Morgunblaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Ljós og hiti
TY2007X
Vinnuljóskastari ECO perur
2x400W tvöfaldur á fæti
6.590
TY2007K
Vinnuljóskastari
m handf 400W ECO
pera, 1,8m snúra
3.290
T38 Vinnuljós
4.990
Rafmagnshitablásari
5Kw 3 fasa
12.830
TY2007W
Vinnuljóskastari
á telescope fæti
400W ECO pera
5.390
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
SHA-2625
Vinnuljóskastari
Rone 28W m.
innst. blár. 1,8m
snúra
6.990
SHA-8083 3x36W Halogen
16.990
Telescopic þrífótur
fyrir halogen lampa
6.790
Rafmagnshitablásari
9Kw 3 fasa
17.990
170 eða 140 krónur fyrir evruna.
Það hlýtur að muna um það. Það
segir það sjálft,“ segir Aðalsteinn
um gengissveifluna síðan 2010.
Mannverk í hótelgeirann
Hann segir þá feðga ekki hafa
ákveðið framhaldið. „Það eru að
koma jól. Nú ætlum við að hvíla
okkur og hugsa um eitthvað ann-
að,“ segir Aðalsteinn Gíslason.
Með þessari fjárfestingu eykur
Mannverk umsvifin í hótelgeir-
anum. Félagið hefur unnið náið
með CenterHotels við uppbyggingu
hótela, auk þess sem það er að
breyta húsnæði í Brautarholti í
Reykjavík í 65 herbergja hótel.
byggingarlóðina og fylgir hún með í
kaupunum. Aðalsteinn segir nýja
eigendur Welcome Apartments
undirbúa þessar framkvæmdir.
Spurður hvort þeir feðgðar séu
loðnir um lófana eftir söluna segir
Aðalsteinn að á móti eignum hafi
verið skuldir. Hann viðurkennir að
þeir séu ekki á flæðiskeri staddir.
Aðalsteinn segir rekstur hótel-
íbúða ekki vera jafn mikla gullnámu
og af er látið. Síðan þeir hófu starf-
semi hafi virðisaukaskattur á gist-
ingu hækkað, gengi krónu styrkst
mikið gagnvart evru og laun hækk-
að umtalsvert. Rekstrarumhverfið
hafi því breyst.
„Það munar miklu hvort það fást
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveð-
ið að lækka akstursgjald í aksturs-
samningum ríkisstarfsmanna og
ríkisstofnana. Almennt gjald var
fyrir fyrstu 10 þúsund kílómetrana
116 krónur fyrir kílómetrann en
verður nú 110 krónur frá 1. desem-
ber, sem er 5,2% lækkun. Frá 10
þúsund kílómetrum til 20 þúsund
kílómetra lækkar gjaldið úr 104
krónum í 99 krónur, eða um 4,8%
og gjaldið umfram þá kílómetra
lækkar úr 93 krónum í 88 krónur.
Aki starfsmaður um torfæra vegi
skal bæta 45% álagi á almenna
gjaldið sem gildir við akstur á mal-
bikuðum vegum, annað gjald gildir
á akstri á malarvegum og torfæru-
gjald miðast við akstur utan vegar
og einungis jeppafært.
„Frá því gjaldið var ákveðið síð-
ast (árið 2013) hafa orðið breyt-
ingar á verðlagi, sérstaklega hefur
bensín og olía lækkað,“ segir Sig-
ríður Vilhjálmsdóttir, ritari ferða-
kostnaðarnefndarinnar.
Ferðakostnaðarnefnd lækkaði
einnig dagpeninga ríkisstarfs-
manna og ríkisstofnana á ferðalög-
um innanlands um 21%. Fara úr 33
þúsundum á dag í 26 þúsund en
greitt er fyrir gistingu og fæði.
„Dagpeningarnir lækka árvisst á
haustin. Þá kemur vetrarverð á
gistingu og sumargisting er tals-
vert dýrari. Þetta er árviss breyt-
ing og tekur einnig breytingum í
vor þegar sumarverðið hækkar,“
segir Sigríður.
