Morgunblaðið - 02.12.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Komið í verslun okkar og sjáið úrvalið
Opið kl. 11-18 alla virka daga
ENJO fyrir jólahreingerninguna
Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is
• Engin kemísk efni
• Ódýrara
• Tímasparnaður
• Umhverfisvænt
• 6 x hreinna - betri þrif
• Vinnuvistvænt
• Minni vatnsnotkun
Í hreti reynir á hrossin, svo sem þessa klára sem
kröfsuðu eftir stráum undir Esjuhlíðum á
Kjalarnesinu í gær. Þeim verður þó væntanlega
ekki meint af, enda við öllu búnir og hestamenn
hugsa um sína. Nú styttist raunar í að hross
verði tekin úr högum og sett á hús, en það gerist
oft í kringum jól. Eftir nýárið byrja menn svo að
ríða út og þá dunar á svellum og hófadynur
heyrist er sprett er úr spori á ísagrárri spöng.
Klárar í kulda á Kjalarnesinu
Morgunblaðið/RAX
Í leit að stráum í vetrarveðri undir Esjunni
Lára Halla Sigurðardóttir
Sigurður Bogi Sævarsson
Skilaboð til fólks um að fara sér
hægt og sýna skynsemi urðu til þess
að allt gekk skap-
lega og umferð
raskaðist ekki
þegar snarpt
óveðurshret gekk
yfir höfuðborgar-
svæðið í gærdag.
„Einmitt vegna
þess að fólk hlust-
aði á skilaboðin
höfum við náð að
halda þessu mjög
skikkanlegu. Það er nóg að gera en
hefði getað verið margfalt verra.
Þegar snjómoksturstækin eru ekki
bundin af föstum bílum getum við
rutt,“ sagði Þórir Ingvarsson hjá
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í
samtali við mbl.is í gær.
50 bílar fastir
Vond veðurspá gekk eftir. Þegar
fólk á höfuðborgarsvæðinu fór á stjá
í gærmorgun var hvasst með snjó-
komu og skafrenningur yfir öllu.
Blint var vegna fjúks fram eftir
morgni en þá fór að létta til. Heldur
dró úr vindi eftir hádegi en þá bætti í
snjókomu. Flestir komust óhappalít-
ið til vinnu sinnar, enda var fólk yf-
irleitt vel búið og fór sér hægt. Lög-
reglumenn á 15 bílum og 135
björgunarsveitarmenna voru úti á
götunum fólki til aðstoðar, en alls
bárust 17 útköll og draga þurfti 50
bíla úr sköflum. Foreldrum var gefið
sjálfdæmi um hvort börn þeirra færu
í skólann og mörg mættu ekki. Svo
var tilkynnt síðdegis að ekki þyrfti
að sækja börnin í skólann enda hafði
veðrinu þá slotað. Segja má því að í
meginatriðum hafi daglega lest til-
verunnar verið á réttu spori.
Síðdegis í gær kom fram gagnrýni
til dæmis á félagsmiðlum á þær við-
varanir sem gefnar voru út, enda
hefði veðrið aldrei orðið sá hvellur
sem spáð var. Mótrök lögreglu hafa
hins vegar verið þau að viðvörunar-
orðin hafi haldið aftur af fólki.
Við miðlun upplýsinga í gær
gegndu netmiðlar mikilvægu hlut-
verki og heimsóknir og flettingar á
mbl.is voru langt yfir meðallagi.
Hvasst og él í kortum
Veðurspáin fyrir næstu daga er
annars sú að í dag verður vestanátt
og él sunnan, og vestanlands og vind-
styrkur 8-13 sekúndumetrar. Síð-
degis og í kvöld verður snjókoma á
Norðausturlandi og vindstyrkur 18-
25 metrar á sekúndu. Frost verður
víða frá núlli niður í átta gráður.
Viðvaranir afstýrðu vanda
Óveðurshvellur gekk yfir borgina í gær Reyndist ekki jafn grimmur og búist
var við Dagleg lest tilverunnar hélst á réttu spori Netmiðlarnir í aðalhlutverki
Þórir Ingvarsson
Morgunblaðið/Eva Björk
Óveður Allir samtaka úti að ýta.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
33 ára gamall Íslendingur, Guð-
finnur Óskarsson, hefur verið
ákærður í Englandi fyrir að hafa
svikið fé út úr ástkonu sinni til
tveggja ára. Í frétt um málið á vef
Yorkshire Evening Post segir að
maðurinn hafi svikið tæplega 30
þúsund pund út úr Victoriu Maker
eða sem nemur tæpum sex millj-
ónum kr. Hann hefur játað brot sitt.
