Barnablaðið

Main publication:

Barnablaðið - 25.10.2015, Síða 4

Barnablaðið - 25.10.2015, Síða 4
BARNABLAÐIÐ4 LÆRÐU AÐ BÚA TIL HEIMASÍÐU Evrópska forritunarvikan (EU CodeWeek) var haldin dagana um allan heim 10.-18. október. Milljónir barna, foreldra, kennara, frumkvöðla og stefnumarkandi aðila í Evrópu sameinast á viðburðum og námskeiðum gagngert til að læra forritun og til að auka hæfileika sína. Markmið vikunnar er að gera forritun meira sýnilega, svipta hulunni af hæfi- leikunum og stefna áhugasömum saman í lærdómi helguðum tækninni. Barnablaðið hitti nokkra skemmtilega krakka á alþjóða- deild Landakotsskóla sem tóku þátt. Hvað heitið þið og hvað eruð þið gömul? Zoë Anaïs Perrotet Shreve og ég er 9 ára. Emilía Árnadóttir, 8 ára. Ian Kristófer Valdimarsson, 10 ára. Svava Kristín Valfells og ég er 10 ára. Hvernig tókuð þið þátt í forritunarvikunni? Zoë: Við vorum á forritunarnámskeiði í skólan- um okkar Landakotsskóla og vorum að læra að gera heimasíðu. Ian: Við semsagt vorum að útbúa fréttabréf nemenda á alþjóðadeild. Emilía: Við vorum líka að fræðast almennt um tölvur. Zoë: Það er hægt að finna afraksturinn heima- síðunni www.landakotsskoli.is. Smella á nem- endur og velja IS Newsletter. Svava: Svo skrifaði hver hópur um eitthvað skemmtilegt. Við skrifuðum um verkefni sem við höfum gert hér í skólanum. Við ættleiddum górillu. Svo fórum við líka í heimsókn í CCP. Zoë: Við sáum myndina Fantastic Mr. Fox og skrifuðum um hana gagnrýni. Emilía: Við skrifuðum líka fróðleik um vöðva líkamans og góð ráð um heilsuna. Það er t.d. gott að borða fisk, hnetusmjör, egg og kjöt. Gott að vera í sólinni og vera í leikfimi. Segið okkur aðeins meira frá ættleiddu górillunum. Svava: Bekkurinn okkar var að lesa bók um górillu sem átti heima í litlu herbergi í verslun- armiðstöð í yfir 27 ár. Þetta var sko alvöru saga. Okkur fannst þetta svo leiðinlegt að við héldum bíókvöld hérna í skólanum. Seldum miða, popp og nammi og söfnuðum peningum. Við eigum núna þrjár górillur sem eru í Afríku og fáum alltaf bréf frá þeim sem sjá um þær. Fáum líka sendar myndir. Og einhverjir skrifuðu um lego, ekki satt? Ian: Jú, ég skrifaði um lego. Við vorum að forrita vélmenni. Eftir skóla á miðvikudögum þá hittist legoklúbbur í skólanum. Þá búum við til vél- menni. Svo er keppni út um allan heim. Vél- mennið þarf að geta gert ákveðna hluti og leyst verkefni. Vélmennin eiga að geta gert eitthvað sem hefur með endurvinnslu að gera. Var gaman að taka þátt í forritunarvikunni? Emilía: Já, mjög gaman. Það tóku allir þátt sem eru í alþjóðlegu deildinni. Við vorum rúmlega 20 krakkar. Hvað voruð þið að forrita? Zoë: Lærðum hvernig á að gera heimasíðu og lærðum á tölvu almennt. Emilía: Við fengum kennslu í forritunarmáli. Og lærðum mikið um allskonar hluti eins og ísskáp og önnur tæki sem eru öll forrituð. Ian: Lærðum að setja heimasíðu í loftið. Svava: Við lærðum líka á ýmis tákn í forrituninni. Hafið þið forritað eitthvað áður? Emilía: Ég og pabbi höfum gert leik í Alis, sem er forrit. Áhugasamir nemendur. IAN SVAVA ZOË EMILÍA

x

Barnablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/1075

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.