Morgunblaðið - 27.10.2015, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 27.10.2015, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2015 Dagný Brynj-arsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, leikur fyrir Port- land Thorns FC á næstu leiktíð í bandarísku at- vinnumanna- deildinni í knatt- spyrnu. Portland Thorns FC hafnaði í sjöunda sæti í deildinni á síðasta keppnistímabili.    Svisslendingurinn Gianni Infant-ino, framkvæmdastjóri Knatt- spyrnusambands Evrópu, sækist eftir kjöri til forseta Alþjóðaknatt- spyrnusambandsins, FIFA. Svisslendingurinn Sepp Blatter, sem reyndar er í 90 daga banni frá störfum, mun endanlega hætta sem forseti FIFA í febrúar á næsta ári, þegar kosið verður um nýjan for- seta.    Auk Infantinohefur Michel Platini, formaður knattspyrnu- sambands Evr- ópu, sóst eftir kjöri til forseta FIFA. Platini hef- ur ekki skipt um skoðun þó að hann sé, líkt og Blatter, í 90 daga banni frá störfum vegna rannsóknar á 270 milljóna króna greiðslu sem Platini fékk í gegnum Blatter árið 2011. Þeir Blatter og Platini lýsa yfir sak- leysi og vilja meina að greiðslan hafi verið fyrir störf sem Platini hafði unnið fyrir FIFA níu árum fyrr.    Ítalinn Fabio Cannavaro hefurverið ráðinn þjálfari Al Nassr, meistaraliðsins í Sádi-Arabíu. Samn- ingur þessa fyrrverandi landsliðs- fyrirliða Ítala gildir út tímabilið en hann var áður þjálfari Guangzhou Evergrande í Kína. Cannavaro leys- ir Jorge da Silva af hólmi en hann var látinn taka poka sinn í síðustu viku vegna slaks gengis liðsins. Al Nassr er í sjöunda sæti deildarinnar með fimm stig.    Þýska knatt-spyrnuliðið Hoffenheim, sem Gylfi Þór Sigurðs- son lék með fyrir nokkrum árum, rak í gær þjálf- arann Markus Gis- dol úr starfi en lið- inu hefur vegnað illa á tímabilinu undir hans stjórn. Hoffenheim tapaði um nýliðnu helgi fyrir Hamburg og það reyndist síð- asti leikurinn sem Gisdol stjórnar liðinu en hann hefur verið þjálfari þess frá árinu 2013. Hoffenheim, sem er í næstneðsta sæti deild- arinnar með aðeins sex stig eftir 10 leiki, er þegar búið að ráða nýjan þjálfara en það er Hollendingurinn Huub Stevens sem hefur þjálfað meðal annars lið Schalke, Hertha Berlín, Hamburg og Stuttgart í þýsku deildinni en hann hætti með Stuttgart eftir síðustu leiktíð.    Landsliðsmað-urinn Jóhann Berg Guðmunds- son hefur fengið nýjan knatt- spyrnustjóra hjá liði sínu Charlton Athletic. Belginn Karel Fraeye hef- ur verið ráðinn stjóri Charlton Athletic og mun hann stýra liðinu út tímabilið. Charlton hefur ekki unnið leik síðan 22. ágúst og situr í fallsæti ensku B-deildarinnar eins og sakir standa. Síðastliðna helgi brast þol- inmæði stjórnar félagsins og knatt- spyrnustjórinn Guy Luzon var lát- inn taka pokann sinn. Fólk sport@mbl.is SÚ BESTA Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Hún er hjartað í liðinu okkar og mik- ilvægasti leikmaðurinn,“ sagði Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, landsliðs- kona og línumaður Gróttu, um liðs- félaga sinn, markvörðinn Íris Björk Símonardóttur. Íris er leikmaður 7. umferðar eftir frábæra frammistöðu í sigri Íslands-, deildar- og bikarmeist- ara Gróttu á Val um helgina, í Ol- ísdeildinni í handbolta. „Hún er fáránlega stöðug sem markmaður, les vörnina mjög vel og vinnur líka heimavinnuna sína svaka- lega vel. Hún horfir á vídeó, og er búin að spila lengi í þessari deild svo hún hefur lært vel á ýmsa leikmenn. Reynslan hjálpar henni mikið. Hún er líka ótrúlega fyndinn karakter sem gefur mikið af sér,“ sagði Anna, og bætir við: „Hún er svolítill „jóli“. Hún veit ekkert alltaf hvenær æfingarnar eru, og uppgötvaði það til dæmis bara núna um daginn að „mæting- arpeysan“ okkar væri peysa sem við ættum að mæta í, en ekki bara til að klæðast af og til. Hún er svolítið úti að aka, en það er allt í lagi,“ sagði Anna