Morgunblaðið - 08.10.2015, Page 35
Gunnar var sendur að Lamba-
vatni á Rauðasandi þegar hann var
níu ára og var þar í þrjú sumur:
„Sveitadvölin hjá Erlu frænku minni
var góð upplifun og synir hennar,
Eyjólfur og Þorsteinn, eru á mínu
reki. Annars fór tíminn að mestu í
heyskap, mjaltir og önnur sveita-
störf sem voru uppbyggjandi fyrir
ungan dreng úr höfuðstaðnum.
Seinna var ég svo á Eyjólfsstöðum í
Vatnsdal í eitt sumar.“
Gunnar lærði á gítar hjá Eyþóri
Þorlákssyni í tvo vetur.
Gunnar hóf ungur störf hjá Gunn-
ari föður sínum sem var húsasmíða-
meistari á eigin vegum, fyrst við
handlang og tiltektir en var síðan á
námssamningi hjá honum.
Eftir sveinsprófið starfaði Gunnar
hjá föður sínum til tvítugs. Þá opnaði
hann söluturninn Holtagrill og starf-
rækti það til 1997. Hann fór síðan á
eina vertíð í Neskaupstað, var síðan
vert á Skuggabarnum á Hótel Borg,
fyrir Örn Garðarsson, til 2001.
Gunnar hóf þá aftur störf við hús-
byggingar hjá föður sínum, vann þá
við byggingar á Akureyri og víðar og
stofnaði byggingafyrirtækið GG
Verk með föður sínum og bróður ár-
ið 2006, sem þeir hafa starfrækt síð-
an. Nú er fyrirtækið að innleiða Iso-
vottun en hjá því starfa um 60
manns.
Gunnar var mikið í leiklist á
grunnskólaárunum: „Auður Ög-
mundsdóttir kennari var driffjöðrin í
grunnskólaleiklistinni og fékk mikið
út úr okkur strákunum sem settum
upp leikverk og lékum af lífi og sál,
fórum svo í bæinn 17. júní og héldum
þar tónleika við góðar undirtektir.“
Gunnar hefur spilað golf frá 2002
þegar veður leyfir og tími gefst:
„Golfið er mikið áhugamál og hefur
verið það frá 2002 enda reyni ég eft-
ir fremsta megni að komst út á golf-
völl þegar tími gefst frá vinnunni.
Ég hef auk þess stundað stangveiði
töluvert, og fer þá í silungs- og lax-
veiði með góðum félögum þó að nú
sé orðið alltof langt frá síðustu veiði-
ferð.
En auðvitað er mín frábæra fjöl-
skylda númer eitt, tvö og þrjú. Við
ferðumst mikið um landið og förum
a.m.k. einu sinni á ári í nokkra daga
ferð um landið. Þessar sam-
verustundir eru skemmtilegar og
mikilvægur þáttur í uppeldi strák-
anna.“
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 29.8. 2015 Kötlu
Hönnu Steed, f. 30.7. 1980, bókara
og launafulltrúa hjá GG Verk. For-
eldrar Kötlu Hönnu eru Anna Guð-
laugsdóttir, f. 11.9. 1955, bókari hjá
Húsalögnum, og Vincent A.H.
Steed, f. 13.7. 1950, pípulagninga-
maður.
Synir Gunnars og Kötlu Hönnu
eru Gunnar Mikael Gunnarsson, f.
29.11. 2004; Róbert Andri Gunn-
arsson, f. 1.1. 2007, og Breki Hrafn
Gunnarsson, f. 14.4. 2014.
Systkini Gunnars eru Helgi Gunn-
arsson, f. 31.1. 1973, yfirmaður fram-
kvæmda hjá GG Verk, búsettur í
Reykjavík, og Arna Sif Gunnars-
dóttir, f. 4.3. 1988, dansari og starfar
hjá Local, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Gunnars eru Gunnar
Gunnarsson, f. 25.2. 1944, húsa-
smíðameistari, og Gerður Helga
Helgadóttir, f. 1.5. 1948, fyrrv,
starfsmaður RÚV.