Í fréttinni segir að þau hafi flutt
saman inn á heimili hennar í Leeds
skömmu eftir að þau kynntust. Segir
jafnframt að Guðfinnur hafi tjáð
henni að honum hefði ekki borist
greiðsla fyrir vinnu sem hann hafði
innt af hendi. Samþykkti hún að
greiða uppihald á meðan hann biði
greiðslunnar. Fram kom í máli sak-
sóknara að hún hefði m.a. greitt
flugfar fyrir hann til útlanda vegna
vinnu. Þá segir að meðan á sam-
bandi þeirra stóð hafi hún selt heim-
ili þeirra á 190 þúsund pund eða 40
milljónir kr. og þau flutt í leiguíbúð í
staðinn.
Í framhaldinu er Guðfinnur sagð-
ur hafa fengið Victoriu til að milli-
færa 153 þúsund pund, eða sem
nemur um 30 milljónum króna, á
bankareikning sinn í Noregi þar sem
vaxtakjör væru betri.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
fékk Victoria aldrei að sjá banka-
yfirlit reikningsins. Guðfinnur sagði
hins vegar að hann hefði fundið
vinnu og myndi sjá um að greiða
leigu upp á 650 pund á mánuði eða
sem nemur um 130 þúsund kr. Í máli
saksóknara segir að Guðfinnur hafi
notað peninga af norska reikn-
ingnum til þess að greiða leiguna. Í
mars síðastliðnum skilaði Guðfinnur
25 þúsund pundum eftir að Victoria
hafði þráspurt um afdrif pening-
anna. Guðfinnur var svo handtekinn
á Heathrow-flugvelli í London þar
sem hann var á leið í flugvél til
Washington. Hann játaði brot sitt og
skilaði stærstum hluta fjárins til
baka. Eftir stóðu þó um 29.504 pund.
Sveik milljónir út úr ástkonu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íslendingur játaði
fjársvik og bíður
dóms í Leeds
„Við höfum ekki
séð merki inflú-
ensunnar. Við
verðum yfirleitt
fljótt vör við hana
á Læknavaktinni
því þá eykst
þunginn, fleiri
koma og vitj-
anabeiðnum
fjölgar,“ segir
Þórður Ólafsson, læknir á Heilsu-
gæslustöð Efra-Breiðholts og yfir-
læknir Læknavaktarinnar.
Hann segist hvorki greina að fleiri
en vanalega hafi verið veikir í haust,
né um þessar mundir. Þær pestir
sem hafa verið að ganga undanfarið
eru m.a. barkakvef í börnum, kvef,
hiti, hósti og særindi í hálsi sem
fylgja gjarnan veirusýkingum. Og
inn á milli ganga magakveisur.
Þórður bendir á að enn sé hægt að
láta bólusetja sig gegn inflúensu og
nóg er enn til af bóluefni. Reiknað er
með að inflúensan berist hingað til
lands í kringum áramótin.
thorunn@mbl.is
Bólusetn-
ing er
enn í boði
Þórður Ólafsson
Engin merki um
inflúensu ennþá
Fjarskiptafyrirtækið Vodafone hef-
ur ákveðið að endurnýja ekki styrkt-
arsamning sinn við Valsmenn. Fyrir
vikið munu nöfnin Vodafone-höllin
og Vodafone-völlurinn hverfa á
braut. Í stað þeirra verða tekin upp
nöfnin Valshöllin Hlíðarenda og
Valsvöllurinn Hlíðarenda.
„Stjórnin og við sem erum í félag-
inu erum að velta fyrir okkur næstu
skrefum, hvort það verður nýr
styrktaraðili fenginn fyrir höllina og
völlinn eða ekki,“ segir Jóhann
Helgason, framkvæmdastjóri Vals.
Hann segir vel koma til greina að
fá nýjan styrktaraðila en „allt þurfi
að passa“ í þeim efnum. Samningur-
inn þurfi að vera hagstæður og Vals-
menn þurfi að vera tilbúnir að selja
nafnið á nýjan leik.
Að sögn Jóhanns kom Vodafone
að máli við Valsmenn eftir að samn-
ingurinn rann út í sumar og skömmu
eftir fund þeirra á milli varð niður-
staðan sú að Vodafone vildi róa á
önnur mið. Samningurinn var þó
endurnýjaður fram á haust en er
núna á enda runninn.
Heitir nú
Valshöllin