Morgunblaðið - 14.11.2015, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2015
Í GRINDAVÍK
Kristinn Friðriksson
kiddigeirf@gmail.com
Mikil eftirvænting var fyrir leik
Grindavíkur og Keflavíkur í sjöttu
umferð Domino’s-deild karla í körfu-
bolta í gærkveldi. Keflvíkingar voru
ósigraðir fyrir leikinn og Grindvík-
ingar, sem vermdu toppsætið fram-
an af móti með grönnum sínum, voru
staðráðnir í að stöðva sigurgöngu
Keflvíkinga. Eftir hörkuskemmti-
legan leik, þar sem liðin skiptust oft
á forystu, voru það hinsvegar Kefl-
víkingar sem reyndust betra liðið og
unnu öruggan sigur, 101:94, eftir að
staðan fyrir lokafjórðunginn var
72:71, Keflavík í hag.
Það fór ekkert á milli mála að
bæði lið mættu vel stemmd til leiks;
hraðinn var mikill. Staðan í hálfleik
var 44:51 og þó að leikur gestanna
hafi verið árennilegri þá voru Grind-
víkingar aldrei langt undan. Þriðji
hluti var mikill barningur; Keflvík-
ingar hvíldu Val Orra Valsson, sem
riðlaði sóknarleik liðsins töluvert og
Grindvíkingar gengu á lagið og áttu
sinn besta fjórðung. Það fór svo að
skilja á með liðum við upphafi fjórða
hluta; Keflvíkingar náðu hægt og ró-
lega smáforystu og þegar um 5 mín-
útur lifðu leiks setti Magnús Gunn-
arsson þrist og kom muninum í 5
stig, 80:85. Á þessum kafla skora svo
Grindvíkingar ekki nema tvö stig á
tæpum þremur mínútum! Þarna
tapa þeir leiknum og Keflvíkingar
ná að murka líftóruna úr heima-
mönnum á lokamínútum hans. Sig-
urinn var sanngjarn; Keflvíkingar
eru einfaldlega með sterkara lið og
sýndu það í spöðum í gær.
Bæta upp skotvalið með frá-
köstum
Keflvíkingar sýndu klærnar á
köflum en voru samt ekki nægilega
sannfærandi. Varnarleikur liðsins er
ekki nægilega góður en hið sameig-
inlega átak liðsmanna sem mynduðu
prýðilega heild er aðdáunarvert.
Liðsheildin er samstiga og vinnur
því mjög vel á köflum, og þessi kafl-
ar duga svo lengi sem menn tapa
ekki sjálfstraustinu í sóknarleiknum.
Keflvíkingar keyrðu vel á vörn
Grindavíkur, sem splundraðist oft
og við það fengust opin skot. Manni
blöskraði stundum skotval leik-
manna liðsins en barátta þeirra í frá-
köstum bætti oft upp fyrir þetta.
Liðsmenn láta ekkert að sér hæða
þrátt fyrir skort á hæð og sýndu í
gær hversu langt þú kemst á ein-
skærum vilja og eljusemi. Þar sem
hinn venjulegi borgari sér glundroða
og algert kaos, er með næmu auga
hinsvegar hægt að merkja töluvert
skipulag í leik liðsins; undir niðri
kraumar gríðarleg sóknargredda,
sem skilaði sér sérstaklega vel í gær
og kom flatt upp á heimamenn, sem
náðu ekki að meðhöndla hraða leiks-
ins með sama hætti.Valur Orri Vals-
son, Reggie Dupree og Guðmundur
Jónsson voru mjög góðir en maður
leiksins var Earl Brown.
Grindvíkingar þurfa meiri tíma til
þess að ná sínu skipulagi á hreint.
Oft sýndi liðið hvers það er megnugt
en á öðrum stundum örlaði fyrir
skipulagsleysi og vitleysisgangi.
Grindvíkingar tóku 22 skotum fleira
en Keflavík, án þess þó að vera með
mikið verri nýtingu! Á ögurstundum
klikkaði liðsheildin, þá sérstaklega í
þessar skorlausu 3 mínútur í fjórða
hluta.