Úr frændgarði Gunnars Gunnarssonar
Gunnar
Gunnarsson
Rannveig Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Gísli Þorkelsson
sjóm. og steinsmiður í Rvík
Guðríður Sigrún
Gísladóttir
matráðskona í Rvík
Helgi Hjörleifsson
skósm. Í Rvík
Gerður H. Helgadóttir
starfsm. hjá Rúv í Rvík
Kristín Ingveldur
Þorleifsdóttir
húsfr. í Rvík
Hjörleifur Kristmannsson
skósm. í Rvík
Unnur Helgadóttir
húsfr. í Rvík
Lárus Pálmi Lárusson
rafvirki og verslunarm. í Rvík
Guðfinna Lárusdóttir
húsfr. í Rvík
Gunnar Gunnarsson
húsasmíðam. í Rvík
Gunnar Gunnarsson
húsasmíðam. í Rvík
Ingibjörg Sigurðardóttir
húsfr. á Vegamótum
Gunnar Gunnarsson
járnsm. á Vegamótum á Stokkseyri
Afmælisbarnið Gunnar í vinnunni.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2015
Ragnheiður fæddist 8.10. 1889að Vestri-Garðsauka í Rang-árvallarsýslu. Hún var dótt-
ir hjónanna Jóns, bónda í Vestri-
Garðsauka Árnasonar, bónda þar
Árnasonar, og Sigríðar Skúladóttur
Thorarensen, læknis á Móeiðarhvoli,
sonar Vigfúsar Þórarinssonar sýslu-
manns.
Systkini Ragnheiðar voru Elín, f.
1886, og Skúli, f. 1892.
Ragnheiður flutti með fjölskyldu
sinni til Reykjavíkur 1897. Hún
missti móður sína árið 1905, föður
sinn fimm árum síðar og Elínu, eldri
systur sína árið 1915. Hún giftist
ekki. Skúli, bróðir hennar, sem var
henni mjög náinn, lést 1935.
Ragnheiður hóf nám við Kvenna-
skólann í Reykjavík 1905, síðasta
skólastjóraár frú Þóru Melsted. Hún
lauk þaðan prófum 1907, sigldi til
Kaupmannahafnar 1911, stundaði
nám við Statens Lærerhöjskole í tvö
ár, varð síðan stundakennari að
Kvennaskólanum og rak auk þess
smábarnaskóla um skeið á neðri hæð
heimilis síns við Hringbraut.
Frú Ingibjörg H. Bjarnason, sem
tók við stjórn Kvennaskólans af
Þóru Melsted, hafði tekið Ragnheiði
undir sinn verndarvæng eftir að hún
missti móður sína. Ragnheiður tók
síðan við stjórn skólans haustið 1941
og var þar skólastýra til 1959 er
Guðrún P. Helgadóttir tók við.
Ragnheiður þótti fremur strangur
skólastjóri og taldi það hlutverk
skólans að ala stúlkur upp í háttvísi
og kvenlegum dyggðum, ekki síður
en mennta þær. Hún vildi að skólinn
veitti stúlkum alhliða menntun með
hliðsjón af nýjum tímum, vildi leggja
meiri áherslu á enskunám á kostnað
dönskukennslu, lagði mikið upp úr
íslenskukennslu og átti þann draum
að skólinn yrði „lærður skóli“ í anda
Mennntaskólans.
Í tíð Ragnheiðar varð Kvenna-
skólinn ríkisskóli en hafði áður verið
starfræktur með skólastyrkjum og
skólagjöldum.
Ragnheiður erfði foreldra sína og
systkini, varð sterkefnuð og stofnaði
sjóð til að veita ungum stúlkum sem
sköruðu fram úr í námi, styrk til
náms í Háskóla Íslands.
