Víkurfréttir - 06.02.1986, Blaðsíða 11
10 Fimmtudagur 6. febrúar 1986
VÍKUR-fréttir
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 6. febrúar 1986 11
„Mikil áhersla lögð á hópvinnu“
-segir Brynjar Halldórsson, leiðbeinandi og
umsjónarmaður reykinganámskeiðsins
„Viljinn skiptir öllu máli í
þessu og við Arnbjörn Olafs-
sin, læknir, erum að hjálpa
þessu fólki að byggja upp
sterkt áform, sem það setur
sér í byrjun", sagði Brynjar
Halldórsson, sem er umsjón-
armaður reykinganámskeiðs-
ins.
Ahersla lögð á
hópvinnu
,,Það er lögð mikil
áhersla á hópvinnu, mikið
byggt upp á því að einstakl-
ingarnir hjálpi hver öðrum,
því allir í hópnum eru að
reyna aðhætta. Þaðferm.a.
þannig fram, að þátttak-
endur hringja í hvern ann-
an, svo hittast allir á
kvöldin og ræða saman
hvernig gangi o.s.frv. Þeg-
ar námskeiðinu lýkur er svo
endurfundur viku seinna,
sem er til styrkingar, svona
visst aðhald. Þaðeraðsjálf-
sögðu misjafnt hvernig
fólki gengur. Svoerjafnvel
haldinn enn annar fundur
eftir mánuð“.
Hvernig var þátttakan og
hvernig gengur fólki?
„Fyrsta kvöldið af fimm
sem námskeiðið stendur
yfir, mættu 30 manns. 26
héldu út allan tímann.
Þetta er mjög samstæður og
góður hópur og ánægjulegt
að starfa með fólkinu“.
Ein milljón á ári
„Við könnuðum í byrjun
hve mikið þessir 30 ein-
staklingar reyktu og kom í
ljós að sameiginlegur reyk-
ingatími þeirra var 626 ár.
Að meðaltali því 20,8 ár á
mann. Síðan bárum við
saman hve margar sígarett-
ur hópurinn reykti. Það
voru alls 745 á dag, samtals
271.925 sígarettur á ári.
Það kostar þennan hóp
2.980 krónur á dag og
hvorki meira né mmna en
eina milljón áttatíu og sjö-
þúsund og sjöhundruð á ári
(1.087.700).
Það gefur auga leið, að
það er til margs að vinna;
heilsufarið, peningasparn-
aður og svo félagslega hlið-
in; það er skemmtilegra að
umgangast fólk sem ekki
reykir".
Ekki lengur fínt
„Einn stór þáttur í þessu
er það, að enginn þarf
lengur að skammast sín
fyrir að hætta að reykja.
Hvað þetta varðar hefur
hugarfar fólks snúist við á
undanförnum árum, það
þykir ekki lengur fínt að
reykja. Þetta viðkvæði, -
mótlæti, hefur oft viljað
koma upp í félagahóp, en er
þó á undanhaldi í dag og fer
minnkandi", sagði Brynjar.
Auk leiðsagnar Brynjars
sér læknir um mikilvægan
fræðsluþátt á námskeiðinu,
og er hanp í höndum Arn-
björns Olafssonar. Fer
fræðslan fram í formi fyrir-
lestra og auk þess sem kvik-
mypdir eru sýndar.
Aform er um að halda
annað námskeið í mars-
apríl n.k.
Brynjar Halldórsson og Arnbjörn Ólafsson halda hér á ónýtu lunga og hjarta.
Ertu
ti
a
leið
útlanda -
Útvegsbankinn hefur
að baki áratuga reynslu
i gjaldeyrismálum og
býður upp á 5 gerðir
af ferðatékkum. Auk
þess tékka i öllum
gjaldmiðlum.
Allt afgreitt á meðan
þér biðið, - að sjálfsögðú
Útvegsbankinn býður
eftirtalda gjaldmiðla i
ferðatékkum:
bandaríkjadali
steríingspund
V-þýsk mörk
peseta
hollenskar flórínur (nýtt)
Aðrir gjaldmiðlar afgreiddir í tékkum.
ÚTVEGSBANKINN
EINN BANKI • ÖLL WÓNUSTA
Hafnargötu 60 - Simi 1199
Keflavik
„Reykingar á undanhaldi“
r
- segir Arnbjörn Olafsson, læknir
„Á námskeiðinu hef ég
skýrt frá hættunum sem
reykingar valda og hvaða
sjúkdómum þær valda;
áhættunni við að reykja“,
sagði Arnbjörn Olafsson,
læknir, aðspurður um hans
hlutverk á námskeiðinu.