Fjórir sitja í ferðakostnaðar-
nefnd: einn frá BSRB, einn frá
BHM og tveir frá ríkinu.
Aksturs- og dag-
peningar lækkuðu
um mánaðamótin
Akstursgjald lækkaði um 4,8-5,2%
og dagpeningar um 21%
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Akstursgjald Skiptist í almennt
gjald, sérstakt og torfærugjald.
Nýr kjarasamningur stétt-
arfélagsins Eflingar og Reykja-
víkurborgar var samþykktur í
atkvæðagreiðslu með yfirgnæf-
andi meirihluta eða rúmlega
82,5% atkvæða en nei sögðu 17%.
Á kjörskrá voru alls 1.922 fé-
lagsmenn. Atkvæði greiddu 458
eða 23,8%.
Samningurinn var undirritaður
13. nóvember og gildir afturvirkt
frá 1. maí sl. til 31. mars árið
2019.
Í umfjöllun Eflingar kemur
fram að félagsmenn Eflingar
sem vinna á einkareknum leik-
skólum taka mið af kjarasamn-
ingi Reykjavíkurborgar og fá því
einnig afturvirka launaleiðrétt-
ingu frá 1. maí síðastliðnum.
82,5% samþykktu
samning við borgina
Möguleikar símafyrirtækjanna
aukast á notkun tíðna fyrir háhraða
farsímaþjónustu verði frumvarp inn-
anríkisráðherra um að fella burt lög
um þriðju kynslóð farsíma samþykkt
sem lög frá Alþingi.
Um er að ræða 2100 MHz tíðnisvið-
ið sem var á árinu 2006 að mestu út-
hlutað til þriggja farsímafyrirtækja
til að veita þriðju kynslóðar farsíma-
þjónustu (3G). Tilgangurinn með af-
námi laganna er að geta úthlutað
þessum hluta af tíðnisviðinu fyrir
fjórðu kynslóð farsímaþjónustu (4G).
Öll símafélögin hafa lýst áhuga á
þessu og kemur fram í greinargerð
frumvarpsins að þessi tíðniheimild
verði hugsanlega boðin á uppboði.
,,Árgjald fyrir þessa stærð af tíðni-
sviði, til nota fyrir almennt farnet, er
8.977.500 kr., en samkvæmt því getur
lágmarksboð numið allt að
134.662.500 kr.,“ segir í greinargerð.
Í umsögn Nova ehf. við frumvarpið
segir að með tækniframförum síðustu
ára sé mögulegt að ná fram umtals-
verðri gæða- og afkastaaukningu í
farsímaþjónustu með því að nýta
tíðnisviðin fyrir nýjustu tækni á
hverjum tíma, svo sem 4G (LTE) og
4G-Advanced (LTE-Advanced), í stað
þess að takmarka notkun þeirra við
eldri tækni, svo sem GSM eða 3G.
,,Dregið hefur úr áhorfi á línulegar
sjónvarpsútsendingar á meðan aukin
eftirspurn er eftir aðgangi að hliðr-
aðri dagskrá, þ.e. neytandinn sækir
sér efni til afþreyingar þegar honum
hentar, oft með þráðlausri fjarskipta-
þjónustu, s.s. í gegnum snjallsíma eða
spjaldtölvu,“ segir í umsögn Póst- og
fjarskiptastofnunar. omfr@mbl.is
Nýta tíðnisviðin á háhraða
Afnema á lög um þriðju kynslóð farsíma Hægt verði að úthluta þessum hluta
af tíðnisviðinu fyrir 4G farsímaþjónustu Öll símafélögin hafa lýst áhuga sínum
Gagnaflutningar
» Gríðarleg aukning hefur orð-
ið á flæði gagnamagns á far-
símanetum á seinustu miss-
erum.
» Flest farsímafyrirtækin hafa
hug á að sækja um tíðniheim-
ildir sem lausar eru á 2100
MHz tíðnisviðinu.
