Morgunblaðið - 14.11.2015, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.11.2015, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2015 Mustad-höllin Grindavík, Dominos- deild karla, föstudag 13. nóvember. Gangur leiksins: 8:5, 13:15, 17:21, 26:22, 31:34, 35:37, 39:42, 44:51, 44:58, 52:58, 65:62, 71:72, 76:77, 80:87, 83:91, 94:101. Grindavík: Jón Axel Guðmundsson 19/10 fráköst/8 stoðs., Eric Wise 18/9 fráköst, Þorleifur Ólafsson 18, Jóhann Árni Ólafsson 16, Hilmir Kristjánsson 9, Páll Axel Vilbergsson 5/5 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 4/7 fráköst, Ingvi Þór Guðmundsson 3/4 fráköst, Hinrik Guðbjartsson 2. Fráköst: 31 í vörn, 12 í sókn. Keflavík: Earl Brown Jr. 28/13 frá- köst, Reggie Dupree 19/4 fráköst, Guðmundur Jónsson 19/5 fráköst, Valur Orri Valsson 14/6 fráköst/7 stoðs., Magnús Þór Gunnarsson 9, Magnús Már Traustason 4/6 fráköst, Davíð Páll Hermannsson 4, Ágúst Orrason 3, Ragnar Albertsson 1. Fráköst: 31 í vörn, 9 í sókn. Dómarar: Leifur S. Gardarsson, Rögnvaldur Hreiðarsson, Davíð Tóm- as Tómasson. Áhorfendur: 578. Grindavík – Keflavík 94:101 Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson gur Grindvíkingurinn Eric Wise og Keflvíkingurinn Earl Brown í baráttu undir funni í leiknum í Grindavík í gærkvöld. Brown félagar höfðu betur. þetta og sjá þetta óskipulag. Vafa- laust eru allir að reyna að gera sitt besta en ræða því miður ekki saman. EHF hugsar um EM og Meist- aradeildina og IHF hugsar um HM. Menn vinna ekki saman og maður horfir öfundaraugum til fótbolta- manna sem spila deildaleiki um helg- ar og Meistaradeildarleiki á þriðju- og miðvikudögum. Ég ber okkur saman við fótboltann einfaldlega út af þeirra skipulagi. Ef við segjum að alþjóð- legur fótbolti sé Meistaradeildin í skipulagi þá er alþjóðlegur handbolti í besta falli 3. eða 4. deild í skipulagi. Ég er ekki að tala um HSÍ heldur handboltann á alþjóðavísu. Að sjálf- sögðu á handboltinn að gera þetta eins og fótboltinn og vera með stór- mót landsliða í júní og á fjögurra ára fresti. Hægt er að gera hlutina betur og á þann hátt að íþróttin græði á því. Einhvern tíma fær fólk nóg. Í fót- boltaheiminum varð allt vitlaust þeg- ar rætt var um að halda HM 2022 að vetri til. Við vinnum eftir þeim raun- veruleika ár eftir ár.“ Líklega þarf róttækaraðgerðir Guðjón segist ekki vera bjartsýnn á að breyting verði á og líklega þurfi róttækar aðgerðir til þess. Hann segir að flestir leikmanna í sterkustu liðum Evrópu séu sammála um að minnka þurfi álagið. „Við höfum auðvitað rætt þetta leikmennirnir en erum ekki komnir svo langt að grípa til aðgerða. Ef leikmenn myndu einfaldlega taka sig saman og segjast ekki ætla að taka þátt í þessu lengur yrði væntanlega að finna einhverja lausn. Við erum hins vegar ekki með nógu sterka rödd. Lít- ið virðist vera að gerast og erfitt að fá alla að borðinu. Alla vega man ég ekki eftir því sem leikmaður að eitthvað hafi komið út úr því þegar leikmanna- samtök funda um þessi mál við þá sem einhverju ráða. Við þurfum alvöru al- þjóðleg leikmannasamtök að banda- rískri fyrirmynd,“ sagði landsliðsfyr- irliðinn Guðjón Valur Sigurðsson ennfremur í samtali við Morg- unblaðið. irnar og Evrópukeppnirnar kláraðar 10.