Hlutverkaskipting ekki skýr
Þrátt fyrir ágætan leik Jóns Axels
náði hann ekki að stýra liðinu nægi-
lega vel og afleitur leikur Eric Wise
undir körfunni hjálpaði lítið til. Það
virðist sem hlutverkaskipting innan
liðsins sé ekki nægilega skýr og því
var auðvelt að greina undarlega
kafla liðsins milli þess sem liðið spil-
aði fantagóðan bolta. Stöðugleikinn
var vandfundinn í gær og með smá-
skynsemi og stóískri ró hefðu Grind-
víkingar átt að fara með leikinn al-
veg niður í lokaskot á lokasekúndum
hans. Í stað þess náðu menn engum
takti á lykilaugnablikum og úr varð
ekkert. Eric Wise á greinilega eftir
að komast inn í leik liðsins, eða aðrir
leikmenn eftir að komast inn í hans
leik. Bestir í liði Grindavíkur voru
Jón Axel Guðmundsson, Jóhann
Ólafsson og Þorleifur Ólafsson. Á
liðsheildina og leikgleðina vantaði en
ætti að sjást innan skamms.
Einskær vilji og eljusemi
Keflvíkingar með sex sigra í sex leikjum Hörkuskemmtilegur leikur í
Grindavík Varnarleikur Keflavíkur ekki góður en liðsheildin vinnur það upp
Slag
körf
VIÐTAL
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Landsfyrirliðinn Guðjón Valur Sig-
urðsson var á meðal viðmælenda í
sjónvarpsþætti í Danmörku í vikunni
þar sem tekið var til umfjöllunar það
mikla álag sem er á bestu handbolta-
mönnum Evrópu. Leikmenn sem eru í
liðum sem spila í Meistaradeild Evr-
ópu, og fara á stórmót með landsliðum
sínum, spila mikinn fjölda leikja á
hverju ári og dæmi eru um að ein-
ungis tvær vikur bjóðist í sumarfrí.
Rætt var við fleiri málsmetandi menn
í íþróttinni en fram kom í þættinum að
dæmi væru um að Hansen spilaði
meira en áttatíu leiki á ári.
Morgunblaðið hafði samband við
Guðjón Val og var hann fús til þess að
útskýra betur sín sjónarmið varðandi
keppnisfyrirkomulag í handboltanum.
Guðjón vill horfa til þess fyrirkomu-
lags sem notað er í fótboltanum varð-
andi stórmótin. En fyrst er rétt að
varpa betra ljósi á hversu mikið þetta
álag er sem um ræðir og hefur lengi
verið í umræðunni í handboltanum.
Sú var nefnilega tíðin að HM í hand-
bolta var á fjögurra fresti og EM var
ekki til. Nú er EM á tveggja ára fresti
og HM einnig. Guðjón segir að leikja-
álagið sé blanda af mörgu og snúist
ekki eingöngu um landsliðsverkefnin.
Óreiðan í Meistara-
deildinni er alger
„Þetta er blanda af mörgu. Skoðum
fyrst Meistaradeild Evrópu þar sem
leikjaálagið er sýnu mest. Spánverjar
vilja spila þá leiki um helgar og Danir
einnig. En þeir sem eiga sjónvarps-
réttinn í Þýskalandi vilja hafa leikina
þar í miðri viku. Lið frá þessum lönd-
um eru kannski saman í riðli í keppn-
inni og óreiðan verður því alger. Því
verður ekki mögulegt að hafa fasta
leikdaga í Meistaradeildinni. Deild-
irnar púsla leikjum saman í kringum
það. Ef við berum okkur saman við
fótboltann þá er eingöngu spilað í
Nokkrir aðrir í landsliðinu hafa spilað
á þónokkrum stórmótum. Aron Pálm-
arsson er 25 ára og hefur þegar spilað
á sjö stórmótum. Maður sér hvert
stefnir hjá honum. Hjá okkur í hand-
boltanum er svo gott sem ekkert frí í
kringum stórmótin og slíkt skiptir
máli til að geta hlaðið batteríin.