„Fólk er farið að gera sér
grein fyrir því hvað þetta er
hættulegt. Það verður að
skynja það að það leggur
ekki aðeins sjálft sig í
hættu, heldur og komandi
kynslóðir. Reykingar eru
ekki einungis vandamál
einstaklingsins, þetta er
þjóðfélagsvandamál. Þetta
kemur fram í ýmsum
myndum; aukinn sjúkra-
kostnaður, fækkun vinnu-
stunda og margt fleira".
Útbreitt og alvarlegt
vandamál
„Reykingavandamálið er
mjög útbreitt og alvarlegt.
Þess vegna hafa ýmis félög
verið með sterkan áróður
gegn reykingum og auglýs-
ingaherferðir, - í ljósi þess
hve þær valda miklu böli.
Það er mjög nauðsynlegt að
skapa almenningsálit á
móti reykingum“.
Á undanhaldi
„Þessi áróður er farinn
að skila sér“, segir Arn-
björn, „og reykingar eru nú
á undanhaldi. Síðustu laga-
setningar hvað varðar reyk-
ingar á almenningsstöðum
gefa einnig línuna í þeim
efnum“
Athafnamenn
Nú ertíminn til að hugaaðbókhaldinu. Get
bætt við mig litlu eða meðalstóru fyrirtæki.
Tölvufærsla. Hafið samband í síma 2598
eða 91-44551 eftir kl. 16.
AÐ HÆTTA
AÐ REYKJA
Að hætta að reykja reynist mörgum um megn. Þó er
alltaf einn og einn sem hættir af sjálfsdáðun og án
nokkurrar aðstoðar.
Fimm daga námskeið til þess að hætta að reykja, var
haldið dagana 26.-30. jan. í Safnaðarheimili Aðvent-
r
ista í Keflavík. Fyrir því stóðu Islenska bindindisfé-
lagið, Krabbameinsfélag Suðurnesja, í samráði við
Sjöunda dags Aðventista. Leiðbeinendur voru þeir
Brynjar Halldórsson og Arnbjörn Olafsson, læknir.
Blaðamaður Víkur-frétta leit inn á síðasta kvöld
námskeiðsins sl. fimmtudag, og ræddi við umsjónar-
Afgreiðsla Víkur-frétta er flutt
að Vallargötu 14, II. hæð, Keflavík
Heilsan var farin að segja til sín
- segir Elva Björk Valdimarsdóttir,
sem hefur reykt í 21 ár
„Ég er búin að reykja
pakka á dag í 21 ár og í
mörg ár hef ég hugsað
um að hætta, en ekki
látið verða af því fyrr en
nú“, sagði Elva Björk
Valdimarsdóttir, búsett
í Njarðvíkum, en hún er
ein af þátttakendunum á
námskeiðinu.
,,Maðurinn minn
hætti fyrir ári síðan og
börnin þrýstu á mig að
hætta. Nú, og svo var
heilsan farin að segja til
sín. Ég fann verulega
fyrir því er ég fór að
sækja Bláfjöllin. Þá
viðurkenndi ég fyrir
sjálfri mér að reykingar í
21 ár voru farnar að
segja til sín“.
Hvenær hættirðu og
hvernig gengur baráttan?
„Daginn fyrir nám-
skeiðið reykti ég mína
síðustu sígarettu, laug-
ardaginn 25. jan., og hef
því ekki reykt núna í 6
daga. Ég er ákveðin í að
hætta og mér gengur
mjög vel. Ég hef notað
þessar aðferðir sem þeir
kenna á þessu námskeiði
og það er hreint ótrúlegt
hvað þetta hefur mikil
áhrif á mann“.
Hvað með fjölskyld-
una, hvetur hún þig
áfram?
„Já, maðurinn minn
og börnin hvetja mig og
það hefur líka mikið að
segja“.
Hefurðu ákveðið að
•eg&Ía þessa peninga
fyrir sem færu í pakka á
dag?
„Þetta eru 2.980 krón-
ur sem ég spara mér á
mánuði og ég ætla að
leggja það fyrir. Þetta
eru orðnar stórar tölur
og verður því góður
sparnaður“, sagði Elva
Björk Valdimarsdóttir.
Spurningakeppni skólabarna
Á vegum umferðarráðs
og lögreglunnar var efnt til
spurningakeppni skóla-
barna á aldrinum 6 til 12
ára.
Spurningakeppni þessi
er orðinn árlegur viðburð-
ur og nefnist „I jólaumferð-
inni“.
20. des. sl. var dregið úr
réttum lausnum, sem borist
höfðu lögreglunni, og var
vinningum síðan ekið heim
til vinningshafa eftir há-
degi á aðfangadag. Bornir
voru út 98 vinningar, en
gefendur að þeim voru
Kiwanisklúbburinn Keilir,
Keflavík; Kiwanisklúbbur-
inn Hof, Garði; Lions-
klúbbur Grindavíkur,
Lionsklúbbur Njarðvíkur,
Lionsklúbbur Sandgerðis
og Lionsklúbburinn Keilir,
Vogum, Vatnsleysuströnd.