-15. maí. Þá gæfust um tvær vikur til undirbúnings fyrir stórmót og hægt væri að gefa mönnum sumarfrí að stórmóti loknu. Ég þekki það að koma heim gersamlega sigraður á sál og líkama eftir stórmót en þá þarf maður að fara í vinnuna. Þá getur maður átt erfitt með að mótívera sig jafnvel þótt framundan séu þá mik- ilvægir leikir sem skipta miklu máli um hvort félagsliðið vinnur titil. Með því að losa okkur við stórmót í janúar gætu menn þar að auki fengið smáfrí um jól eða áramót. Ég get auðvitað bara talað út frá mér og ég vil ekki vera of dramatískur en þetta er bara of mikið. Dæmi eru um að menn fái tvær eða tvær og hálfa viku í sumarfrí. Þar er þá um að ræða landsliðsmenn sem spila í undankeppni um miðjan júní en þurfa að mæta í undirbúningstímabil í Þýskalandi í byrjun júlí. Ég get held- ur ekki séð að ástandið sé neitt að batna því mér sýnist að leikir í und- ankeppni næsta sumar séu áætlaðir 19. júní,“ útskýrir Guðjón og telur heppilegast að taka mið af skipulag- inu í fótboltanum. EHF og IHF vinna ekki saman „Mér finnst erfitt að sætta mig við sem samherjar mínir hjá Barcelona lentu í eftir HM í Katar. Tveir þeirra urðu heimsmeistarar í Katar á sunnu- degi og flugu þá sex tíma flug heim til Frakklands. Þar þeystust þeir um París á mánudeginum til að hitta for- setann, taka við viðurkenningum, sinna fjölmiðlum, leika í auglýsingum og fleira. Á miðvikudeginum áttum við bikarleik með Barcelona gegn liði í 2. sæti í spænsku deildinni. Menn ná ekki einu sinni að njóta þess að vinna heimsmeistaratitil.“ Þekki að koma heim sigraður og fara beint í vinnuna Guðjón Valur hefur yfirgripsmikla reynslu sem landsliðsmaður eins og reynsla hans af stórmótum ber með sér. Þá hefur hann spilað í fjórum deildum ef sú íslenska er talin með og með nokkrum liðum í Meistaradeild- inni. Guðjón þekkir umhverfi þeirra sem fremst standa í íþróttinni út og inn. Hann vill hins vegar ekki bara benda á það sem honum finnst miður fara heldur hefur hann einnig skoð- anir á því hvernig færa mætti þessa þætti til betri vegar fyrir leikmenn- ina. „Í handboltanum eiga stórmótin að mínu mati að vera í júní og þau ættu að vera fjórða hvert ár. Þá yrðu deild- með 2. janúar. Í kringum þetta skap- ast togstreita á milli félagsliðanna, sem borga okkur launin, og landsliðs- þjálfaranna, sem vilja að sjálfsögðu undirbúa sig af kostgæfni og eru und- ir pressu. Mótin taka iðulega um fjór- tán daga með átta leikjum og þá tekur strax við leikjatörn með félagsliðum, jafnvel mikilvægir leikir í bikarkeppni eða Meistaradeild. Til dæmis eru tveir síðustu leikirnir í Meistaradeild í febrúar, strax að loknu átta leikja stórmóti. Fáránleikinn er alger. Ágætt dæmi um þetta eru aðstæður við þetta óskipulag ðan veg og í fótboltanum  Álagið á bestu leikmenn heims er gífurlegt an en hafa ekki nógu sterka rödd  Vill sjá stórmótin í júní með tveggja ára millibili Morgunblaðið/Eva Björk ara og Brynjólfi Jónssyni lækni þegar eir að Guðjóni Val Sigurðssyni í Laug- Hertz-hellirinn, Seljaskóla, Dominos- deild karla, föstudag 13. nóvember 2015. Gangur leiksins: 2:7, 7:13, 9:22, 11:32, 11:34, 13:47, 17:49, 23:55, 23:61, 26:69, 28:74, 33:82, 35:88, 44:96, 49:104, 57:109. ÍR: Jonathan Mitchell 15/12 fráköst, Eyjólfur Halldórsson 10, Vilhjálmur Theodór Jónsson 10, Björgvin Haf- þór Ríkharðsson 9/11 fráköst, Daníel Freyr Friðriksson 6, Sveinbjörn Cla- essen 3, Sæþór Elmar Kristjánsson 2, Oddur Rúnar Kristjánsson 2. Fráköst: 20 í vörn, 15 í sókn. Haukar: Stephen Michael Madison 24/6 stolnir, Haukur Óskarsson 20/4 fráköst, Kristinn Marinósson 15/9 fráköst, Hjálmar Stefánsson 13, Kári Jónsson 13/4 fráköst, Guðni Heiðar Valentínusson 6/5 fráköst, Finnur Atli Magnússon 4/9 frá- köst/5 stoðsendingar/4 varin skot, Emil Barja 3/10 fráköst/5 stoðsend- ingar, Ívar Barja 3, Alex Óli Ívarsson 3, Óskar Már Óskarsson 3, Jón Ólaf- ur Magnússon 2. Fráköst: 39 í vörn, 7 í sókn. ÍR – Haukar 57:109 KylfingurinnBirgir Leif- ur Hafþórsson hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar hef- ur leik á loka- úrtökumóti fyrir Evrópumótaröð- ina í dag en það er næststerkasta atvinnumótaröð í heimi á eftir PGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum. Mótið fer að þessu fram á á PGA Catalunya Resort í Gi- rona á Spáni en Birgir á rástíma kl. 8.05 að íslenskum tíma. Spilaðir eru sex hringir, 108 holur, en skorið verður niður eftir fjóra hringi á þriðjudaginn. Þeir sem komast í gegnum niðurskurðinn en fara ekki alla leið á Evrópumótaröðina fá hins vegar fullan keppnisrétt á Áskor- endamótaröðinni sem Birgir Leifur hefur verið viðloðandi á þessu keppnitímabili.    