Gjarnan er síðasti deildarleikur í
kringum 27. eða 28. desember eins og
í Þýskalandi. Þá er flogið heim og
jafnvel æft 29. og 30. desember. Þá
kemur frí 31. og 1. janúar en und-
irbúningurinn heldur áfram frá og
dæmi enda hefur hann ávallt gefið
kost á sér og ekki misst af stórmóti
vegna meiðsla.
„Ég hef upplifað nokkur ár þar sem
Evrópumót fer fram í janúar, Ólymp-
íuleikar í ágúst og heimsmeistaramót
í janúar. Næsta ár er á þessa leið, með
þremur stórmótum á tólf mánuðum.
Ég vil taka það skýrt fram að ég er
stoltur og ánægður að spila fyrir Ís-
lands hönd og legg í það mikinn metn-
að. Frá því ég var tekinn inn í lands-
liðið höfum við bara misst af
Ólympíuleikunum 2000 og HM 2009.
Meistaradeild á þriðju- og mið-
vikudögum en deildarleikir eru oftast
um helgar. Þetta gerir að verkum að
mun erfiðara er fyrir þjálfara að koma
almennilegum takti í æfingaáætlanir
því spilað er á mismunandi dögum.
Leikmenn í Þýskalandi gætu sem
dæmi verið að spila leiki hvaða viku-
dag sem er nema mánudaga. Þetta er
því mjög óreglulegt en ég skil að sjón-
varpsrétthafar vilji fá sem mest fyrir
þá vöru sem þeir kaupa.“
Vill sjá stórmótin í júní
Varðandi landsliðsverkefnin segist
Guðjón vilja sjá stórmótin í júní og
leikir í undankeppnum geti þá verið í
janúar. Álagið í janúar færi þá úr því
að vera þrír til fjórir vináttuleikir auk
átta leikja á stórmóti yfir í kannski
fjóra landsleiki í undankeppni.
„Til að gefa smáinnsýn í hvernig
þetta gengur stundum fyrir sig get ég
nefnt dæmi frá því á mótinu í Noregi á
dögunum. Við spiluðum á laugardegi
klukkan 15:45 við Frakka og við Dani
klukkan 20:30 á sunnudagskvöldi.
Mönnum tókst ef til vill að sofna
klukkan eitt eða tvö. Rúturnar fóru
svo klukkan sex og sjö morguninn eft-
ir til að við gætum ferðast til okkar
heima. Sem dæmi hefði Aron Pálm-
arsson átt leik á þriðjudegi ef hann
hefði verið heill. Þarna hefði t.d. verið
gott ef leikurinn hefði verið fyrr á
sunnudegi og menn hefðu getað
ferðast um kvöldið en leiktíminn mið-
aðist við sjónvarpið. Ég bendi bara á
þetta dæmi til að vekja athygli á því
að það eru ýmsir hlutir sem ekki
vinna með okkur þegar kemur að
leikjaálaginu eins og ferðalögin og
hvernig þeim er háttað. Eftir deild-
arleiki geta verið rútuferðir frá tveim-
ur og upp í rúma sex klukkutíma,“
benti Guðjón á.
Þrjú stórmót á 12 mánuðum
Spjallið berst að stórmótum lands-
liða en Guðjón státar af þeirri ævin-
týralegu tölfræði að hafa spilað í átján
stórmótum á sextán ára landsliðsferli
sínum. Hann er auðvitað öfgakennt
Erfitt að sætta sig v
Guðjón Valur Sigurðsson vonast til að stórmótum í handbolta verði breytt á svipað
Enginn tími til að hlaða batteríin eftir stórmót Leikmenn þyrftu að taka sig sam
Stoð og styttur Oft hefur mikið mætt á þeim Pétri Erni Gunnarssyni sjúkraþjálfa
álagið hefur verið sem mest á landsliðsmönnunum okkar í handbolta. Hér hlúa þe
ardalshöllinni, en Guðjón hefur þó sjaldan meiðst á glæsilegum ferli sínum.
Umspil EM karla
Fyrri leikur:
Bosnía – Írland......................................... 1:1
Edin Dzeko 85. – Robert Brady 82.