Samkvæmt Fasteignaskrá eru íbúðirnar 25 á Vatnsstíg
11 samtals rétt rúmlega 931 fermetri. Miðað við fast-
eignaverð í þessum hluta borgarinnar má ætla að mark-
aðsverð íbúðanna sé ekki undir 400 milljónum.
Samkvæmt ársreikningi Welcome Apartments 2014
var útseld leiga ársins að fjárhæð 338 milljónir króna.
Eignir voru metnar á 140,4 milljónir króna og skuldir
voru 125 milljónir. Langstærsti kostnaðarliðurinn er
húsaleiga en hún var að fjárhæð 141,8 milljónir króna. Árs-
verk voru 17. Félagið var í 100% eigu Welcome Holding ehf.
Þess má geta að vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hefur
hækkað úr 303,3 stigum í janúar 2010 í 441,2 stig í október síðast-
liðnum, eða um 45%. Af þessu má draga þá ályktun að feðgarnir hafi
keypt fasteignirnar á hárréttum tíma. Er spáð frekari hækkunum í mið-
borginni. Þá má nefna að nýlegir útreikningar Þjóðskrár, sem gerðir voru
að beiðni Morgunblaðsins, sýna að verðið hefur hækkað mest í miðborg-
inni. Til dæmis hefur meðalkaupverð á fermetra í póstnúmerinu 101
hækkað úr 326.228 krónum á 1. ársfjórðungi 2013 í 404.028 kr. á 2.
ársfj. í ár. Það er 24% hækkun á nafnvirði fasteigna í miðborginni.
Tugprósenta hækkanir
FEÐGARNIR GERÐU GÓÐ KAUP Á FASTEIGNUM
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Feðgarnir Aðalsteinn Gíslason og
Stefán Aðalsteinsson hafa selt
rekstur Welcome Apartments til fé-
lags í eigu fasteignaþróunarfélags-
ins Mannverks. Kaupverðið er
trúnaðarmál.
Welcome Apartments leigði út 25
hótelíbúðir þegar reksturinn var
seldur í byrjun nóvember. Íbúð-
irnar eru allar í húsum á horni
Lindargötu og Vatnsstígs.
Þeir feðgar hófu reksturinn
snemma árs 2010. Síðan hefur mik-
ið vatn runnið til sjávar og hótel-
geirinn breyst mikið. Aðalsteinn
segir hvatann að stofnun fyrirtæk-
isins hafa verið þann að skapa þeim
feðgum atvinnutækifæri.
„Til að byrja með voru þetta
íbúðir í almennri útleigu. Við sáum
fljótlega hvað var að gerast í ferða-
þjónustunni og breyttum þá íbúð-
unum í hótelíbúðir. Við sáum tæki-
færi á góðum kaupum á fasteign til
útleigu. Síðan urðu til ný tækifæri
og málið fór að þróast. Nýtingin á
íbúðunum var góð,“ segir Aðal-
steinn.
Byggt verður við húsnæðið
Sagt var frá því í Morgunblaðinu
í lok október í fyrrahaust að eig-
endur Welcome Apartments hygð-
ust byggja við núverandi húsnæði á
Lindargötu og fjölga með því hótel-
íbúðum úr 25 í 47. Var ætlunin að
sameina lóðirnar Lindargötu 34 og
36 í eina lóð. Kom þá fram að kostn-
aður við framkvæmdirnar, að með-
töldum kaupum á lóðunum og
íbúðarhúsinu Lindargötu 34, sem á
að rífa, væri á fjórða hundrað millj-
ónir króna. Þeir feðgar áttu
Morgunblaðið/Golli
Á Lindargötu Húsið vinstra megin á myndinni mun víkja fyrir viðbyggingu með 22 hótelíbúðum.
Feðgar selja íbúða-
hótel í miðborginni
Hófu starfsemi kreppuárið 2010 Leigðu 25 hótelíbúðir