Brynjar Kristmundsson, semlengst af hefur leikið með Vík- ingi í Ólafsvík í knattspyrnunni, er genginn til liðs við Framara og hefur samið við þá til tveggja ára. Brynjar, sem er 23 ára gamall, hefur spilað með meistaraflokki Víkings frá 15 ára aldri en var hálft annað tímabil í röðum Valsmanna á árunum 2011 og 2012. Hann á að baki 28 leiki í efstu deild og 101 leik í 1. og 2. deild. Hann spilaði átta leiki með Ólafsvík- ingum í 1. deildinni í ár en fór í ágúst til Noregs og spilaði þar með D- deildarliðinu Volda.    Hinn kan-adíski Craig Pedersen verður áfram þjálfari karla- landsliðs Íslands í körfuknattleik fram á haustið 2017, en hann skrifaði í vikunni undir samning þess efnis í vikunni. Í samningnum er auk þess möguleiki á framlengingu til ársins 2019. Ped- ersen hefur stýrt karlalandsliðinu samhliða því að þjálfa Svendborg í efstu deild Danmerkur en hættir nú því starfi til að einbeita sér að starfi sínu fyrir KKÍ, ásamt því að hafa meiri tíma með fjölskyldu sinni. Fólk sport@mbl.is HÓPFIMLEIKAR Norðurlandamótið fer fram í Vodafone- höllinni í dag. Opnunarhátíð hefst kl. 10, keppni blandaðra liða (Selfoss og Stjarnan) kl. 10.20, karlaflokkur (Gerpla) hefst kl. 13 og kvennaflokkur (Stjarnan og Gerpla) kl. 16.10. KARATE Íslandsmótið í kumite (bardaga) fer fram í Fylkissetrinu í Norðlingaholti í dag frá kl. 10. Keppt er til úrslita frá kl. 12.15 til 12.45 og verðlaunaafhendig í kjölfarið. SUND Íslandsmótið í 25 metra laug heldur áfram í Ásvallalaug í Hafnarfirði í dag og á morg- un. Undanrásir fara fram frá kl. 10 báða dagana og úrslit hefjast kl. 16. SKYLMINGAR Íslandsmótið í skylmingum með höggs- verði fer fram í Skylmingamiðstöðinni á Laugardalsvelli. Unglingaflokkar keppa í dag frá kl. 10 til 17.15 og flokkar fullorðinna á morgun frá 10.30 til 17.30. ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla: Akureyri: SA – Björninn................... L16.30 Laugardalur: Esja – SR....................... 18.30 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Ásgarður: Stjarnan – Snæfell........... L16.30 Hveragerði: Hamar – Keflavík ............. L17 Vodafone-höll: Valur – Grindavík.......... S17 1. deild karla: Dalhús: Fjölnir – Þór Ak........................ S19 Vodafone-höll: Valur – Ármann........ S19.15 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Olís-deildin: TM-höllin: Stjarnan – Selfoss........... L17.30 KA-heimilið: KA/Þór – Afturelding. L17.30 UM HELGINA! Til eru leikmannasamtök í handboltanum í Evrópu og heita þau European Handball Players Union, skammstafað EHPU. Leikmannasamtök Íslands eiga aðild að samtökunum og situr framkvæmdastjórinn Kristinn Björgúlfsson í stjórn hinna evrópsku samtaka. Leikmannasamtök frá sjö öflugum hand- boltaþjóðum koma að hinum sameiginlegu samtökum. Koma þau frá Dan- mörku, Frakklandi, Þýskalandi, Íslandi, Noregi, Spáni og Svíþjóð. Stjórn samtakanna fundar tvisvar á ári og stillir þá stjórnarfundunum iðu- lega upp með lokakeppnum HM og EM annars vegar og úrslitahelgi Meist- aradeildar karla í Þýskalandi hins vegar. Formaður samtakanna heitir Marcus Rominger og kemur frá Þýskalandi. Emeric Paillasson frá Frakklandi er varaformaður. Stjórnarmenn koma frá hinum aðildarþjóðunum. kris@mbl.is Alþjóðleg leikmannasamtök KRISTINN BJÖRGÚLFSSON SITUR Í STJÓRN EHPU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.