Vináttulandsleikir karla
Pólland – Ísland........................................ 4:2
Frakkland – Þýskaland ........................... 2:0
Wales – Holland........................................ 2:3
Spánn – England ...................................... 2:0
Slóvakía – Sviss ........................................ 3:2
Norður-Írland – Lettland........................ 1:0
Belgía – Ítalía............................................ 3:1
Tékkland – Serbía .................................... 4:1
Lúxemborg – Grikkland .......................... 1:0
Katar – Tyrkland...................................... 1:2
Evrópukeppni U21 árs karla
3. riðill:
Skotland – Úkraína .................................. 2:2
Staðan:
Ísland 5 3 2 0 8:3 11
Frakkland 4 3 0 1 7:4 9
Makedónía 3 2 0 1 3:4 6
Skotland 4 1 2 1 5:5 5
N-Írland 4 0 1 3 3:6 1
Úkraína 4 0 1 3 2:6 1
KNATTSPYRNA
Olís-deild karla
Haukar – Valur..................................... 25:22
Staðan:
Valur 12 10 0 2 309:275 20
Haukar 11 9 0 2 301:234 18
Fram 12 8 0 4 287:273 16
ÍBV 11 6 0 5 285:271 12
Afturelding 12 6 0 6 281:274 12
Grótta 12 5 0 7 299:312 10
FH 11 5 0 6 271:298 10
Akureyri 11 4 0 7 267:268 8
ÍR 12 4 0 8 319:352 8
Víkingur 12 1 0 11 259:321 2
Olís-deild kvenna
FH – ÍR ................................................. 23:23
Staðan:
ÍBV 12 10 0 2 352:299 20
Fram 11 9 1 1 317:218 19
Grótta 11 9 1 1 275:180 19
Valur 11 9 0 2 294:214 18
Haukar 12 8 2 2 333:278 18
Stjarnan 10 6 0 4 270:221 12
Selfoss 10 6 0 4 286:261 12
Fjölnir 11 4 0 7 240:341 8
HK 11 3 0 8 214:266 6
Fylkir 11 3 0 8 266:288 6
FH 11 1 3 7 231:268 5
Afturelding 10 1 1 8 197:316 3
KA/Þór 10 1 1 8 196:254 3
ÍR 11 1 1 9 230:297 3
1. deild karla
Fjölnir – Mílan...................................... 22:21
Selfoss – Stjarnan................................. 32:24
KR – HK................................................ 21:22
Staðan:
Stjarnan 8 7 0 1 262:181 14
Fjölnir 8 6 0 2 216:176 12
Selfoss 8 6 0 2 216:194 12
Þróttur 8 5 0 3 196:210 10
Mílan 8 3 0 5 188:191 6
HK 8 3 0 5 219:235 6
ÍH 8 2 0 6 209:248 4
KR 8 0 0 8 161:232 0
HANDBOLTI
Dominos-deild karla
Grindavík – Keflavík .......................... 94:101
ÍR – Haukar........................................ 57:109
Staðan:
Keflavík 6 6 0 603:539 12
KR 6 5 1 554:422 10
Þór Þ. 6 4 2 560:475 8
Haukar 6 4 2 547:473 8
Njarðvík 6 4 2 512:501 8
Stjarnan 6 3 3 495:488 6
Tindastóll 6 3 3 465:479 6
Grindavík 6 3 3 521:524 6
Snæfell 6 2 4 445:527 4
ÍR 6 2 4 477:587 4
FSu 6 0 6 497:575 0
Höttur 6 0 6 402:488 0
1. deild karla
Hamar – KFÍ ........................................ 97:85
Skallagrímur – Reynir S.................... 106:59
Breiðablik – ÍA ..................................... 65:77
Staðan:
Þór Ak. 4 4 0 355:274 8
Valur 3 3 0 278:240 6
ÍA 4 3 1 318:292 6
Fjölnir 3 2 1 288:247 4
Skallagrímur 4 2 2 376:327 4
Breiðablik 4 2 2 319:314 4
Hamar 4 2 2 338:355 4
KFÍ 5 1 4 386:407 2
Ármann 3 0 3 220:320 0
Reynir S. 4 0 4 259:361 0
Svíþjóð
Borås – Luleå ..................................... 102:85
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 20 stig
fyrir Borås, tók 3 fráköst og átti 2 stoð-
sendingar.