Barnablaðið

Main publication:

Barnablaðið - 25.10.2015, Page 5

Barnablaðið - 25.10.2015, Page 5
BARNABLAÐIÐ 5 M yn di r: Eg ge rt Zoë: Já, ég hef líka aðeins verið í Alis. Svava: Ég er frá London og nýflutt til Íslands. Þannig að þegar ég átti heima úti þá vorum við að læra á tölvur og bjuggum til leiki í sérstöku forriti og appi. Ian: Ég hef ekkert gert áður en er að læra. Hvað er forritun? Emilía: Já, sko, maður er að búa til eitthvað nýtt í tölvum. Láta eitthvað að virka. Svava: Snýst um að láta tölvur og rafmagns- tæki virka eftir ákveðnum formúlum. Hvað mynduð þið vilja helst vilja forrita? Emilía: Ég hef mikinn áhuga á að búa til einhverskonar geimleik. Svava: Við fórum í heimsókn til CCP og þar var ýmislegt fróðlegt. Ian: Mig langaði til að prófa leikinn Eve Online, en fékk það ekki. Allavega ekki í þetta skiptið. Notið þið tölvur mikið? Zoë: Já, ég nota oft tölvur. Ég fer í leiki, skoða myndir og myndbönd. Emilía: Ég nota oft spjaldtölvu heima. Les heimavinnuna mína í henni. Fer líka í leiki. Ian: Ég fer mikið í tölvuleiki og nota tölvur við heimavinnuna. Svava: Ég horfi stundum á bíómyndir í gegnum tölvuna um helgar. Bý stundum til leiki eða myndbönd. Svo fletti ég stundum upp orðum í orðabók. Svo nota ég líka dáldið Skype til að spjalla í gegnum. Hvernig virkar alþjóðadeildin í skólanum? Emilía: Það er t.d. mestallt kennt á ensku. Zoë: Líka kennd franska og íslenska. Svava: Námið er aðeins erfiðara hjá okkur. Svipað og í Bandaríkjunum. Emilía: Ég var fyrst á íslensku deildinni en fór svo á alþjóðadeild. Zoë: Ég var líka fyrst í íslenskum skóla en svo heyrði ég frá vini mínum að hann væri í alþjóða- deild. Þá fór ég líka og líkar mjög vel. Pabbi minn er frá Ameríku og mamma frá Frakklandi. Emilía: Foreldrar mínir eru íslenskir. Amma og afi fara alltaf tvisvar á ári til Ameríku og ég fer oft með. Ian: Ég er hálfur Ameríkani. Mamma mín er frá Amerík en pabbi minn frá Íslandi Ég hef verið tvö ár úti og átta ár á Íslandi. Svava: Ég hef alltaf átt heima í London. Fyrir rúmlega ári flutti ég til Íslands. Mamma og pabbi eru alin upp í Ameríku og pabbi er hálfíslenskur. Kunnið þið mörg tungumál? Zoë: Já, allavega frönsku, ensku og íslensku. Emilía: Íslensku og ensku. Kann pínu líka í spænsku, dönsku, frönsku og þýsku. Ian: Ensku, íslensku og smá spænsku og frönsku. Svava: Íslensku og ensku og smá spænsku og eitthvað í frönsku líka. Hvernig gengur að aðlagast Íslandi? Zoë: Stundum er dáldið erfitt að útskýra eða skilja. Sérstaklega þegar við erum í leikjum. Emilía: Hjá mér er þetta ekkert mál enda er ég alíslensk en sumir halda hinsvegar að ég sé ensk. Ian: Ég er búinn að eignast 12 vini og engin vandamál. Skil ekki alveg allt en flest. Svava: Ég kunni ekki mikla íslensku þegar ég flutti til Íslands og var stundum strítt. Ég fór svo í íslenskuskóla og hef lært mjög mikið. Hvað finnst ykkur skemmtilegast í skólanum? Zoë: Að vera með vinum mínum. Emilía: Vísindi, stærðfræði og frímínútur. Svo er búið að vera mjög gaman í forritunarvikunni. Ian: Forritunarvikan er skemmtileg. Frímínútur, íþróttir, og legonámskeiðið. Svava: Stærðfræði, tungumálin og smíði. Eruð þið eitthvað á samfélagsmiðlum? Emilía: Ég og mamma erum með sameiginlegan aðgang á Facebook. Zoë: Ég er á Facebook. Ian: Já, Facebook. Svava: Ekki á Facebook en er á Instagram. Gaman að geta deilt myndum með frændsyst- kinum mínum. Finnst ykkur eitthvað öðruvísi við Ísland en önnur lönd? Zoë: Á Íslandi er mjög kalt og mjög skrýtið að jólasveinarnir eru 13. Emilía: Það er heitara í útlönd- um. Líka skrýtið að heyra önnur tungumál og hér er öðruvísi fólk. Ian: Tungumálið öðruvísi. Allir sterkari á Íslandi og betur á sig komnir líkamlega en í Bandaríkjun- um. Öðruvísi fáni. Svava: Það er ekki svo margt fólk á Íslandi og hér er mikið borðað af fiski á Íslandi. Svo þegar eitthvað nýtt kemur til Íslands t.d. Dunkin’ Donuts þá verða allir kreisí nema við. Á Íslandi er maður líka frjálsari og öruggari hér en í miðbæ stórborgar. Hver eru ykkar helstu áhugamál? Zoë: Að vera með vinum mínum, teikna og leika. Emilía: Ég er að æfa aikido sem er bardaga- list og dans. Ég er líka í ballett og spila á fiðlu. Ian: Ég er að æfa fótbolta með KR og handbolta með Val. Svava: Ég æfi fótbolta hjá Gróttu og æfi dans og karate. Svo finnst mér gaman í leiklist. Hvað ætlið þið að verða þegar þið verðið stór? Zoë: Mig langar að vinna með dýrum. Emilía: Mig langar kannski að verða flugfreyja, kokkur, vísindakona eða vinna við eitthvað tengt tísku. Ian: Atvinnumaður í fótbolta. Svava: Vísindakona eða vinna hjá t.d. CCP eða einhverju tölvufyrirtæki. Væri líka gaman að vera leikkona. „Við semsagt vorum að útbú a fréttabréf nem - enda á alþjóð a- deild.“ „Við eigum núnaþrjár górillur semeru í Afríku og fáumalltaf bréf frá þeimsem sjá um þær.Fáum líka sendar myndir.“ u . Alþjóðlegir og duglir krakkar. Nemendur á alþjóðadeild Landakotsskóla tóku þátt í forritunarviku.

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/1075

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.