Eftirtaldir aðilar hlutu
vinninga að þessu sinni:
KEFLAVÍK:
Ástrún Viðarsdóttir, Rósa Guð-
mundsdóttir, Ari Elíasson, Viðar Guð-
mundsson, Anna María Sigurðardóttir,
Jónas Dagur Jónasson, Sævar Ingi
Borgarsson, Björg Alexandersdóttir,
Svava Sólbjörk Agústsdóttir, Adolf
Sveinsson, Styrmir Magnússon, Agnes
Jónsdóttir, Sigurrós Alice Jóhanns-
dóttir, Daníel Adam Sigmundsson,
Gunnar Sigurðsson, Ingibjörg Sig-
björnsdóttir, Kolbrún Ottósdóttir,
Gunnar G. Geirmundsson, Sigurjón
Elíasson, Elínrós Bjarnadóttir, Guð-
rún Halldórsdóttir, Halldór Halldórs-
son, Reynar Davíð Ottósson, Ásdís
Guðgeirsdóttir, Birgitta Ósk Hilmars-
dóttir, Jón Gunnar Kristinsson, Júlíus
Karlsson.
GARÐUR:
Helga Steinunn Einvarðsdóttir, Óli
Pétur Pedersen, Guðrún Kristinsdóttir,
Helgi Már Sigurgeirsson, Brynja
Magnúsdóttir, Helgi Guðmundsson,
Ásdís Brá Hrólfsdóttir, Sigurður Ingi
Kristofersson, Berglind Salka Ólafs-
dóttir, Örlygur Örn Örlygsson, Hafdís
Jónsdóttir, Ólafur Einar Hrólfsson,
Áuður Eyberg Helgadóttir, Ragnar
Helgi Ingvarsson.
GRINDAVÍK:
Guðný Rut Bragadóttir, Óskar
Freyr Guðlaugsson, Sigríður Kjartans-
dóttir, Ómar Davið Olafsson, Rakel
Einarsdóttir, Sigurður Jónsson, Ástrún
Jónasdóttir, Ingólfur R. Ingólfsson,
Aðalheiður Valsdóttir, Guðmundur
Vignir Helgason, Sigurrós Óskarsdótt-
ir, Hilmar Þór Helgason, Guðbjörg
HAFNIR:
Sigurbergur S. Jóhannsson.
NJARÐVÍK:
Birna Rúnarsdóttir, Lilja Valþórsdótt-
ir, Magnús Fr. Ragnarsson, Sigurbjörg
S,M. Gunnarsdóttir, Ragnar Kristján
Skúlason, Snjólaug María Guðjóns-
dóttir, Magnús Kristinsson, María
Ólöf Sigurðardóttir, Bergþór Heimir
Hólmarsson, Edda Svandís Einars-
dóttir, Guðni Erlendsson, Ólöf Svans-
dóttir, Arnar Már Elíasson.
SANDGERÐI:
Antonsson, Heiða Rafnsdóttir, Róbert
Ólafur Sigurðsson, Bergný Jóna Sæv-
arsdóttir, Björgvin Guðjónsson, Guð-
rún Erla Gunnlaugsdóttir, Aðalsteinn
Hallbjörnsson, Lilja Stefánsdóttir,
Einar Valgeirsson, Ellen D. Elíasdóttir,
Benóný Benónýsson, Guðlaug
Stefanía Gunnarsdóttir, Atli Þór
Karlsson.
VOGAR:
Jóhanna Kristmannsdóttir, Kristján
G. Leifsson, Anna Margrét Þorbjarn-
ardóttir, Róbert Andersen, Margrét
Salóme, Rúnar Þór Ólason, Harpa Rós
Jóhannsdóttir, Pálmi Þór Erlingsson,
Guðríður Kr. Þórðardóttir, Guðfinnur
Karlsson, Guðný Leifsdóttir, Sigurður
Rúnar Arnarson, Þorbjörg Ásta Þor-
bjarnardóttir, Þorsteinn Ágústsson.
Eins og áður hefur komið
fram er þetta spurninga-
keppni 6 til 12 ára barna og
bárust til okkar mikill
fjöldi af réttum getrauna-
seðlum.
Viljum við þakka þeim
öllum fyrir þátttökuna í
keppninni.
Einnig viljum við koma á
framfæri þakklæti til þeirra
sem gáfu verðlaun í keppn-
ina.
Lögreglan í Keflavík, Njarðvík, Grinda-
vík og (i'ullhringusýslu
Linda Björk Ársælsdóttir, Halldór
Ný sportvöruverslun!
Hef opnaó nýja sportvöruverslun
að Hafnargötu 61 - Vatnsnestorgi
15-40%
kynningarafsláttur
af öllum
vorum.
Lítið inn.
Sjón er
sögu ríkari.
Sportbúð Óskars
Vatnestorgi - Keflavík