Morgunblaðið - 02.12.2015, Side 1

Morgunblaðið - 02.12.2015, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 2. D E S E M B E R 2 0 1 5 Stofnað 1913  283. tölublað  103. árgangur  HEFUR ALDREI TEKIÐ PRAKTÍSKA ÁKVÖRÐUN FIMMTÁN BÆKUR TILNEFNDAR TEIKNAR EFTIR HANDRITI HUGLEIKS ÍSLENSKU BÓKMENNTAVERÐLAUNIN 33 PÉTUR ATLI 30BÓK OG JÓLALAND LÓU 10 Björgunarsveitarmenn þurftu að draga um 50 bíla upp úr sköflum og veita margvíslega aðra aðstoð í hreti sem gekk yfir borgina í gær. Varað hafði verið við þessu skoti og fólk var því við öllu búið. Þær tilkynn- ingar segir lögregla að hafi hugsanlega afstýrt öng- þveiti, eins og stundum verður við svona aðstæður. Áfram má búast við rysjóttu veðri en þegar því slotar verður fönn á jörðu yndisauki í jólamánuðinum. »2 Hret í höfuðborginni í gær og rysjótt tíð í kortunum Morgunblaðið/Eva Björk Bílarnir voru fastir í fönninni Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Verkfalli starfsmanna í álverinu í Straumsvík var aflýst seint í gær- kvöldi. Það átti að hefjast á miðnætti. Í fréttatilkynningu frá samninga- nefnd starfamanna segir: „Kjaradeil- an er áfram óleyst en ákvörðunin um að aflýsa verkfallinu er tekin þar sem sýnt þykir að raunverulegur samn- ingsvilji sé ekki fyrir hendi hjá eig- anda álversins, Rio Tinto. Að mati samninganefndarinnar er gagnslaust að halda verkfallinu til streitu, enda hafi ítrekað komið fram hótanir þess efnis að álverinu verði lokað og skuld- inni þá skellt á starfsfólkið fyrir að sækja lögbundinn rétt sinn og kjara- bætur.“ Engin forsenda til frestunar Þá segir jafnframt að starfsfólkinu sé þungbært að upplifa sig sem leik- soppa í hagsmunatafli Rio Tinto gegn launafólki víðsvegar um heiminn. Boðað var til samningafundar klukkan 18 í gærkvöldi en á níunda tímanum yfirgaf samninganefnd Rio Tinto Alcan húsakynni ríkissátta- semjara í Borgartúni. Samninga- nefnd starfsmanna sat áfram til að ráða ráðum sínum. Að sögn Ólafs Teits Guðnasonar, talsmanns Rio Tinto Alcan, var eingöngu um óform- legt spjall að ræða. Eins og fram hef- ur komið snúa deiluefnin um heimild álversins til þess að ráða menn til verktöku, í alls um 30 störf. Gylfi Ingvarsson, talsmaður samninga- nefndar starfsmanna, sagði á níunda tímanum í gær að þær þreifingar sem höfðu átt sér stað hefðu ekki leitt til neins. „Reynt var að finna flöt til þess að fresta verkfallinu og nota tímann til þess að ná saman. En þar sem hvorugur aðili var tilbúinn til þess var engin forsenda til þess að gera það,“ segir Gylfi. Fram hefur komið í máli tals- manna álversins í Straumsvík að lík- ur væru á því að álverinu yrði lokað ef til verkfallsins kæmi. Samkomulag var á milli álversins og starfsmanna um að starfsmenn myndu mæta til vinnu í tvær vikur eftir að verkfallið myndi skella á til þess að slökkva á 480 kerjum álvers- ins. Ekkert verður þó af því. Kjara- samningar álversins við starfsmenn ná til 320 starfsmanna. Verkfalli í ál- verinu sem fyrirhugað var 1. septem- ber sl. var einnig frestað áður en til þess kom. Verkfalli í álverinu aflýst  Boðuðum samningafundi hjá ríkissáttasemjara lauk án niðurstöðu í gærkvöldi  Starfsfólkinu „þungbært að upplifa sig sem leiksoppa í hagsmunatafli Rio Tinto“ Morgunblaðið/Ómar Álverið í Straumsvík Starfsfólk óttaðist lokun verksmiðjunnar.Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samtök atvinnulífsins (SA) munu á næstu dögum funda með stjórnvöld- um um lækkun tryggingagjalds. Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri SA, segir lækkun gjaldsins „skilvirkustu leiðina til að vinna á móti mikilli kostnaðaraukn- ingu vegna kjarasamninga“. „Við höfum ekki fengið önnur við- brögð en skilning á vandanum. Það er áformað að funda í vikunni,“ segir Þorsteinn um næstu skref í málinu. 138 milljarðar í bætur frá 2008 Gissur Pétursson, framkvæmda- stjóri Vinnumálastofnunar, segir lækkun tryggingagjalds munu hægja á söfnun fjár í Atvinnuleysis- tryggingasjóð. Mikilvægt sé að nota tækifærið og safna meira fé í sjóð- inn. Núverandi eigin fé sjóðsins dugi aðeins til greiðslu bóta í eitt ár. Vinnumálastofnun mun í árslok hafa greitt rúmlega 138 milljarða í atvinnuleysisbætur frá ársbyrjun 2008. Áætlaðar bótagreiðslur í ár eru um 11 milljarðar króna. »6 Morgunblaðið/Eggert Framkvæmdir SA segja trygginga- gjaldið dýrt fyrir fyrirtæki landsins. Rætt um lækkun gjaldsins  SA telja brýnt að lækka tryggingagjald  Reykjaneshöfn og svonefnt kröfuhafaráð hafa náð sam- komulagi um að framlengja greiðslufrest hafnarinnar og kyrr- stöðutímabil til 15. janúar á næsta ári. Ella hefði komið til greiðslu- þrots hafnarinnar í gær. Unnið verður að því að endurskipuleggja skuldir hafnarinnar á tímabilinu. Skuldir hafnarinnar nema nú um 7,5 milljörðum króna. „Við von- umst til þess að sjá fyrir endann á þessum skuldavanda til lengri tíma,“ segir Halldór Karl Her- mannsson hafnarstjóri. Ekki sé verið að tala um niðurfellingu skuldanna. »12 Reykjaneshöfn fær frest til 15. janúar Gjafakort Gjafakort í Borgarleikhúsið er ávísun á einstaka kvöldstund sem aldrei gleymist. BORGARLEIKHÚSSINS borgarleikhus.is dagar til jóla! 22

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.