létt. „En hvað varðar að spila handbolt- ann er hún með allt á hreinu. Hún er svolítið eins og ég, ekki alltaf með það á hreinu við hvaða lið við erum að fara að mæta næst, en um leið og flautað er til leiks er hún 170% klár. Hún gef- ur líka mikla orku frá sér til liðsins. Ef hún er vel einbeitt og líður vel þá smitar hún því frá sér, þó að hún átti sig kannski ekki alveg á því sjálf,“ bætti Anna við. Leitt að hún hafi sagt skilið við landsliðið Íris er uppalin í Gróttu og hefur lengst af leikið með liðinu, utan tveggja ára í Fram. Þá var hún í Sví- þjóð í tvö ár 2011-2013, en spilaði lít- inn handbolta því hún ól þar barn. Íris hefur leikið 67 A-landsleiki en ákvað að hætta að leika fyrir liðið sumarið 2014. Þeirri ákvörðun myndu margir vilja snúa: „Það vita það allir að hún yrði alltaf í landsliðinu ef hún vildi það. Ég þekki ekki hennar ástæður en stundum vill maður bara breyta til, og það að vera í landsliðinu er meiri skuldbinding en margir átta sig á. Á alþjóðlegan mæli- kvarða er Íris mjög góður markvörð- ur og það er leiðinlegt fyrir okkur í landsliðinu, eftir mikla endurnýjun fyrir 2-3 árum, að hún skuli líka hafa ákveðið að taka ekki slaginn. Hún ætti sæti þarna ef hún gæfi sjálf leyfi,“ sagði Anna. Handbolti: Best í 7. umferð Íris Björk er hjartað í okkar liði  Markvörður meistara Gróttu er líka svolítill jólasveinn, segir Anna Úrsúla Morgunblaðið/Eva Björk Frábær Íris Björk Símonardóttir, markvörður Íslands- og bikarmeistara Gróttu, átti frábæran leik á milli stanganna í sigrinum gegn Val. SÁ BESTI Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is „Hann er búinn að vera ofsalega góður í þessum fyrstu þremur leikj- um okkar og ég myndi segja að það væri honum að þakka að við erum búnir að vinna þá alla.“ Þetta sagði Magnús Þór Gunnarsson, leikmaður Keflvíkinga, við Morgunblaðið þegar hann var beðinn um álit á liðsfélaga sínum, bakverðinum Vali Orri Vals- syni, sem er leikmaður 3. umferðar í Dominos-deildinni. Valur Orri átti mjög góðan leik í sigri Keflvíkinga gegn erkifjendunum í Njarðvík í Ljónagryfjunni á dögunum en Valur Orri, sem er 21 árs gamall, skoraði 16 stig og átti 5 stoðsendingar í leiknum. Lyfta lóðum eins og brjálæðingur „Valur Orri hefur skorað mik- ilvægar körfur fyrir okkur og hann hefur stjórnað leik okkar eins og herforingi. Hann er búinn að lyfta lóðum eins og brjálæðingur og æfði gríðarlega vel í sumar og þetta er svo sannarlega að skila góðu fyrir hann. Ég held að hann ætli sér að fara út fyrir landsteinana eftir þetta tímabil og ég held að hann vilji sýna og sanna fyrir sjálfum sér og öllum öðrum að hann sé nógu góður til þess. Hann er á góðri leið með þetta. Hann hefur alla burði til þess að komast út í atvinnumennsku og ég tel hann ekki mikið lakari leikmenn heldur en Martin og Elvar,“ segir Magnús. „Það er virkilega gott að spila með Vali Orra. Hann er rosalega klár leikmaður og það er mjög gott að spila með leikmanni sem kann leik- inn svona vel. Hann hefur gott auga fyrir spili, gefur flottar sendingar, er fínn skotmaður og les leikinn vel. Þessi strákur er búinn að spila í úr- valsdeildinni í sjö ár og hann er með þetta allt eins og maður segir.“ Valur Orri hefur ekki langt að sækja hæfileikana en karl faðir hans, Valur Ingimundarson, gerði garðinn frægan á árum áður. „Þeir eru ólíkir leikmenn. Valur eldri var mikill skorari en Valur Orri getur líkað skorað mikið en ég held að honum finnist skemmtilega að gefa boltann. Hann er meira alhliða leikmaður heldur en gamli karlinn,“ sagði Magnús Þór Gunnarsson. Körfubolti: Bestur í 3. umferð Þakka honum sigrana þrjá  Valur Orri Valsson, Keflavík Morgunblaðið/Golli Góður Valur Orri Valsson hefur byrjað tímabilið afar vel með Keflvíkingum sem hafa unnið alla þrjá leiki sína í Dominos-deildinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.