Ragnheiður lést 7.5. 1977.
Merkir Íslendingar
Ragnheiður
Jónsdóttir
95 ára
Hörður Þorsteinsson
90 ára
Guðrún Sigbjörnsdóttir
85 ára
Hans Adolf Linnet
Hörður Reynir Jónsson
75 ára
Guðrún Sigurjónsdóttir
Sigurbjörg Ísaksdóttir
Tryggvi Eymundsson
70 ára
Árni V. Sigurðsson
Erna Hannesdóttir
Georg Róbert Douglas
Guðný Rut Sigurðardóttir
Hafsteinn Tómasson
Halla Hallgrímsdóttir
Jón B. Jónasson
Sigrún Þormóðsdóttir
60 ára
Guðmunda Vigfúsdóttir
Hulda María
Þorbjörnsdóttir
Jónanna Guðrún
Björnsdóttir
Jónas Garðarsson
Kristín Hjörleifsdóttir
Malgorzata Antonina
Kaliszewska
Ragnhildur Ragnarsdóttir
50 ára
Björgvin Ólafur
Gunnarsson
Eiríkur Jón Wathne
Elvar Þór Sigurjónsson
Guðmundur Geirmundsson
Helga Hrönn Melsteð
Ingibjörg Kjartansdóttir
Skúli Örn Andrésson
Valur Bogason
Þórður Þórðarson
40 ára
Anna Guðný Friðleifsdóttir
Ari Már Heimisson
Arna Ásgeirsdóttir
Gísli Geir Gylfason
Hörður Steinar
Sigurjónsson
Jóhann Lárus Baldursson
Marzena Grazyna Baginska
Óskar Ögri Birgisson
Sigrún María Bjarnadóttir
Silla Þóra Kristjánsdóttir
Stela Nachkova Spirova
30 ára
Andrea Eiðsdóttir
Andreea-Ancuta Mera
Anna Tómasdóttir
Davíð Sigurðarson
Emilia Jaworska
Ívar Örn Heimisson
Joel Castellano Estrada
Jóhanna Hildur Jónsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Helgi ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
BS-prófi í iðnaðarverk-
fræði frá HÍ og er leik-
stjóri hjá Saga Film.
Maki: Sigríður Hrefna
Jónsdóttir, f. 1989, nemi í
umhverfis- og byggingar-
verkfræði við HÍ.
Foreldrar: Jóhann
Guðnason, f. 1952, þýð-
andi, og Rósa Hrund Guð-
mundsdóttir, f. 1954,
fiðluleikari við Sinfón-
íuhljómsveit Íslands.
Helgi
Jóhannsson
30 ára Hanna Steina býr
á Akureyri, lauk lögfræði-
prófi frá Bifröst og starfar
hjá Símanum.
Maki: Ingimundur Ingi-
mundarson, f. 1980,
handboltaþjálfari.
Dóttir: Thelma Briet, f.
2013. Stjúpdóttir: Elísabet
Sonja, f. 1996.
Foreldrar: Heiða Jóna
Hauksdóttir, f. 1964, bók-
ari hjá Eimskip, og Arnar
Stefánsson, f. 1963,
starfsmaður hjá Garra.
Hanna Steina
Arnarsdóttir
30 ára Guðmundur ólst
upp í Vestmannaeyjum,
býr í Reykjavík og stundar
nám í rafmagnstækni-
fræði við HR.
Maki: Irena Georgsdóttir,
f. 1987, MS í markaðs-
fræði og alþjóða-
viðskiptum frá HÍ.
Foreldrar: Valborg Elín
Kjartansdóttir, f. 1967,
hárgreiðslukona í Reykja-
vík, og Jón Trausti Har-
aldsson, f. 1961, d. 2010,
vélvirki.
Guðmundur H.
Jónsson
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Þér er í lófa lagið að taka upp
Hjá okkur færðu faglega þjónustu,
byggða á þekkingu og áratuga reynslu.