það liður í innleiðingu eigin eld-
Eigið eldvarnaeftirlit –
okkar hagur, okkar ábyrgð
Eftir Garðar Heimi Guðjónsson
og Regínu Ásvaldsdóttur. » Í þessu felst afger-
andi yfirlýsing um
að bæta eldvarnir hjá
stofnunum bæjarins
og auka þar með ör-
yggi þeirra sem þar
starfa og eiga þangað
erindi.
Garðar Heimir
Guðjónsson
Garðar er verkefnastjóri
Eldvarnabandalagsins. Regína
er bæjarstjóri Akraness.
varnaeftirlits. Við
berum nefnilega öll
ábyrgð á því að eld-
varnir á vinnustaðn-
um séu í lagi og allir
starfsmenn geta
stuðlað að því að svo
sé með árvekni og
ábyrgri umgengni.
Starfsmenn, um
500 talsins, fengu af-
henta handbók Eld-
varnabandalagsins
um eldvarnir heimilis-
ins með hvatningu um
að efla eldvarnir
heimafyrir. Skemmst er frá því að
segja að viðtökur starfsmanna voru
afar ánægjulegar og von okkar er
sú að fræðslan skili sér í öflugri
eldvörnum á vinnustað og ekki síð-
ur á heimilum starfsfólks. Greini-
legt var að fræðslan opnaði augu
margra fyrir mikilvægi eldvarna til
að vernda líf, heilsu og eignir.
Tilraunaverkefni
Innleiðing eigin eldvarnaeftirlits
er liður í samstarfi Akraneskaup-
staðar og Eldvarnabandalagsins
um að auka eldvarnir. Um er að
ræða tilraunaverkefni til eins árs
og verður árangurinn metinn að
þeim tíma liðnum. Það er von okk-
ar og trú að þetta verkefni muni
skila sér í öflugri eldvörnum hjá
stofnunum Akraneskaupstaðar.
Markmið okkar er jafnframt að
unnt verði að draga lærdóm og öðl-
ast reynslu af þessu verkefni sem
getur nýst öðrum í sama tilgangi.
Regína
Ásvaldsdóttir